Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Side 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Side 4
Þ að var algengt hér áður fyrr að gæludýr væru um borð í togurun- um. Ég ætla að segja frá þremur gæludýrum sem ég var samskipa. Trína Árið 1962 bjuggum við í Skipasundi 8. Ég var þá skipstjóri á Þorkatli Mána þegar strákunum mínum var gefinn tík- arhvolpur af Thorsaraættinni. Það er að segja undan tík sem einn af sonum Thors gamla átti. Hún var hreinræktaður Íslendingur með upprétt eyru og spora og var nefnd Trína. Nú koma upp vand- ræði. Konan mín afsagði að hafa hana á heimilinu svo það varð úr að ég tók hana með mér um borð í Mánann og þar sýndi hún fljótt að hún var mjög greind. Hún var mest í brúnni en lærði fljótt að fara aftur í borðsal. Þá fór hún niður stiga, gang og þaðan niður annan stiga og gegnum vélarrúmið og upp stiga og þá var hún komin í ganginn við borð- salinn. Trína tók fljótt miklu ástfóstri við stýrimanninn, Magnús Ingólfsson. Á hverju kvöldi um kl. 21 gelti hún við hurðina sem lá að vélarrúminu. Síðan fór hún sem leið liggur aftur í káetu, stökk upp á hurðarhúninn á stýrimannsklefan- um, opnaði hurðina og ræsti Magga og mætti svo með honum upp í brú. Þegar Trína þurfti að losa sig eitthvað fór hún alltaf á sama stað aftast á bátadekkinu og ef það var bræla var farið með hana í bandi til öryggis. Trína og Ása Nú gerist það haustið 1962 að við erum að landa í Grimsby að bátsmaðurinn kemur um borð með kettling sem varla var orðinn sjáandi. Það varð uppi fótur og fit að halda lífinu í kettlingnum. Hann gat ekki lapið og illa gekk að koma mjólk upp í hann en Maggi stýrimaður kom með fína lausn. Hann bjó til túttu úr augndropagræjum. Trína hafði mikinn áhuga á kettlingn- um og stundum lá hún tímunum saman og hringaði sig utan um kettlinginn. Það má segja að þær urðu miklar vinkonur en kisan var læða, ákaflega falleg, brönd- ótt og þrílit, og fékk nafnið Ása í höfuðið á Ásgrími sem fann hana í kassa á mark- aðnum í Grimsby. Það var gaman að sjá hvernig þær umgengust hvor aðra, Trína og Ása. Þær sýndu vinahót með því að sleikja hvor aðra og Trína hringaði sig utan um Ásu. Svo gerist það að Ása er orðin kyn- þroska, við erum að koma úr utanlands- ferð og þegar hafnsögubáturinn kemur með tollarana stekkur Ása um borð í bátinn og fer með honum í land. Þegar við komum að bryggju er Ása þar mætt með stóran fresskött með sér. Þegar tími Ásu var kominn var gaman að fylgjast með þeim vinkonunum. Þegar fyrsti kettlingurinn fæddist tók Trína á móti honum og karaði hann með kisu og síðan koll af kolli en kettlingarnir urðu alls fjórir. Það var gaman að fylgjast með upp- eldinu á kettlingunum. Þegar kisa brá sér frá var Trína komin í bælið til þeirra og hringaði sig utan um kettlingana. Um haustið 1962 flutti kona mín úr Skipasundinu í Stóragerði 19 sem er rétt ofan við Borgarspítalann en þá var ég úti á sjó. Þegar ég kom í land bað ég vakt- manninn að passa að Trína færi ekki í land og lofaði hann því. Hann passaði sig ekki á því að Trína fór upp og niður rimlastiga svo hún slapp í land. Ég kom heim um fimmleytið um morguninn í leigubíl. Um klukkan 7.30 er gelt við dyrnar og þar er Trína komin. Hvernig hún gat þefað mig uppi er mér ráðgáta. Svo mikið er víst að hún hafði aldrei fyrr komið í Stóragerði. Þau urðu endalok Trínu að hún lenti undir bíl og slasaðist svo mikið að ég varð að láta svæfa hana. Við sáum mikið eftir Trínu. Hún var einstaklega skynsamt og gott dýr. Af Ásu Trína tók ástfóstri við stýrimanninn. Ragnar Franzson Þrjú gæludýr um borð 4 – Sjómannablaðið Víkingur Bangsi á vakt.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.