Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.7. 2022
LESBÓK
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
KAFFIVÉLAR SEM HENTA ÞÍNUM REKSTRI
GOTT KAFFI KÆTIR
Bravilor TH
Frábær uppáhellingarvél
með vatnstanki.
Bravilor THa
Frábær uppáhellingarvél
með vatnstengi.
Bravilor Sprso
Handhæg og öflug baunavél
sem hentar smærri fyrirtækjum.
Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900
SÁPUÓPERA Senn líður að því að framleiðendur ástr-
ölsku sjónvarpsþáttanna Neighbours eða Nágranna láti
staðar numið. Þættirnir hafa reynst lífseigir svo ekki sé
dýpra í árinni tekið og hafa verið á skjánum í 37 ár. Um
tíma var áhorfið á þættina líklega talsvert hérlendis,
sérstaklega á tíunda áratugnum.
Hvernig höfundunum hefur tekist að halda sápuóper-
unni gangandi í nærri fjóra áratugi er ef til vill rann-
sóknarefni en til stendur að ljúka þáttunum með stæl.
Söngkonan Kylie Minogue lék í þáttunum um tíma og
hún snýr aftur og leikur í lokaþættinum. Minogue er frá
Melbourne og í þáttunum vakti hún fyrst athygli. Birti
hún myndir frá tökustaðnum á samfélagsmiðlum í vik-
unni en lokaþátturinn verður sýndur 29. júlí.
Láta staðar numið
Kylie Minogue á
kvikmyndahátíð-
inni í Cannes.
AFP/Christophe Simon
KVIKMYND Eftir velgengni kvikmyndar-
innar Top Gun: Maverick á þessu ári virðist
sem þreifingar séu hafnar um að gera aðra
mynd og í raun þá þriðju en fyrsta Top Gun-
myndin var sýnd árið 1986.
Miles Teller, einn leikaranna í Top Gun:
Maverick, sagðist vera til í slaginn í viðtali.
Var hann að leika golf á góðgerðarmóti þeg-
ar Entertainment Tonight kastaði á hann
spurningu um hvort fleiri Top Gun-myndir
yrðu gerðar. Sagðist Teller vera hlynntur
hugmyndinni og hafa rætt það við Tom
Cruise en það sé alfarið undir Cruise komið
hvort fleiri myndir verði gerðar.
Verður þriðja myndin gerð?
Leikarinn Miles Teller á golfmótinu í Nevada.
AFP/Isaiah Vazquez
Beyoncé er búin að taka upp plötu.
Von á nýju efni
SAMFÉLAGSMIÐLAR Tónlist-
arkonan Beyoncé er gengin til liðs
við samfélagsmiðilinn TikTok.
CNN segir frá þessum tíðindum en
Beyoncé er án efa ein skærasta
stjarnan í popptónlistinni á öldinni.
Beyoncé birti fyrstu færsluna í
vikunni og þakkaði fyrir þær við-
tökur sem nýjasta lag hennar
Break My Soul hefur fengið. Tæp-
ast er það tilviljun að Beyoncé bæti
við samfélagsmiðlareikningi á þess-
um tímapunkti því von er á nýrri
plötu frá henni hinn 29. júlí. Platan
heitir Renaissance og er sjöunda
stúdíóplatan á sólóferli Beyoncé en
sú fyrsta kom út árið 2003. Sex ár
eru liðin síðan Beyoncé sendi frá
sér plötuna Lemonade.
C
aan var eftirminnilegur í
hlutverki Sonny Corleone í
Guðföðurnum. Er Caan
helst minnst fyrir þá frammistöðu
sem er skiljanlegt í ljósi þess að
The Godfather er ein umtalaðasta
mynd kvikmyndasögunnar.
Caan fæddist í Bronx-hverfinu í
New York hinn 26. mars árið 1940.
Foreldrar hans fluttu til Bandaríkj-
anna frá Þýskalandi og voru af gyð-
ingaættum. Þau fluttu innan borg-
arinnar til Queens og þar ólst Caan
upp. Eflaust kemur þetta fáum á
óvart því taktarnir og talandinn á
hvíta tjaldinu voru iðulega mjög
New York-legir ef þannig má að
orði komast.
Caan hélt þó til Michigan og
lærði í Michigan State. Þar hugðist
hann leika með skólaliðinu í amer-
ískum fótbolta en komst ekki í leik-
mannahópinn. Hann kom aftur til
New York og gekk í Hofstra-
háskólann. Reyndist það gæfa fyrir
Caan í ljósi þess að þar kynntist
hann Francis Ford Coppola.
Að námi loknu hófst leikaraferill-
inn á fjölunum. Fljótlega var Caan
kominn á Broadway en hans fyrsta
hlutverk þar var í leikritinu Blood,
Sweat and Stanley Poole. Á sjöunda
áratugnum skapaði Caan sér smám
saman stærra nafn í bransanum og
fékk tækifæri í sjónvarpi og kvik-
myndum. Árið 1966 fékk hann til
dæmis tækifæri til að leika með
John Wayne í myndinni El Dorado.
Kynnin af Coppola komu sér vel
snemma á ferlinum því Caan lék í
James Caan og
Sheila Ryan ásamt
hinni frönsku Lilyan
Chauvin árið 1975.
Gekk í skóla
með Coppola
Leikarinn James Caan lést í Los Angeles í
Kaliforníu fyrr í mánuðinum 82 ára að aldri.
Kristján Jónsson, kris@mbl.is
Francis Ford Coppola og James Caan á 50 ára afmæli The Godfather.
AFP/Frazer Harrison
Eftir erfið ár á níunda áratugnum, sem lituðust af sorg og kók-
aínneyslu hjá James Caan, má segja að Rob Reiner hafi komið til
hans líflínu. Alla vega hvað varðar leikaraferilinn.
Stephen King sendi árið 1987 frá sér bókina Misery og kvikmynd
í leikstjórn Robs Reiners fór á hvíta tjaldið árið 1990. Reiner fékk
Caan til að leika stærsta karl-
hlutverkið en Kathy Bates fór ham-
förum í aðalhlutverki mynd-
arinnar. Bates hlaut Óskarinn
sem besta leikkona í aðahlut-
verki og ferill Caans komst aft-
ur á skrið.
Bates og Reiner minntust Ca-
an bæði eftir andlátið. Reiner
minntist hans með hlýju og Bates
sagði það hafa verið eina almerki-
legustu reynslu á sínum ferli að leika á móti
Caan í Misery. Skelfing mannsins hafi verið
jafn raunveruleg og ef hann hefði verið
með eitraðan snák í höndunum.
Misery kom Caan aftur í gang
Kathy Bates