Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Blaðsíða 44
44 – Sjómannablaðið Víkingur
Fujairah í Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum að þau hefðu bannað notkun
opinna útblástunarhreinsibúnaðar á um-
ráðasvæði þeirra. Í júlí tilkynntu Kínverj-
ar að þeir hefðu í huga að setja bann við
losun í sjó frá þessum búnaði innan 12
sjómílna frá ströndum landsins. Þá hafa
yfirvöld í Belgíu, Þýskalandi, Írlandi og
Bandaríkjunum sett bann við losun á
ákveðnum svæðum.
Brotajárnsfréttir
Á fyrsta árshelmingi þessa árs voru 181
skip rifin í heiminum. Þar af voru 142
þeirra rifin í Suður Asíu þar sem enn er
notuð sú aðferð að sigla skipum á land til
niðurrifs. Slíkar aðferðir eru óheimilaðar
innan Evrópu sem og ekki er heimilt að
selja skip í eigu evrópskra útgerða til
niðurrifs hjá slíkum niðurrifskaupmönn-
um. Ástæðu þessa banns má rekja til
fjölda alvarlegra slysa á starfsmönnum
hjá þessum niðurrifsstöðvum en þrjú
banaslys og fjögur alvarleg slys urðu í
Bangladesh. Engin alvarleg slys voru þó
tilkynnt á þessu tímabili frá stöðvum í
Indlandi og Pakistan. Að vísu stöðvuðu
stjórnvöld í Pakistan í október s.l. niður-
rif skipa eftir röð alvarlegra slysa og hafa
um 70% verkamanna misst vinnu sína
síðustu sex mánuðina.
Í Evrópu er gert ráð fyrir að fjöldi
þjónustuskipa við borpalla fari brátt að
sigla síðustu mílurnar til niðurrifskaup-
manna en í kjölfar olíukreppunnar í
Norðursjó var mörgum skipum lagt og
liggja enn. Í dag er floti þessa skipa talinn
vera um 4.000 skip en af þeir eru 1.100
sem enn liggja verkefnalaus þrátt fyrir að
heldur hafi lifnað yfir þessum markaði.
Greiningaaðili hefur vakið athygli á því
að 500 þeirra skipa hafi legið lengur en í
þrjú ár án verkefna auk þess að vera flest
orðin eldri en 15 ára. Líkur á því að þessi
skip fái verkefni eru þverrandi og því
stutt í að þau sigli brátt í pottinn hjá
evrópskum niðurrifsstöðvum.
Utan heimi
Skorsteinn Lagarfoss hækkaði umtalsvert við að koma opnum útblátunarhreinsibúnaði fyrir í skipinu.
holabok.is / holar@holabok.is
GÚSTI var annálað
hraustmenni, kjarnyrtur
og bölvaði út í eitt og
ragnaði, en betra hjarta
var ekki til. Hann studdi
fátæk börn úti í heimi til
náms og gaf til þess
nánast allt sem hann
aflaði á litlu trillunni
sinni.
Þetta er sannkallað stórvirki
sem öllum er hollt að lesa!
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum samskiptin.