Mosfellingur - 24.02.2022, Blaðsíða 8
Ingólfur Hrólfsson formaður
s. 855 2085 ihhj@simnet.is
Úlfhildur Geirsdóttir varaformaður
s. 896 5700 bruarholl@simnet.is
Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri
s. 863 3359 margretjako@gmail.com
Snjólaug Sigurðardóttir ritari
s. 897 4734 snjolaugsig@simnet.is
Kristbjörg Steingrímsdóttir meðstjórnandi
s. 898 3947 krist2910@gmail.is
Jóhanna B. Magnúsdóttir 1. varamaður
s. 899 0378 hanna@smart.is
Þorsteinn Birgisson 2. varamaður
s. 898 8578 thorsteinn.birgis@gmail.com
StJÓrn FaMoS
Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu
Skrifstofa félagsstarfsins er opin
alla virka daga kl. 13–16. Sími félags-
starfsins er 586-8014. Forstöðumaður
félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ
er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda-
og félagsmálafræðingur, s: 698-0090.
Skrifstofa FaMos á Eirhömrum
er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16.
FélaG aldraðra
í Mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
- Fréttir úr bæjarlífinu8
aðalfundur FaMos-2022
Aðalfundur FaMos verður haldinn
í Harðarbóli, félagsheimili hesta-
mannafélagsins Harðar, mánudaginn
28. febrúar klukkan 20:00.
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins.
Að loknum aðalfundarstörfum
mun Helgi R. Einarsson skemmta
okkur með gítar við hönd og limrur á
takteinunum.
Að lokum verður boðið upp á kaffi og
rjómabollur í tilefni dagsins.
Enginn aðgangseyrir.
Með kveðju, stjórn FaMos.
danS, danS, danS :)
Lokins getum við farið að dansa aftur
saman með Auði Hörpu og ætlum
við að byrja miðvikudaginn 2. mars
kl. 14:15. Kennt verður í íþróttahús-
inu að Varmá, þar er rúmgott að vera.
Endilega verið með, nóg pláss og
frábær hreyfing, mánuðurinn kostar
4.000 krónur og greiðist á staðnum
(erum ekki með posa). Lágmarks-
þátttaka er 25 manns. Í dansleikfimi
er blandað saman gamalli og nýrri
tónlist við alls konar dansspor og
leikfimi, línudans, zumbagold og
alls konar spor og úr verður frábær
skemmtun við skemmtilega tónlist.
Dansleikfimi hentar öllum konum og
körlum, jafn byrjendum sem lengra
komnum.
Skráning er nauðsynleg í síma
6980090 (Elva) eða á elvab@mos.is.
Kærleikskveðja, Auður Harpa dans-
kennari og íþróttanefnd FaMos.
BInGÓ
Þriðjudaginn 8. mars kl. 13:30.
Bingónefnd FaMos ætlar að halda
bingó í borðsal Eirhamra. Eitt spjald,
kaffi og meðlæti kostar 1.000 kr.
og aukaspjald 400 kr. Glæsilegir
vinningar í boði.
Hlökkum til að sjá þig.
Gler/leir námskeið
- loksins laus pláss
Laus pláss á sívinsælt gler/leir nám-
skeið hjá Fríða Sigurðardóttur sem
hefur í mörg ár kennt glervinnslu
og leirkennslu hjá eldri borgurum.
Endilega skráið ykkur í síma 6980090
eða á elvab@mos.is. Námskeiðsdagar
eru mánudagar og miðvikudagar.
Félagsvist
Minnum á að alla föstudaga er spiluð
félagsvist kl. 13:00 í borðsal Eirhamra.
Allir velkomnir að vera með og
aðgangur ókeypis.
GaMan SaMan
Er loksins byrjað aftur annan hvern
fimmtudag í borðsal Eirhamra kl.
13:30. Næstu dagsetningar eru 24.
feb., 10. og 24. mars. Verið hjartan-
lega velkomin. Kaffi og meðlæti selt
eftir skemmtun í matsal á 500 krónur.
Hefur þú gaman af
því að mála á postulín?
Vertu með okkur að mála á postulín.
Ekki er um formlegt námskeið að
ræða heldur samveru og samvinnu
þeirra sem
hafa áhuga
á að mála á
postulín. Hægt
er að brenna á
staðum gegn
vægu gjaldi.
Hópurinn
hittist vikulega
kl. 11:30 þriðjudaga aðra vikuna og
fimmtudaga hina vikuna. Ef þú hefur
áhuga á að vera með endilega hafðu
samband við okkur í félagsstarfinu
og skráðu þig á blað í handverksstofu
eða í síma 586-8014 kl. 11:00-16:00
eða á elvab@mos.is
P.s. Ef þið lumið á gömlum postulíns-
litum sem þið eruð hætt að nota þá
þiggjum við þá með þökkum.
Tónlistarmaðurinn Bjarni Ómar er fluttur í Mosó og lætur m.a. til sín taka á Barion • Bregður sér í hlutverk Bubba
gEfur út plötur á tíu ára frEsti
Undanfarið ár hefur tónlistarmaðurinn Bjarni Ómar
spilað reglulega fyrir gesti á Barion og getið sér gott orð
fyrir vandaðan tónlistarfluting. Hann flutti í Mosfellsbæ-
inn ásamt eiginkonu sinni Öldu Guðmundsdóttur fyrir
rúmu ári en þau keyptu sér íbúð í einni nýbyggingunni
í Bjarkarholtinu.
„Ég er fæddur á Akureyri en ólst upp á Raufarhöfn
frá fimm ára aldri,“ segir Bjarni Ómar sem starfar sem
sérfræðingur á kjarasviði Sambands íslenskra sveitarfé-
laga.
„Samhliða aðalstarfi hef ég alltaf fengist við tónlist og
tónlistarflutning. Ég hef komið fram sem söngvari og
gítarleikari í rúm 30 ár við dansleikja- og tónleikahald
víðsvegar um landið og þá lengst af í hljómsveitum með
vinum mínum og félögum frá Raufarhöfn.“
Hver eru helstu tónlistarverkefnin í dag?
„Núna er ég söngvari og gítarleikari í hljómsveitunum
Kokkteil frá Raufarhöfn og Sífrera sem báðar eru svona
tilfallandi ballbönd og svo er það Nostal sem er virkasta
bandið en við æfum reglulega einu sinni í viku allan árs-
ins hring nema yfir heitasta sumartímann.
Nostal spilar á tónleikum nokkrum sinnum á ári og
æfir og spilar bæði frumsamið efni en tekur líka fyrir
einstaka tónlistarmenn eða hljómsveitir. T.d. spiluðum
við á Barion í nóvember þar sem við fluttum lög hljóm-
sveitanna Uriah Heep, Deep Purple og Rainbow við góðar
undirtektir.
Svo er ég í skemmtilegu verkefni í Borgarleikhúsinu
þessa dagana þar sem ég tek þátt í sýningunni Níu líf.
Kem þar inn í miðja sýningu og læt ljós mitt skína.
Ég hef reyndar alltaf gert í því að flytja lög Bubba og
hef um nokkurra ára skeið verið með efnisskrá sem ég
kalla „Í hlutverki Bubba“ en það varð til löngu áður en ég
ákvað að að láta reyna á að komast inn í Níu líf.“
Þú ert þá að semja eigin tónlist og gefa út plötur?
„Já, ég ég setti mér það markmið fyrir rúmum 30
árum að gefa út hljómplötu með eigin efni á a.m.k. tíu
ára fresti. Fyrsta sólóplata mín, Annað líf, 12 laga plata
kom út árið 1998, Fyrirheit kom út árið 2008 en á henni
eru 12 melódísk og róleg popplög sem samin voru yfir
stutt tímabil árin 2007-2008. Árið 2018 kom svo út nýjasta
platan Enginn vafi en á henni eru 13 lög.
Fyrst og fremst er ég að gefa út plötur fyrir sjálfan mig
en auðvitað vonar maður alltaf að aðrir njóti tónlistar-
innar. Það hefur alveg gengið eftir og plöturnar fengið
ágæta dóma og þokkalega spilun á tónlistarveitum.“
Hvert er viðfangsefni nýjustu plötunnar?
„Ég er að gera upp tímabil þar sem ég gekk í gegnum
veikindi, m.a. krabbamein, erfið samskipti, missi og
skilnað en líka nýtt upphaf á gömlum grunni með viljann
og bjartsýnina að vopni.
Platan er býsna persónuleg, of persónuleg finnst sum-
um, því lagasmíðarnar og textarnir hafa sprottið upp úr
þessum jarðvegi erfiðrar lífsreynslu. Sú reynsla fékk mig
til að takast á við lífið og tilveruna með nýju og jákvæðu
hugarfari. Nú nálgast ég lífið á hamingjuríkari hátt og
er svo ótrúlega heppinn að hafa tekið upp sambúð með
Öldu minni aftur og gifst henni í þetta skiptið og auðvitað
flutt í Mosó.“
Og hvað er svo fram undan?
„Ég er að hefja upptökur á fjórðu sólóplötunni sem
kemur vonandi út ekki síðar en á árinu 2023. Á plötunni
verða meðal annars þrjú lög sem ég samdi fyrir skírnir
barnabarnana svona út frá afahlutverkinu.
Nokkur kvöld eru svo bókuð á Barion fram að sumar-
byrjun. Fyrst er að nefna að ég flyt Bubba prógrammið „Í
hlutverki Bubba“ laugardaginn 26. febrúar. Laugardaginn
19. mars, og um páskana, laugardaginn 16. apríl held ég
uppi stuðinu á Barion með blandaðri tónlist úr öllum
áttum. Nostal endurtekur svo Uriha Heep og Rainbow
efnið á Barion föstudaginn 1. apríl og kemur svo aftur
með rísandi sól þann 28. maí og spilar lög frá hljómsveit-
um Bubba.
Vona ég að Mosfellingar og nærsveitungar láti sjá sig á
þessum kvöldum því ég lofa fyrst og fremst skemmtilegri
kvöldstund.“
bjarni ómar hefur fengist
við tónlist í rúm 30 ár
Fyrir þá sem vilja kynna sér tónlist Bjarna Ómars
geta t.d. gert það á Facebook, Spotify og Youtube.