Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Qupperneq 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2016, Qupperneq 42
42 – Sjómannablaðið Víkingur F östudaginn 12. febrúar sl. fór fram ljósmyndakeppni sjómanna á Norð- urlöndum í Sjóminjasafninu í Hels- ingör, M/S Museet for Søfart, í Dan- mörku. Danska Velferðaþjónusta kaupskipa (Handelsflådens Velferdsråd) stóð fyrir keppninni að þessu sinni. Fulltrúar allra Norðurlandanna voru mættir til keppninnar en hvert land lagði fram 15 ljósmyndir sjómanna. Síð- an kom í hlut dómaranna að velja vinn- ingsmyndir. Dómarar að þessu sinni voru þeir Søren Lund Hviid blaðamaður og ljósmyndari danska blaðsins Søfart og ljósmyndarinn Anders Skjoldjensen frá Politiken. Allar myndirnar höfðu verið valdar í undankeppnum í hverju landi fyrir sig. Dómararnir áttu erfitt verk fyrir hönd- um og að tveimur tímum liðnum var loks komið að úrslitastundu keppninnar. Völdu þeir, auk fimm vinningsmynda, þrjár myndir í heiðurssæti en þær mynd- ir hlutu ekki verðlaun. Að þessu sinni urðu hvorki finnskir né okkar íslensku sjómenn hlutskarpastir í keppninni þrátt fyrir afspyrnu góðar myndir okkar manna að mati Sjómannablaðsins Vík- ings. Á undanförnum árum hafa okkar þátttakendur þó náð mjög góðum ár- angri í keppninni. Sigurvegari keppninnar að þessu sinni var sænski vélstjórinn Rikard Lavitskij sem starfar á skemmtiferðaskipum hjá Star Cruises með mynd sinni „Hvíld í Tælandi“. Dómararnir voru einhuga um myndina í fyrsta sætið en hún vekur upp spurningar hjá áhorfandanum um hvort hér séu á ferðinni flóttamenn, hafnar- verkamenn eða skipverjar sem eru í hvíld. Myndin kalli fram margar hugsan- ir hjá áhorfandanum og hvernig hann skilji myndina. Mynd sem tekin er frá skipi við bryggju er staðsetning sem ekki er allra að komast í. Hlýtur Rikard að launum ljósmyndabúnað fyrir 5.000 danskar krónur sem Ulykkesforsikrings- forbundet for Dansk Søfart gaf. Í öðru sæti varð mynd norska skip- stjórans Geir Magne Skjølsvik á gas- flutningaskipinu LNG Ondo. Ljós- myndin sem hann kallar „Gaddavír á borðstokknum gegn ránum“ var tekin í Visakhapatnam í Indlandi og að mati dómaranna sýnir myndin vel nútíma sjó- mennsku og raunveruleika sem sjómenn standa frammi fyrir. Áhugaverð mynd sem skiptist í þrjá þætti, Nato gaddavír í forgrunni sem bendir á sjóræningja. Hverjir eru svo mennirnir í bátnum fyrir miðri mynd? Hvað sem þar er á ferðinni undirstrikar kaupskipið í bakgrunni heildarmyndina. Geir fær að launum ljósmyndabúnað fyrir 5.000 norskar krónur sem Norska Siglingamálastofnun- in, Sjøfartsdirektoratet, gaf. Þriðja sætið kom í hlut danska skip- stjórans Finn Hansen á gámaskipinu Robert Mærsk. Myndina kallaði hann „Björgun flóttamanna norður af Líbýu.“ Mat dómaranna var að hér væri yfirvél- stjórinn, stýrimaðurinn, lærlingurinn eða hver sem það nú væri við myndavélina og bak við hana. Hann eða hún yfirstigu persónuleg mörk til að skrásetja söguna auk þess að sýna hvað líf sjómannsins hefur upp á að bjóða. Að launum fékk Finn 5.000 sænskar krónur sem tímaritið Sjöfartstidningen gaf til kaupa á ljós- myndabúnaði. Í fjórða sæti kom mynd Danans Pat- rick Sommer sem er á þjónustuskipinu Esvagt Froude. Mynd hans, „Innlit inn í framtíðina“, er tekin af toppi vindmyllu- túrbínu á Baltic II svæðinu sem er vind- myllugarður í þýskri landhelgi í Austur- sjó. Dómarar fundu hér nýtt sjónarhorn auk þess að myndin væri vel uppsett af nýrri tegund danskrar sjómennsku. Vindurinn væri að koma í stað olíu en vindurinn verður stöðugt meiri hluti af útgerð og sjómennskunni. Verðlaunin sem Patrick hlýtur er ljósmyndabúnaður að upphæð €450 sem HB Grandi gaf. Sjómannablaðið Víkingur færir út- gerðinni hugheilar þakkir fyrir að hafa styrkt keppnina með verðlaunum fyrir fjórða sætið. Fimmta sætið hlaut margfaldur sigur- vegari keppninnar fyrr á árum en það er sænski brytinn Jörgen Språng á olíuskip- inu Bit Okland sem til margra ára hafði reglulega viðkomu í Reykjavík. Mynd Jörgens nefnir hann „Lennart“ og var mat dómara að hér sé komið mjög ná- lægt því sem maðurinn er að vinna. Það sé mikilvægt af ljósmyndara að þora að koma alveg upp að þeim sem hann myndar. Þar fyrir utan þá fangar ljós- myndarinn kappsemi og einbeitni fyrir- myndarinnar. Fær hann að launum ljós- myndabúnað upp á € 300 sem finnska útgerðin Finnlines gefur. Heiðursmyndirnar voru þrjár eins og áður hefur komið fram en þær hlutu ekki nein verðlaun en dómurunum þóttu myndirnar áhugaverðar. Sú fyrsta var mynd Remigusz Piotrowski frá Dan- mörku en hann er yfirstýrimaður á Tasing Swan. Dómurunum þótti myndin vera skondin. Þá var það mynd Jörgen Språng sem einnig hlaut fimmtu verðlaun en myndina kallar hann „Charlie“ en hún sýnir vel daglegt líf um borð og að þeir séu í augnsambandi. Þriðja myndin var tekin af Svíanum Tim Ruttledge sem er skipstjóri á tank- skipinu Fure West. Myndina kallar hann „Tank man“ en dómurunum fannst myndin áhugaverð þar sem þetta gæti verið arkitektúr eða jafnvel kirkja. Fyrir áhugasama þá er að finna mynd- band á youtube.com frá keppninni en slóðin er http://youtu.be/dzJYk576cUA. Myndbandið er á síðu velferðarstofnunn- ar finnskra sjómanna. Framundan er næsta keppni og því ekki ráð nema í tíma sé tekið. Nú er fyrir ykkur sjómenn að munda myndavélarn- ar í gríð og erg og freista þess að ná góð- um úrslitum fyrir okkar hönd í næstu keppni. Undankeppnin er þegar hafin og er hægt að senda nú þegar myndir inn í næstu keppni á netfangið iceship@ heimsnet.is. Reglur keppninnar eru afar einfaldar. Ljósmyndarinn þarf að vera sjómaður eða fyrrum sjómaður. Ljós- myndari telst sá sem ýtti á afsmellarann en ekki endilega eigandi myndavélarinn- ar. Myndir sem settar eru saman af fleiri en einni ljósmynd eru ekki gjaldgengar. Þá eru myndasmiðir beðnir um að hafa ekki vatnsmerki á myndum sínum. Hverjum ljósmyndara er ætlað að gefa myndum sínum nafn, lýsandi fyrir myndina. Góða skemmtun. Norræna ljósmyndakeppnin Hilmar Snorrason skipstjóri

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.