Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Blaðsíða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Blaðsíða 30
geymsla og geymslustaðir þeirra um borð í bátum að þróast og tók Einar virkan þátt í því enda eins og áður sagði áhugamaður um öryggismál sjómanna. Ekki var alltaf einhugur um þær breytingar sem áttu að vera til batnaðar. Í æviminningum sín- um EINAR Í BETEL segir Einar frá einu ágreiningsatriði hvað varðar fangalínu gúmmíbjörg- unarbáta en þar stendur meðal annars: „Línan sem opnar fyrir loftstreymið er jafnframt fanga- lína gúmmíbjörgunarbátsins. Mikið lá við að þessar línur héldu. Sorglegt var til þess að vita að þær áttu til með að slitna þegar verst stóð á og sjómenn í hafsnauð urðu að sjá á eftir björgunartækinu út í buskann. Fyrir beiðni skipstjóra og út- gerðarmanna breytti ég um línu og setti mun sterkari línu. Byggði ég þetta á reynslu manna sem bjargast höfðu í gúmmíbát, svo sem Þorleifi Guðjónssyni og skipshafnar hans á Glað VE. Þetta braut í bága við reglugerð. Kom nú Runólfur til mín sem yfirmaður minn, settur undir margar reglur. Bað hann mig blessaðan að hætta þessu því störf mín hjá skipaeftirlitinu væru í veði. Mjög var ég fúsari að láta af þeim heldur en að grenna líflínurnar. Það var mér og mál- staðnum til bjargar, að framleiðendur fóru sjálfir að setja sverari línur í bátana, voru þær úr ofnu næloni og sterkari en áður voru notaðar.“ Eyjamenn gerðu fleiri breytingar á búnaði gúmmíbátanna, settu t.d. í þá vasaljós og vatn sem ekki var í þeim áður. Þess skal getið að samkvæmt regl- um á þessum tíma átti fangalínan að hafa styrkleika upp á 180 kg en var seinna eftir miklar umræður og blaðaskrif styrkt í 360 kg. Það er fróðlegt að lesa blaða- greinar um þessi mál frá árinu 1962 þegar mikil umræða var um það að nauðstaddir sjómenn misstu frá sér gúmmíbátana áður en þeir komust í þá, þetta gerðist á þessum árum vegna þess að fangalínan slitnaði, var ekki nógu sterk til að halda bátunum í vondum veðrum jafnvel þótt þeir væru mannlaus- ir. Í dag er styrkur þessarar línu á 12 manna gúmmíbjörgunarbát um 1000 kg þannig að þarna var rétt að málum staðið hjá Einari eins og svo oft áður. Einar var skipaskoðunarmaður Siglingastofnunar ríkisins í 17 ár þar sem hann skoðaði meðal annars vél og skrúfubúnað samhliða skoðunum gúmmíbjörgunarbáta Vestmannaeyjaflot- ans. Þar gerði hann góða hluti sem bættu öryggi sjómanna. Ég held að vinna hans við þessi störf og hin tíðu sjóslys sem þá voru allt of algeng hafi kveikt hjá honum áhuga á öryggismálum. Einar skrifaði á sínum tíma blaða- greinar um öryggismál, meðferð gúmmí- báta og fleira tengt öryggismálum sjó- manna. Hann varð í sínu starfi vitni að ýmsu sem betur mátti fara til dæmis í geymslu gúmmíbjörgunarbáta og því kom hann á framfæri í blaðagreinum og viðtölum við sjómenn og útgerðar- menn. Í Sjómannadagsblað Vestmannaeyja skrifaði Einar eftirfarandi : „Þó svo að skip og fargögn öll séu í fullkomnu lagi, gúmbátur skoðaður og skipshöfn hafi kynnt sér ástand hans og notkun, á gúmbáturinn stöðugar hættur yfir sér, nema því betur sé fylgzt með ástandi hans um borð í bátunum. Óvin númer 1 tel ég nudd. Nái gúmbáturinn því að vera laus í kassanum (hylkinu), sem geymir bátinn, þá nuddast umbúðir og margfalt strigagúmlag efnisins, sem bát- urinn er gerður úr, fær á sig göt, sem engu lofti halda. Þetta vita sjómenn og útgerðarmenn. Herra skipaeftirlitsmaður Runólfur Jóhannsson hefur af sinni kunnu samvizkusemi, viti og handlagni fundið upp „patent“, sem hefur gefið ágæta raun. Allt nudd á að vera útilokað í kössum Runólfs sé þess gætt að hafa borðana, sem báturinn situr í, hæfilega stífa. „Patent“ Runólfs, sem hann hefur þó ekki tekið einka- rétt á, ætti að vera kunnugt um land allt og víðar og verða notað meira en er. Það gæfi ómetan- legt öryggi. Óvinur nr. 2 er raki. Er hann furðu lífseigur í árlegri skoðun og stafar eingöngu af of litlum dragsúg, sem þarf að myndast við loftgöt á kössun- um, er geyma bátana. Óvinur nr. 3 er eldur, sem gúmbáturinn stenzt ekki fyrir, ef magnað eld- haf nær honum. Af erlendum blöðum sé ég að óvinur nr. 4 sé rottan; ef hún kemst um borð í báta og skip, þá nagar hún allt er tönn á festir, umbúðir og sjálfan bátinn, til að komast í matarpakka bátsins. Síðast en ekki sízt má segja, að öll óhirða og trassaskapur sé höfuðóvinur þessara góðu, en í mörgu við- kvæmu tækja. Ósk mín til út- gerðarmanna og sjómanna í Vestmannaeyjum á sjómannadag 1962 er sú, að tæki þau, sem grein þessi fjallar um, megi njóta umhyggju sem sjáaldurs. Í því er öryggi, sem kemur að góðu á hættustund.“ Þarna er Einar að vitna í geymslu- kistur sem Runólfur Jóhannsson hann- aði fyrir gúmmíbáta og þóttu bera af fyrir gæði en það var oft sem kom fyrir að gúmmíbjörgunarbátarnir voru illa skemmdir eftir núning og raka þegar þeir höfðu verið í lélegum geymslukist- um í eitt ár, oftast geymdir uppi á stýris- húsi á þessum litlu bátum. Það tekur á menn Það tekur meira á en menn halda, fyrir þá sem hafa sterka ábyrgðartilfinningu að berjast fyrir bættu öryggi sjómanna, vera ábyrgur fyrir skoðunum gúmmí- björgunarbáta og einnig skoðun skipa og búnaði þeirra. Þessu starfi fylgir að vera vandvirkur og samviskusamur því líf sjó- manna veltur oft á að skip og búnaður sé í lagi þegar á reynir. Einar kemur inn á þetta í sínum æviminningum en þar seg- ir orðrétt: „Gúmmíbátaeftirlitinu fylgdi alltaf andlegt álag og sálarleg byrgði. Af þeim sökum gáfust margir kollegar mínir úti um landið upp við þetta starf .“ Ég held að þetta hafi verið rétt hjá Einari, og þetta á auðvitað líka við um skoðanir á skipi og öllum búnaði þess. Ef skip ferst sem skipaskoðunarmaður hefur skoðað, þá er gott að hafa það á hreinu Mokað frá minnisvarðanum á sjómannadaginn 1973. Ljósm: Guðmundur Sigfússon 30 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.