Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Blaðsíða 32

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Blaðsíða 32
að viðkomandi skoðunarmaður hafi skoðað skipið eftir bestu getu og reglum og hafi þannig góða samvisku. Vinna við sjómannadaginn Á Sjómannadaginn í Eyjum er ávallt haldin minningarathöfn og borinn blóm- sveigur að minnismerkinu við Landa- kirkju um þá sem hafa farist í sjóslysum, hrapað eða farist í flugslysum. Um þessa athöfn sá Einar J. Gíslason frá árinu 1957 til 1993 eða í 37 ár og gerði það óaðfinnanlega. Ég er viss um að í hugum sjómanna og þeirra sem voru viðstaddir þessar minningarathafnir var þetta eftir- minnilegasta stund sjómannadagsins í Vestmannaeyjum. Mér er minnisstætt að gosárið 1973 lét Sjómannadagsráð Vest- mannaeyja hreinsa ösku frá minnisvarð- anum og var Einar fenginn til að fara út í Eyjar með einkaflugvél til að flytja minn- ingarathöfn við minnisvarðann svo þessi þáttur sjómannadagsins félli ekki niður, þó hátíðarhöldin hafi að öðru leyti verið haldin í Reykjavík. Vestmannaeyingar hafa lengi verið í forustu hvað varðar öryggismál sjó- manna og þurft að hafa fyrir því að koma sínum sjónarmiðum um öryggis- búnaði á framfæri, má þar nefna gúmmí- björgunarbátana. Verðugt er að halda minningu þeirra manna á lofti sem unnu hér áður fyrr gott brautryðjendastarf að öryggismálum sjómanna, Einar J. Gísla- son var einn af þeim. Einar lést 14. maí 1998. Blessuð sé minning hans. Heimildir: Sjómannadagsblað Vestmannaeyja, Minn- ingargrein eftir Friðrik Ásmundsson, Einar í Betel æviminningar, Morgunblaðið. Gúmmíbátur sýndur á sjómannadaginn í Eyjum 1955. Ljósm: Friðrik Jesson Skúli Sveinsson, sem lést á síðasta ári, var einn af hinum nafnkunnu Hvannstóðs- bræðrum. Hann var stýrimaður, vert og ferðamálafrömuður og sóttu um 400 manns jarðarför hans, sem sýnir hversu vinsæll hann var. Á námsárum Skúla í Stýrimannaskólan- um á níunda áratug síðustu aldar var stofn- aður sérstakur styrktarsjóður sem nemend- ur voru látnir greiða í fyrir hverja önn. Síðan gátu þeir sótt um styrk úr sjóðnum ef þeir voru illa staddir fjárhagslega. Skúli hóf nám um haustið en hætti tímabundið um áramót. Ásgeir Logi, sonur Sæunnar Axels út- gerðarmanns, var í stjórn sjóðsins, ásamt Guðjóni Ármanni Eyjólfssyni skólastjóra. Þegar Skúli kemur svo á ný í skólann seinna um veturinn fara þeir að rukka hann aftur um gjald til sjóðsins sem hann var auðvitað búinn að borga um haustið. Skúli segir svo frá: „Ég er náttúrlega þrjóskur eins og ég á kyn til og vildi ekki borga þetta aftur og þeir voru með mér í þessu strákarnir þarna í skólanum að ég ætti ekki að gera það. Og svo er Guðjón alltaf að rukka mig og bú- inn að fá ritarann í lið með sér. Ég var nú orðinn helvíti leiður á tuðinu í karlinum þannig að ég fer í bankann og læt skipta upphæðinni allri, sem var eitthvað tvöþús- undkall þá, í krónur og fimmtíuaura. Síð- an fer ég með þetta inn á skrifstofu til karlsins og skelli pokanum með smáaurun- um á borðið. Hann var svolítið kindarleg- ur þegar hann tók við þessu en sagði seinna að hann hefði nú ekki talið þetta sjálfur!“ – * – Og Skúli heldur áfram: „Svo var Guðjón Ármann alltaf að setja eitthvað út á mig og segja mér að girða mig. Einu sinni sem oftar, í frímínútum á skólaganginum, innan um fullt af nemend- um, kallar hann yfir hópinn: „Skúli! Girtu þig, þarna.“ Og margendurtók þetta. Ég var nú orðinn leiður á þessu helvítis þrasi. Horfi svo á hann drykklanga stund og segi síðan: „Ja, þér veitti nú ekki af að greiða þér ef út í það er farið!“ En Guðjón Ármann er nauðsköllóttur eins og menn vita! Eftir þessa verkun steinhætti hann öllum aðfinnslum í garð Skúla. – * – Ný ráðskona kom til Skúla um sumarmál. Hún kynnti sig með þessum orðum: „Ég heiti Sigríður og ég er lesbísk.“ „Ég er það nú líka,“ svaraði Skúli. Þóttist nú Skúli hafa himin höndum tekið að fá konu til sín af svipaðri gerð. Leið nú og beið þangað til Sigríður hætti snögglega í vistinni og vissi Skúli ekki gjörla hver ástæðan var. Hann komst seinna að því að hér hefði orðið skemmtilegur misskilningur. Skúli var nefnilega lesblindur og hélt að stúlkan væri það líka! – * – Bjarni Sveins bróðir Skúla er oft skemmti- lega annars hugar og þá koma mörg gull- korn frá honum. Þeir voru saman til sjós Bjarni og Eiður frændi þeirra Hvannstóðs- manna. Bjarni fer að segja Eiði að hann hafi skotið álftir þegar hann var yngri og það væri besta ket sem hann hefði smakk- að. Síðan eru þeir frændur að búa sig í róður og stoppa aðeins á leiðinni út í höfn hjá Lómatjörn til að virða fyrir sér spekings- legar álftirnar. Bjarni er alveg hugfanginn og Eiður segir: „Þú færð bara vatn í munninn.“ Bangsi svarar náttúrlega engu enda í leiðslu yfir þessari fallegu sýn á tjörninni. Nema þegar þeir eru komnir út í höfn og búnir að leysa landfestar, þá kippist Bjarni allt í einu við, snýr sér að Eiði og segir: „Eiður. Hvað varstu að segja þarna áðan í sambandi við vatnið?“ Úr nýútkominni bók Gunnars Finnssonar „Það eru ekki svellin“, sögur og sagnir af Borgfirðingum. Taldi ekki sjálfur... 32 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.