Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Side 2
Efnis-ÍKINGURV
4. tbl. 2019· 81. árgangur · Verð í lausasölu kr. 1490
S J Ó M A N N A B L A Ð I Ð
Gleðileg jól
Sími: 444-3000
www.skeljungur.is
SKIPAÞJÓNUSTA SKELJUNGS
Alhliða þjónusta í sjávarútvegi, útgerð og vinnslu
VÍKINGUR
80 ÁRA
Sjómannablaðið Víkingur 80 ára.
Kallinn í brúnni er að þessu sinni Víðir Jónsson
skipstjóri á Kleifabergi RE.
Hundgreyið var glorsoltið, áhöfnin sömuleiðis, en
eigandi skipsins bar sig eins og auðkýfingur.
Skipstjórinn Guðmundur Kr. Kristjánsson rifjar
upp ferð sína til Antwerpen að ná í Ms. Skaftá,
öðru nafni Múlafoss.
Fyrstu togarar Íslendinga. Helgi Laxdal fjallar að
þessu sinni um átta skip og endar á Kára Söl-
mundarsyni RE
Hinn hrímaði maður í lestinni er Ægir Oddgeirsson
á Hákoni ÞH.
Með DynIce renna upp nýir og byltingarkenndir
tímar í fiskveiðum, er skoðun Hjartar Erlends-
sonar, forstjóra Hampiðjunnar.
Samherji heldur áfram að endurnýja skipaflotann.
Laugardaginn 9. nóvember síðastliðinn lagðist nýr
Harðbakur að bryggju á Akureyri.
Einar J. Gíslason lét sér umhugað um öryggismál
sjómanna. Hann var raunar meðal frumkvöðla í
þeim efnum, segir Sigmar Þór Sveinbjörnsson.
„Guðjón var alltaf að rukka mig.“ Hér segir af
stýrimanninum Skúla Sveinssyni. Gunnar
Finnsson rifjar upp.
Samráð og samvinna í farmflutningum. Fjórði hluti
greinar Páls Hermannssonar um gámavæðingu
og áhrif hennar.
Ljósmyndakeppni sjómanna.
Togaramaður af lífi og sál. Hér segir Jón Þ. Þór
af Tryggva Ófeigssyni.
Úr nýrri bók Guðjóns Inga Eiríkssonar, „Hann
hefur engu gleymt ... nema textunum!“, sem inni-
heldur gamansögur úr íslenska tónlistarheiminum.
Allt er nú til, sviðsett sjórán! Hilmar Snorrason
fer út í heim.
Vildi ekki skemma fiskinn. Úr nýútkominni bók
Sigurðar Ægissonar um Gústa guðsmann.
Hvaða kirkja er þetta Haraldur?
Raddir af sjónum – og harða landinu
Sjómenn og aðrir lesendur Víkings.
Sendið okkur línu um efni blaðsins, gagn-
rýni eða hrós, tillögur um efnisþætti og
hugmyndir um viðtöl við áhugaverða sjó-
menn, jafnt farmenn sem hina er draga fisk
úr sjó. Hjálpið okkur að halda úti þættinum
„Raddir af sjónum“.
Netjið á jonhjalta@simnet.is
Forsíðumyndina tók
Haraldur Hjálmarsson.
4
10
20
18
24
26
28
32
34
38
40
12
41
42
46
50
Breyskleiki mannsins
Við sem eru svo heppin að vera Íslendingar glímum við sömu annmarka og
plagað hafa aðrar þjóðir um aldaraðir. Við eigum auðvelt með að falla fyrir
freistingum. Aldrei á maðurinn þó erfiðara með að hemja sjálfan sig en þegar
vel gengur og sannast þá oft hið fornkveðna að mikið vill meira. Hagfræð-
ingar líta þetta velþóknunaraugum; vöxtur kallar á enn meiri vöxt, segja
þeir, og undirstrika að fjármunir sæki þangað sem fjármunir eru fyrir.
Hér hafa svo sannarlega risið öflug fyrirtæki sem veitt hafa nýju blóði inn í
samfélagið. En stundum verður velgengnin til þess að við hættum okkur út
á hálan ís.
Ræðan góða
Fyrir mörgum árum var ég viðstaddur þegar mikill athafna og dugnaðar-
maður hélt ræðu yfir starfsfólki sínu. Þar lýsti hann því yfir að fyrirtækið
stæði á ákveðnum tímamótum þar sem vöxtur þess og umsvif væru orðin af
þeirri stærðargráðu að stjórnendurnir teldu að komið væri að mörkum þess
sem þeir treystu sér til að hafa nægilega góða yfirsýn yfir, með það í huga að
ákvarðanir og stjórntök yrðu áfram traust og markviss. Af fyrrgreindum
ástæðum væri rétti tíminn til að staldra við og leggja áherslu á að rækta
garðinn sinn innan frá og treysta framtíð fyrirtækisins með þeim hætti.
Ég held að ég hafi ekki verið sá eini sem komst við og dáðist að þeirri
skynsemi, varkárni og framtíðarsýn sem einkenndi boðskap ræðumanns.
Hvað gerðist næst?
Það sem gerðist í framhaldinu var, að í stað þess að yfirlýstum áformum yrði
hrint í framkvæmd, þá var keyptur ráðandi hlutur í öðru stóru fyrirtæki og
þar með fór boltinn að rúlla. Allar götur síðan hafa umsvifin aukist með
ógnarhraða með fjárfestingum vítt og breitt í atvinnulífinu hérlendis sem er-
lendis. Viðskipti sem vöktu undrun, gleði, reiði, aðdáun eða öfund, hafa
endalaust átt sér stað og ýmist verið haldið hátt á lofti ellegar farið fram án
áberandi tilstands.
Mikill fjöldi starfsfólks hefur í gegn um tíðina notið góðs af þessum víð-
feðma atvinnurekstri á meðan aðrir hafa hratað af vagninum á þessari veg-
ferð af ýmsum ástæðum, stundum óverðskuldað.
Lokaorð
Fyrirtækið Samherji, flaggskips íslensks sjávarútvegs hefur oft í sinni tíð
verið hlaðið lofi og það mært til skýjanna þótt stöku sinnum hafi inn á milli
mátt heyra eða lesa neikvæða umfjöllun. Flaggskipið hefur allt frá stofnun
siglt í blússandi byr seglum þöndum til móts við áskoranir framtíðarinnar
en með umfjöllun RÚV um Namibíu útrásina er nú, flestum að óvörum
brostin á foráttubræla með brotsjóum og straumhnútum sem dynja á fleyt-
unni. Áfallið er gríðarlegt fyrir marga og alls óvíst hvort eða hvenær óveðr-
inu slotar og hverjar afleiðingarnar komi til með að verða fyrir fyrirtækið og
þjóðfélagið í heild. En aldrei hefur þó brælt svo mikið að ekki hafi lægt á ný.
Óska sjómönnum, fjölskyldum þeirra og landsmönnum öllum gleðilegra
jóla og farsældar á því ári sem framundan er.
Árni Bjarnason
Útgefandi: Völuspá útgáfa,
Afgreiðsla og áskrift: 862 6515 / netfang: jonhjalta@simnet.is
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Hjaltason, sími 862 6515,
netfang: jonhjalta@simnet.is Byggðavegi 101b, 600 Akureyri.
Auglýsingastjóri: Katrín Laufey Rúnarsdóttir, sími 856 4250 / netfang: katalaufey@gmail.com
Ritnefnd: Árni Bjarnason, Hilmar Snorrason og Jón Hjaltason.
Prentvinnsla: Ásprent.
Aðstandendur Sjómannablaðsins Víkings:
Félag skipstjórnarmanna, Skipstjóra- og stýrimannafélögin Verðandi, og Vísir.
Sjómannablaðið Víkingur kemur út fjórum sinnum á ári
og er dreift til allra félagsmanna ofangreindra félaga.
ISSN 1021-7231