Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Page 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Page 18
Oftast er betra að menn tali tæpitungulaust, ekki síst þegar aðstæður eru eins og myndin sýnir. Á það leggur Jónas Haraldsson áherslu. Mynd: Þröstur Njálsson Jónas Haraldsson Að tala tungumálið sem skilst Þ ann tíma sem ég var til sjós í gamla daga lærði maður að ekki var talað eða dugði að tala ein- hverja tæpitungu til að gera sig skiljan- lega, hvað þá að verið væri oft að hlífa mönnum með því að tala við þá eitt- hvert rósamál. Þetta hefur fylgt manni eftir að maður hætti til sjós og ekki hefur maður alltaf fengið prik fyrir tján- ingarformið. Ætla ég hér á eftir að segja frá nokkrum tilvikum. Að sumum átti ég hlut sjálfur, önnur heyrði ég eða las um en allar eiga þessar frásagnir það sammerkt að vera góðar dæmisögur um það hvernig menn eiga að tala tungu- málið svo skiljist, þótt einhverjum þyki kannski ekki slíkt passa meðal siðaðra manna og kannski líka meðal lesenda Víkings, sem ég gef mér að flestir, kannski allir, hafi alið hluta ævinnar á sjó. Guffi! Áttu eitthvað? Um sumarið 1963 var ég háseti á Röðli GK – 518, sem átti að fara á ufsaveiðar og sigla með aflann til Þýskalands í beit- túr. Margir hásetarnir voru svaðblautir. Fljótlega eftir brottför var mér falið að ræsa hina vaktina. Gekk það sæmilega nema ekki var nokkur leið að ræsa einn, sem kallaður var Guffi. Reyndi ég kalla ræs og æpa og hrista hann þar sem hann snéri baki í mig í efri koju. Var ég búinn að reyna allt og var að því kominn að gefast upp og fara, þegar ég mundi eftir því að Guffi var að lengi að spyrja hina, sem fullir höfðu komið um borð: Áttu eitthvað? Var með því verið að kalla eftir síðustu dropunum af áfengi í skipinu, ef einhver ætti þá eitthvað eftir af guðaveig- unum. Gekk ég að kojunni aftur með þetta í huga og hvíslaði. „Guffi áttu eitt- hvað?“ Það var eins og við manninn mælt. Eins og byssubrandur slæmdi Guffi hendinni til mín, en ég vék mér undan og lét mig hverfa upp stigann. Guffi mætti á réttum tíma á vaktina. Þarna sannaðist fyrir mér rækilega, að maður þarf að tala tungumálið sem skilst og þarf ekki alltaf hávaða og læti til og dugar jafnvel stundum að hvísla til að hitta rétta tóninn. Finnski liðþjálfinn Um finnska liðþjálfann las ég einhvers staðar og hef oft hugsað til hans af ýms- um ástæðum. Sagan segir að liðþjálfi þessi hafi verið á göngu með herflokk sinn út í sveit, en þegar þeir eru að fara framhjá geðsjúkrahúsi, sjá þeir tilsýndar að eitthvað er í gangi og færa sig nær. Sjá þeir þá að uppi á þakinu á þessu fimm hæða húsi stendur einn sjúklingur og æpir og ullar á starfsmenn geðsjúkra- hússins, lækna og hjúkrunarfólk, sem standa á jörðinni og lætur öllum illum látum. Reyna þeir með öllum ráðum, blíðmælgi sem hótunum að fá sjúkling- inn til að koma niður, en án nokkurs árangurs. Liðþjálfanum blöskrar þetta árangursleysi og tekur til sinna ráða. Gengur hann að húsveggnum og leggur báða lófana á vegginn og spyrnir í og lítur síðan upp og kallar til geðsjúklings- ins: „Ef þú kemur ekki strax niður, þá velti ég húsinu um koll.“ Hafði þetta strax þau áhrif, að maður- inn kom í hvellinum niður, enda talaði liðþjálfinn tungumálið sem skildist, sem hinum hafði ekki tekist. Það getur verið að þið lesendur góðir hlægið að þessu. Reynið samt að setja ykkur í spor hins geðsjúka. Málið er að sjá hina hliðina á teningnum en ekki aðeins þá sem að ykkur snýr. Haldið þið virkilega að það sé eitthvað þægilegt að láta velta undan sér fimm hæða húsi og falla á steypta stéttina fyrir neðan og vera svo með hálsríg í marga daga á eftir? Rekið við í baði Eitt sinn hitti ég mann á götu, sem starf- aði í utanríkisþjónustunni, sem sagði við 18 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.