Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Blaðsíða 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Blaðsíða 5
engu fyrirætlanir FFSÍ. Var þá sem hlypi eldmóður í blaðnefndina. Í snarheitum var hinu nýja tímariti valið nafnið, Vík- ingurinn, Bárður sat yfir káputeiknaran- um og rak á eftir en í Ísafoldarprent- smiðju var setning blaðsins hafin. Um kvöldið og fram undir morgun kepptist ritstjórinn við að pakka Vík- ingnum; skera til pappírsarkir, líma og brjóta utan um eintökin sem átti að senda áskrifendum – og svo varð að skrifa utan á allan bunkann. Ásgeir vildi eitt blað Skeytin héldu áfram að ganga á milli FFSÍ og Fiskifélagsins. Orð Kristjáns Jónssonar, erindreka Fiskifélagsins fyrir vestan, um að FFSÍ ætti ekkert að skipta sér af fiskimönnum og útvegsmönnum, voru sem olía á eld. Hallgrímur Jónsson, fulltrúi í blaðnefnd FFSÍ og formaður Vélstjórafélags Íslands, skrifaði í Sjó- mannablaðið Víking í október 1939 og vandaði Kristjáni og Fiskifélaginu ekki kveðjurnar. „Hálfvelgju- og varfærnis- pólitík“ félagsins hefur fælt menn frá því, fullyrti Hallgrímur, og hnýtti við: „Mér detta í hug harðar umræður, sem urðu einu sinni við matborðið, er ég var á togara. Héldu hásetarnir því fram, að við vélstjórarnir værum alls ekki sjó- menn, og rökstuddu það með því, að við gengjum ekki í sjómannastökkum, jafn- vel ættum þá ekki til. Svipaðar eru röksemdir erindrekans og annarra, sem ekki eru nógu víðsýnir til þess að sjá, að eigi merki sjómanna- stéttarinnar ekki að falla í gras, þá þarf hún að hefja sig yfir hreppapólitík starfs- flokkanna og starfa sameinuð að einu marki.“ Forseti Fiskifélagsins, Kristján Bergs- son, varð líka fyrir hvössum skeytum á síðum Víkings. Honum var meðal annars ráðlagt „fá viðgerð á „toppstykkinu“. Ráðleggingin var að vísu birt nafnlaus en óneitanlega beinast böndin að sjálfum rit- stjóra Víkings, Bárði Jakobssyni. Þessi skrif, og fleiri í svipuðum dúr, birtust öll í Víkingnum og studdu ekki beinlínis að sameiningu tímaritanna tveggja enda var ekkert um hana rætt á Fiskiþingi 1940. Oddvitar Farmanna- og fiskimannafélagsins voru þó ekki úrkula vonar. Það vissu allir hvern hug Ásgeir Sig- urðsson, skipstjóri og fyrsti forseti Far- manna- og fiskimannasambands Íslands, bar til Víkingsins og sameiningarmál- anna. Ég vil eitt blað sjómanna, lýsti Ásgeir yfir í nýársgrein í Víkingnum árið 1942: „Samhent skipshöfn leysir oft vandasöm störf af hendi. Samhent sjómannastétt gæti velt stórum björgum.“ Og enn var skrifað um mikilvægi sam- einingar blaðanna. Það vantar vekjarann í starf Fiskifélagsins, staðhæfði Hallgrímur, formaður Vélstjórafélagsins, enda hafa stjórnvöld sniðgengið það og hreinlega vantreyst til „gagnlegra framkvæmda.“ – Þetta hefði ekki gerst ef Fiskifélagið stæði traustari fótum á landsbyggðinni en einmitt með Víkingnum er möguleiki að snúa þessari öfugþróun við, fullyrti Hall- grímur í árslok 1941. Hann berst nú inn á hátt á fjórða þúsund heimili og sér hver í hendi sér hver áhrif slíkt blað getur haft til að sameina og efla sjómannastéttina. Vestfirskir sjómenn voru á sama máli og sendu Fiskiþingi, sem þá stóð fyrir dyrum, eindregna áskorun um að taka þegar upp samstarf við FFSÍ um útgáfu sjómannablaðs. Greinilegt var að Ásgeir, og kannski líka Hallgrímur, áttu von á jákvæðari af- stöðu Fiskiþings en áður. Kristján, forseti Fiskifélagsins, var hættur og Davíð Ólafs- son kominn í hans stað. En þegar á hólminn kom reyndist Davíð ekki síður harður andstæðingur sameiningarinnar en Kristján. Áskorun þessi birtist í 1. tölublaði Víkings árið 1939. Frívaktin var strax komin á dagskrá í 2. til 3. tölublaði Víkings árið 1939 sem gerir Frívaktina að elsta dag- skrárlið blaðsins. Sjómannablaðið Víkingur – 5

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.