Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 17. JÚLÍ 2022 Bretarnir í hljómsveitinni Rolling Stones eiga víða aðdáendur og ekki síður á norðanverðum Vestfjörðum en annars staðar í heim- inum. Nú hafa vestfirskir unnendur sveitarinnar opnað sýningu um hljómsveitina og er það gert í tilefni þess að Stones á 60 ára starfsafmæli á árinu. Sýningin er í Safnahúsinu á Ísafirði en margir kannast við hús- ið sem teiknað var af Guðjóni Samúelssyni og var áður sjúkrahús. Sýningin opnaði 9. júlí og stendur til 10. ágúst. Segja má að við hæfi sé að sýningin sé opin um verslunar- mannahelgina en það var um verslunarmannahelgina árið 1999 sem Mick Jagger söngvari Stones sást óvænt á Ísafirði. Hjólaði hann m.a. um bæinn áður en Stones-aðdáendur urðu hans varir og gáfu sig á tal við Jagger. Munir frá Vestfjarðaheimsókn Jag- gers verða til sýnis en eftir því sem næst verður komist er hann sá eini úr sveitinni sem heimsótt hefur Ísland. Safnahúsið á Eyrartúni. Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson Sýning tileinkuð Stones Mick Jagger komst í hóp hinna umtöluðu Íslands- vina þegar hann gekk á land á Ísafirði. AFP Einni frægustu hljómsveit heims sómi sýndur í gamla sjúkrahúsinu Þriðjudaginn 18. mars árið 1986 sagði Morgunblaðið frá því á bls. 26 að úrslitin í söngvakeppni sjónvarpsins hefðu ráðist í beinni útsendingu í sjónvarpssal á laug- ardagskvöldinu. Gleðibankinn, lag Magnúsar Eiríkssonar, hefði þar með orðið fyrir valinu sem framlag Íslendinga til söngva- keppni evrópskra sjónvarps- stöðva. Í tveimur fréttum í blaðinu þennan daginn er orðið Eurovision hvergi að finna. „Viðstaddir útsendinguna voru ýmsir yfirmenn rík- isútvarpsins, höfundar laganna, fulltrúar fyrirtækja er þátt munu taka í gerð myndbanda er sýnd verða í öllum löndum er senda lag til keppninnar, blaðamenn og fleiri gestir,“ segir í blaðinu. Í annarri frétt blaðsins er sagt frá því að ekki liggi fyrir hvort Pálmi Gunnarsson muni flytja lagið einn í keppninni í Bergen eins og hann gerði í und- ankeppninni. Haft er eftir Agli Eðvarðssyni, sem kom að fram- kvæmd keppninnar, að mjög lík- legt sé að fleiri en einni söngvari muni flytja lagið í Noregi. Svo fór að Helga Möller og Eiríkur Hauksson sungu ásamt Pálma. GAMLA FRÉTTIN Fær Pálmi félagsskap? Hrafn Gunnlaugsson dagskrárstjóri sjónvarpsins og Magnús Eiríksson. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Fabien Barthez markvörður Tolli Morthens myndlistarmaður Guðjón Leifur Sigurðsson lýsingahönnuður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.