Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Side 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2019, Side 44
44 – Sjómannablaðið Víkingur Fujairah í Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum að þau hefðu bannað notkun opinna útblástunarhreinsibúnaðar á um- ráðasvæði þeirra. Í júlí tilkynntu Kínverj- ar að þeir hefðu í huga að setja bann við losun í sjó frá þessum búnaði innan 12 sjómílna frá ströndum landsins. Þá hafa yfirvöld í Belgíu, Þýskalandi, Írlandi og Bandaríkjunum sett bann við losun á ákveðnum svæðum. Brotajárnsfréttir Á fyrsta árshelmingi þessa árs voru 181 skip rifin í heiminum. Þar af voru 142 þeirra rifin í Suður Asíu þar sem enn er notuð sú aðferð að sigla skipum á land til niðurrifs. Slíkar aðferðir eru óheimilaðar innan Evrópu sem og ekki er heimilt að selja skip í eigu evrópskra útgerða til niðurrifs hjá slíkum niðurrifskaupmönn- um. Ástæðu þessa banns má rekja til fjölda alvarlegra slysa á starfsmönnum hjá þessum niðurrifsstöðvum en þrjú banaslys og fjögur alvarleg slys urðu í Bangladesh. Engin alvarleg slys voru þó tilkynnt á þessu tímabili frá stöðvum í Indlandi og Pakistan. Að vísu stöðvuðu stjórnvöld í Pakistan í október s.l. niður- rif skipa eftir röð alvarlegra slysa og hafa um 70% verkamanna misst vinnu sína síðustu sex mánuðina. Í Evrópu er gert ráð fyrir að fjöldi þjónustuskipa við borpalla fari brátt að sigla síðustu mílurnar til niðurrifskaup- manna en í kjölfar olíukreppunnar í Norðursjó var mörgum skipum lagt og liggja enn. Í dag er floti þessa skipa talinn vera um 4.000 skip en af þeir eru 1.100 sem enn liggja verkefnalaus þrátt fyrir að heldur hafi lifnað yfir þessum markaði. Greiningaaðili hefur vakið athygli á því að 500 þeirra skipa hafi legið lengur en í þrjú ár án verkefna auk þess að vera flest orðin eldri en 15 ára. Líkur á því að þessi skip fái verkefni eru þverrandi og því stutt í að þau sigli brátt í pottinn hjá evrópskum niðurrifsstöðvum. Utan heimi Skorsteinn Lagarfoss hækkaði umtalsvert við að koma opnum útblátunarhreinsibúnaði fyrir í skipinu. holabok.is / holar@holabok.is GÚSTI var annálað hraustmenni, kjarnyrtur og bölvaði út í eitt og ragnaði, en betra hjarta var ekki til. Hann studdi fátæk börn úti í heimi til náms og gaf til þess nánast allt sem hann aflaði á litlu trillunni sinni. Þetta er sannkallað stórvirki sem öllum er hollt að lesa! Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum samskiptin.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.