Mosfellingur - 24.02.2022, Blaðsíða 29
Aðsendar greinar - 29
Eitt af meginverkefnum sveitafélaga eru
skipulagsmál. Á vettvangi sveitarstjórn-
armála er oft rætt af miklum þunga um
mikilvægi þess að skipulagsvaldið sé hjá
sveitafélögunum til þess að undirstrika
sjálfstæði þeirra við að móta samfélagið
eftir vilja þeirra sem það byggja. Samt
veltum við skipulagsmálum sjaldnast
fyrir okkur nema kannski þegar kemur
að því að gera eigi breytingar í okkar næsta
umhverfi.
Einn veigamikill þáttur í skipulagi er að
móta umhverfið þannig að það stuðli að
fjölbreyttu og mannvænu umhverfi. Ein
leið að því markmiði er að góð blöndun
sé í hverfum með tilliti til aldurs og efna-
hags þeirra sem þar búa. Þetta getum við
gert með því að skipuleggja mismunandi
húsagerðir á nýjum byggingarreitum og að
bjóða upp á mismunandi búsetuform sem
henta mismunandi hópum.
Hamraborgarreitur
Nú er í skipulagsferli svokallaður Hamra-
borgarreitur sem afmarkast af Langatanga,
Bogatanga og bensínstöð Olís. Í þeim tillög-
um sem liggja fyrir er gert ráð fyrir bland-
aðri byggð af einbýlishúsum, raðhúsum og
fjölbýlishúsum.
Umræddur byggingarreitur er gæddur
mörgum kostum m.a. hvað varðar stað-
setningu þar sem öll helsta þjónusta og
verslun er í göngufæri og stutt er í góðar
samgöngur, hver sem ferðamátinn er.
Einnig mun fyrirhuguð Borgarlína liggja
nálægt skipulagsreitnum. Mikill skortur
hefur verið á ódýru og öruggu
leiguhúsnæði hér í bæ eins og
víðar á landinu fyrir tekjulága
einstaklinga og fjölskyldur á
vinnumarkaði.
Bjarg íbúðafélag
Í kosningastefnu Samfylk-
ingarinnar fyrir kosningar
2018 lagði flokkurinn áherslu á að samstarf
yrði tekið upp við óhagnaðardrifin leigufé-
lög um uppbyggingu leiguíbúða.
Í samræmi við þá áherslu flokksins lagði
undirritaður fram tillögu í skipulagsnefnd
um að bæjaryfirvöld settu sig í samband
við Bjarg íbúðafélag og ræddu hvort hér
væri ekki á ferðinni vænlegur kostur til að
byggja fjölbýli á þeirra vegum þar sem þeir
kostir sem ég hef tiltekið falla mjög vel að
hugmyndum félagsins.
Skipulagsnefnd samþykkti einróma að
vísa tillögunni til bæjarráðs til skoðunar.
Bæjarráð samþykkti að vísa tillögunni
til bæjarstjóra til afgreiðslu í tengslum
við þau samskipti sem nú eiga sér stað á
milli Mosfellsbæjar og Bjargs íbúðafélags
varðandi mögulega uppbyggingu í Mos-
fellsbæ.
Vonandi veit það á gott og áður en langt
um líður verði hafist handa við uppbygg-
ingu á góðu og öruggu leiguhúsnæði á
vegum Bjargs íbúðafélags fyrir tekjulága
íbúa í Mosfellsbæ.
Ólafur Ingi Óskarsson,
áheyrnarfulltrúi S-lista í skipulagsnefnd.
Leiguíbúðir í Mosfellsbæ
Sendið okkur myndir af nýjum Mosfellingum ásamt
helstu upplýsingum á mosfellingur@mosfellingur.is