Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Blaðsíða 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Blaðsíða 2
Efnis-ÍKINGURV 4. tbl. 2019· 81. árgangur · Verð í lausasölu kr. 1490 S J Ó M A N N A B L A Ð I Ð Gleðileg jól Sími: 444-3000 www.skeljungur.is SKIPAÞJÓNUSTA SKELJUNGS Alhliða þjónusta í sjávarútvegi, útgerð og vinnslu VÍKINGUR 80 ÁRA Sjómannablaðið Víkingur 80 ára. Kallinn í brúnni er að þessu sinni Víðir Jónsson skipstjóri á Kleifabergi RE. Hundgreyið var glorsoltið, áhöfnin sömuleiðis, en eigandi skipsins bar sig eins og auðkýfingur. Skipstjórinn Guðmundur Kr. Kristjánsson rifjar upp ferð sína til Antwerpen að ná í Ms. Skaftá, öðru nafni Múlafoss. Fyrstu togarar Íslendinga. Helgi Laxdal fjallar að þessu sinni um átta skip og endar á Kára Söl- mundarsyni RE Hinn hrímaði maður í lestinni er Ægir Oddgeirsson á Hákoni ÞH. Með DynIce renna upp nýir og byltingarkenndir tímar í fiskveiðum, er skoðun Hjartar Erlends- sonar, forstjóra Hampiðjunnar. Samherji heldur áfram að endurnýja skipaflotann. Laugardaginn 9. nóvember síðastliðinn lagðist nýr Harðbakur að bryggju á Akureyri. Einar J. Gíslason lét sér umhugað um öryggismál sjómanna. Hann var raunar meðal frumkvöðla í þeim efnum, segir Sigmar Þór Sveinbjörnsson. „Guðjón var alltaf að rukka mig.“ Hér segir af stýrimanninum Skúla Sveinssyni. Gunnar Finnsson rifjar upp. Samráð og samvinna í farmflutningum. Fjórði hluti greinar Páls Hermannssonar um gámavæðingu og áhrif hennar. Ljósmyndakeppni sjómanna. Togaramaður af lífi og sál. Hér segir Jón Þ. Þór af Tryggva Ófeigssyni. Úr nýrri bók Guðjóns Inga Eiríkssonar, „Hann hefur engu gleymt ... nema textunum!“, sem inni- heldur gamansögur úr íslenska tónlistarheiminum. Allt er nú til, sviðsett sjórán! Hilmar Snorrason fer út í heim. Vildi ekki skemma fiskinn. Úr nýútkominni bók Sigurðar Ægissonar um Gústa guðsmann. Hvaða kirkja er þetta Haraldur? Raddir af sjónum – og harða landinu Sjómenn og aðrir lesendur Víkings. Sendið okkur línu um efni blaðsins, gagn- rýni eða hrós, tillögur um efnisþætti og hugmyndir um viðtöl við áhugaverða sjó- menn, jafnt farmenn sem hina er draga fisk úr sjó. Hjálpið okkur að halda úti þættinum „Raddir af sjónum“. Netjið á jonhjalta@simnet.is Forsíðumyndina tók Haraldur Hjálmarsson. 4 10 20 18 24 26 28 32 34 38 40 12 41 42 46 50 Breyskleiki mannsins Við sem eru svo heppin að vera Íslendingar glímum við sömu annmarka og plagað hafa aðrar þjóðir um aldaraðir. Við eigum auðvelt með að falla fyrir freistingum. Aldrei á maðurinn þó erfiðara með að hemja sjálfan sig en þegar vel gengur og sannast þá oft hið fornkveðna að mikið vill meira. Hagfræð- ingar líta þetta velþóknunaraugum; vöxtur kallar á enn meiri vöxt, segja þeir, og undirstrika að fjármunir sæki þangað sem fjármunir eru fyrir. Hér hafa svo sannarlega risið öflug fyrirtæki sem veitt hafa nýju blóði inn í samfélagið. En stundum verður velgengnin til þess að við hættum okkur út á hálan ís. Ræðan góða Fyrir mörgum árum var ég viðstaddur þegar mikill athafna og dugnaðar- maður hélt ræðu yfir starfsfólki sínu. Þar lýsti hann því yfir að fyrirtækið stæði á ákveðnum tímamótum þar sem vöxtur þess og umsvif væru orðin af þeirri stærðargráðu að stjórnendurnir teldu að komið væri að mörkum þess sem þeir treystu sér til að hafa nægilega góða yfirsýn yfir, með það í huga að ákvarðanir og stjórntök yrðu áfram traust og markviss. Af fyrrgreindum ástæðum væri rétti tíminn til að staldra við og leggja áherslu á að rækta garðinn sinn innan frá og treysta framtíð fyrirtækisins með þeim hætti. Ég held að ég hafi ekki verið sá eini sem komst við og dáðist að þeirri skynsemi, varkárni og framtíðarsýn sem einkenndi boðskap ræðumanns. Hvað gerðist næst? Það sem gerðist í framhaldinu var, að í stað þess að yfirlýstum áformum yrði hrint í framkvæmd, þá var keyptur ráðandi hlutur í öðru stóru fyrirtæki og þar með fór boltinn að rúlla. Allar götur síðan hafa umsvifin aukist með ógnarhraða með fjárfestingum vítt og breitt í atvinnulífinu hérlendis sem er- lendis. Viðskipti sem vöktu undrun, gleði, reiði, aðdáun eða öfund, hafa endalaust átt sér stað og ýmist verið haldið hátt á lofti ellegar farið fram án áberandi tilstands. Mikill fjöldi starfsfólks hefur í gegn um tíðina notið góðs af þessum víð- feðma atvinnurekstri á meðan aðrir hafa hratað af vagninum á þessari veg- ferð af ýmsum ástæðum, stundum óverðskuldað. Lokaorð Fyrirtækið Samherji, flaggskips íslensks sjávarútvegs hefur oft í sinni tíð verið hlaðið lofi og það mært til skýjanna þótt stöku sinnum hafi inn á milli mátt heyra eða lesa neikvæða umfjöllun. Flaggskipið hefur allt frá stofnun siglt í blússandi byr seglum þöndum til móts við áskoranir framtíðarinnar en með umfjöllun RÚV um Namibíu útrásina er nú, flestum að óvörum brostin á foráttubræla með brotsjóum og straumhnútum sem dynja á fleyt- unni. Áfallið er gríðarlegt fyrir marga og alls óvíst hvort eða hvenær óveðr- inu slotar og hverjar afleiðingarnar komi til með að verða fyrir fyrirtækið og þjóðfélagið í heild. En aldrei hefur þó brælt svo mikið að ekki hafi lægt á ný. Óska sjómönnum, fjölskyldum þeirra og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á því ári sem framundan er. Árni Bjarnason Útgefandi: Völuspá útgáfa, Afgreiðsla og áskrift: 862 6515 / netfang: jonhjalta@simnet.is Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Hjaltason, sími 862 6515, netfang: jonhjalta@simnet.is Byggðavegi 101b, 600 Akureyri. Auglýsingastjóri: Katrín Laufey Rúnarsdóttir, sími 856 4250 / netfang: katalaufey@gmail.com Ritnefnd: Árni Bjarnason, Hilmar Snorrason og Jón Hjaltason. Prentvinnsla: Ásprent. Aðstandendur Sjómannablaðsins Víkings: Félag skipstjórnarmanna, Skipstjóra- og stýrimannafélögin Verðandi, og Vísir. Sjómannablaðið Víkingur kemur út fjórum sinnum á ári og er dreift til allra félagsmanna ofangreindra félaga. ISSN 1021-7231

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.