Mosfellingur - 24.02.2022, Page 8

Mosfellingur - 24.02.2022, Page 8
Ingólfur Hrólfsson formaður s. 855 2085 ihhj@simnet.is Úlfhildur Geirsdóttir varaformaður s. 896 5700 bruarholl@simnet.is Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri s. 863 3359 margretjako@gmail.com Snjólaug Sigurðardóttir ritari s. 897 4734 snjolaugsig@simnet.is Kristbjörg Steingrímsdóttir meðstjórnandi s. 898 3947 krist2910@gmail.is Jóhanna B. Magnúsdóttir 1. varamaður s. 899 0378 hanna@smart.is Þorsteinn Birgisson 2. varamaður s. 898 8578 thorsteinn.birgis@gmail.com StJÓrn FaMoS Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu Skrifstofa félagsstarfsins er opin alla virka daga kl. 13–16. Sími félags- starfsins er 586-8014. Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur, s: 698-0090. Skrifstofa FaMos á Eirhömrum er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16. FélaG aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni famos@famos.is www.famos.is - Fréttir úr bæjarlífinu8 aðalfundur FaMos-2022 Aðalfundur FaMos verður haldinn í Harðarbóli, félagsheimili hesta- mannafélagsins Harðar, mánudaginn 28. febrúar klukkan 20:00. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins. Að loknum aðalfundarstörfum mun Helgi R. Einarsson skemmta okkur með gítar við hönd og limrur á takteinunum. Að lokum verður boðið upp á kaffi og rjómabollur í tilefni dagsins. Enginn aðgangseyrir. Með kveðju, stjórn FaMos. danS, danS, danS :) Lokins getum við farið að dansa aftur saman með Auði Hörpu og ætlum við að byrja miðvikudaginn 2. mars kl. 14:15. Kennt verður í íþróttahús- inu að Varmá, þar er rúmgott að vera. Endilega verið með, nóg pláss og frábær hreyfing, mánuðurinn kostar 4.000 krónur og greiðist á staðnum (erum ekki með posa). Lágmarks- þátttaka er 25 manns. Í dansleikfimi er blandað saman gamalli og nýrri tónlist við alls konar dansspor og leikfimi, línudans, zumbagold og alls konar spor og úr verður frábær skemmtun við skemmtilega tónlist. Dansleikfimi hentar öllum konum og körlum, jafn byrjendum sem lengra komnum. Skráning er nauðsynleg í síma 6980090 (Elva) eða á elvab@mos.is. Kærleikskveðja, Auður Harpa dans- kennari og íþróttanefnd FaMos. BInGÓ Þriðjudaginn 8. mars kl. 13:30. Bingónefnd FaMos ætlar að halda bingó í borðsal Eirhamra. Eitt spjald, kaffi og meðlæti kostar 1.000 kr. og aukaspjald 400 kr. Glæsilegir vinningar í boði. Hlökkum til að sjá þig. Gler/leir námskeið - loksins laus pláss Laus pláss á sívinsælt gler/leir nám- skeið hjá Fríða Sigurðardóttur sem hefur í mörg ár kennt glervinnslu og leirkennslu hjá eldri borgurum. Endilega skráið ykkur í síma 6980090 eða á elvab@mos.is. Námskeiðsdagar eru mánudagar og miðvikudagar. Félagsvist Minnum á að alla föstudaga er spiluð félagsvist kl. 13:00 í borðsal Eirhamra. Allir velkomnir að vera með og aðgangur ókeypis. GaMan SaMan Er loksins byrjað aftur annan hvern fimmtudag í borðsal Eirhamra kl. 13:30. Næstu dagsetningar eru 24. feb., 10. og 24. mars. Verið hjartan- lega velkomin. Kaffi og meðlæti selt eftir skemmtun í matsal á 500 krónur. Hefur þú gaman af því að mála á postulín? Vertu með okkur að mála á postulín. Ekki er um formlegt námskeið að ræða heldur samveru og samvinnu þeirra sem hafa áhuga á að mála á postulín. Hægt er að brenna á staðum gegn vægu gjaldi. Hópurinn hittist vikulega kl. 11:30 þriðjudaga aðra vikuna og fimmtudaga hina vikuna. Ef þú hefur áhuga á að vera með endilega hafðu samband við okkur í félagsstarfinu og skráðu þig á blað í handverksstofu eða í síma 586-8014 kl. 11:00-16:00 eða á elvab@mos.is P.s. Ef þið lumið á gömlum postulíns- litum sem þið eruð hætt að nota þá þiggjum við þá með þökkum. Tónlistarmaðurinn Bjarni Ómar er fluttur í Mosó og lætur m.a. til sín taka á Barion • Bregður sér í hlutverk Bubba gEfur út plötur á tíu ára frEsti Undanfarið ár hefur tónlistarmaðurinn Bjarni Ómar spilað reglulega fyrir gesti á Barion og getið sér gott orð fyrir vandaðan tónlistarfluting. Hann flutti í Mosfellsbæ- inn ásamt eiginkonu sinni Öldu Guðmundsdóttur fyrir rúmu ári en þau keyptu sér íbúð í einni nýbyggingunni í Bjarkarholtinu. „Ég er fæddur á Akureyri en ólst upp á Raufarhöfn frá fimm ára aldri,“ segir Bjarni Ómar sem starfar sem sérfræðingur á kjarasviði Sambands íslenskra sveitarfé- laga. „Samhliða aðalstarfi hef ég alltaf fengist við tónlist og tónlistarflutning. Ég hef komið fram sem söngvari og gítarleikari í rúm 30 ár við dansleikja- og tónleikahald víðsvegar um landið og þá lengst af í hljómsveitum með vinum mínum og félögum frá Raufarhöfn.“ Hver eru helstu tónlistarverkefnin í dag? „Núna er ég söngvari og gítarleikari í hljómsveitunum Kokkteil frá Raufarhöfn og Sífrera sem báðar eru svona tilfallandi ballbönd og svo er það Nostal sem er virkasta bandið en við æfum reglulega einu sinni í viku allan árs- ins hring nema yfir heitasta sumartímann. Nostal spilar á tónleikum nokkrum sinnum á ári og æfir og spilar bæði frumsamið efni en tekur líka fyrir einstaka tónlistarmenn eða hljómsveitir. T.d. spiluðum við á Barion í nóvember þar sem við fluttum lög hljóm- sveitanna Uriah Heep, Deep Purple og Rainbow við góðar undirtektir. Svo er ég í skemmtilegu verkefni í Borgarleikhúsinu þessa dagana þar sem ég tek þátt í sýningunni Níu líf. Kem þar inn í miðja sýningu og læt ljós mitt skína. Ég hef reyndar alltaf gert í því að flytja lög Bubba og hef um nokkurra ára skeið verið með efnisskrá sem ég kalla „Í hlutverki Bubba“ en það varð til löngu áður en ég ákvað að að láta reyna á að komast inn í Níu líf.“ Þú ert þá að semja eigin tónlist og gefa út plötur? „Já, ég ég setti mér það markmið fyrir rúmum 30 árum að gefa út hljómplötu með eigin efni á a.m.k. tíu ára fresti. Fyrsta sólóplata mín, Annað líf, 12 laga plata kom út árið 1998, Fyrirheit kom út árið 2008 en á henni eru 12 melódísk og róleg popplög sem samin voru yfir stutt tímabil árin 2007-2008. Árið 2018 kom svo út nýjasta platan Enginn vafi en á henni eru 13 lög. Fyrst og fremst er ég að gefa út plötur fyrir sjálfan mig en auðvitað vonar maður alltaf að aðrir njóti tónlistar- innar. Það hefur alveg gengið eftir og plöturnar fengið ágæta dóma og þokkalega spilun á tónlistarveitum.“ Hvert er viðfangsefni nýjustu plötunnar? „Ég er að gera upp tímabil þar sem ég gekk í gegnum veikindi, m.a. krabbamein, erfið samskipti, missi og skilnað en líka nýtt upphaf á gömlum grunni með viljann og bjartsýnina að vopni. Platan er býsna persónuleg, of persónuleg finnst sum- um, því lagasmíðarnar og textarnir hafa sprottið upp úr þessum jarðvegi erfiðrar lífsreynslu. Sú reynsla fékk mig til að takast á við lífið og tilveruna með nýju og jákvæðu hugarfari. Nú nálgast ég lífið á hamingjuríkari hátt og er svo ótrúlega heppinn að hafa tekið upp sambúð með Öldu minni aftur og gifst henni í þetta skiptið og auðvitað flutt í Mosó.“ Og hvað er svo fram undan? „Ég er að hefja upptökur á fjórðu sólóplötunni sem kemur vonandi út ekki síðar en á árinu 2023. Á plötunni verða meðal annars þrjú lög sem ég samdi fyrir skírnir barnabarnana svona út frá afahlutverkinu. Nokkur kvöld eru svo bókuð á Barion fram að sumar- byrjun. Fyrst er að nefna að ég flyt Bubba prógrammið „Í hlutverki Bubba“ laugardaginn 26. febrúar. Laugardaginn 19. mars, og um páskana, laugardaginn 16. apríl held ég uppi stuðinu á Barion með blandaðri tónlist úr öllum áttum. Nostal endurtekur svo Uriha Heep og Rainbow efnið á Barion föstudaginn 1. apríl og kemur svo aftur með rísandi sól þann 28. maí og spilar lög frá hljómsveit- um Bubba. Vona ég að Mosfellingar og nærsveitungar láti sjá sig á þessum kvöldum því ég lofa fyrst og fremst skemmtilegri kvöldstund.“ bjarni ómar hefur fengist við tónlist í rúm 30 ár Fyrir þá sem vilja kynna sér tónlist Bjarna Ómars geta t.d. gert það á Facebook, Spotify og Youtube.

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.