Mosfellingur - 24.02.2022, Blaðsíða 20
- Mosfellingurinn Berta Guðrún Þórhalladóttir20
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir, Kristín Valdemarsdóttir og úr einkasafni.
Berta Guðrún Þórhalladóttir hefur
lengi haft áhuga á hreyfingu og
andlegri heilsu. Hún er með mast-
ersgráðu í jákvæðri sálfræði, einkaþjálf-
araréttindi frá ACE og hefur nýlega lokið
námi í markþjálfun.
Berta starfar í dag sem lífstílsþjálfari og
segir það mikil forréttindi að geta starfað
í sínum heimabæ. Hún þjálfar jafnt hópa
sem einstaklinga bæði inni og úti við og
veit ekkert betra en þegar hún sér fólkið
sitt ná markmiðum sínum.
Berta fæddist í Reykjavík 8. ágúst 1985.
Foreldrar hennar eru Guðný Tómasdótt-
ir skrifstofustjóri og Þórhalli Einarsson
húsasmíðameistari. Berta á tvö systkini,
Bryndísi f. 1974 og Ásgeir Arnar f. 1979.
Þetta var mikið ævintýri
„Ég er alin upp í Foldahverfinu í Grafar-
vogi og það var frábært að alast þar upp. Ég
bjó rétt hjá skólanum og íþróttahúsinu og í
hverfinu var fullt af börnum til að leika við.
Ein af mínum góðu minningum úr æsku
er þegar foreldrar mínir gáfu mér tækifæri
til að fara ein til útlanda til að fara í sum-
arbúðir en þá var ég 11 ára. Ég fór til Finn-
lands og dvaldi í mánuð. Þetta var mikið
ævintýri, við fengum að gista um helgar
hjá finnskum fjölskyldum, kynnast því að
fara í sauna og hlaupa svo út í kalda á til að
kæla okkur.“
Góðar stundir með ömmu og afa
„Foreldrar mínir ráku fyrirtæki en móðir
mín var einnig í fullu starfi annars staðar.
Ég var heppin að eiga góða ömmu og afa
sem bjuggu í Árbænum. Afi sótti mig alltaf
í leikskólann og svo í skólann alveg þangað
til ég varð 9 ára.
Amma var með Parkinsons og ég fylgdist
vel með hennar baráttu, fékk að
fylgja henni í líkamræktarsal
þar sem hún fór í æfingar. Ætli
megi ekki segja að áhugi minn
á heilsu hafi kviknað við það að
vera svona mikið í návist ömmu og afa.“
Mikill sveitabragur á öllu
Berta gekk í Foldaskóla og síðar Borgar-
holtsskóla, með námi starfaði hún við hin
ýmsu störf, á frístundaheimilum, verslun,
veitingastöðum og við handboltaþjálfun.
„Ég byrjaði að æfa handbolta þegar ég
var 11 ára og æfði til 17 ára aldurs. Um
tvítugt þá langaði mig aftur í boltann svo
ég hóaði saman nokkrum stelpum og við
stofnuðum utandeildarlið í Fjölni. Okkur
langaði að fá Svövu Ýr Baldvinsdóttur til að
þjálfa okkur en það þýddi að við þurftum
að færa okkur yfir í Aftureldingu.
Við það að sækja æfingar í Mosfellsbæ
kynntist maður bænum vel, það var svo
mikill sveitabragur á öllu að ég gjörsam-
lega heillaðist. Svava Ýr á mikið
þakklæti skilið fyrir að ýfa upp
þessa góðu upplifun,“ segir
Berta og brosir.
Fór ein í bakpokaferðalag
„Eftir útskrift úr Borgó fór ég ein í bak-
pokaferðalag til Ástralíu og Nýja-Sjálands.
Ég fékk leyfi frá foreldrum mínum til þess
að fara með því skilyrði að skrá mig í skóla
í þrjá mánuði og dvelja hjá fjölskyldu. Ég er
mjög þakklát fyrir að hafa gert það því ég er
enn í sambandi við fjölskylduna mína þar.
Eftir að ég kom heim þá fór ég í það að
flytja að heiman og hóf svo störf hjá Kaup-
þingi með öllum stórlöxunum þar, ég sá um
að færa þeim kaffi og kampavín. Þetta voru
satt best að segja áhugaverðir tímar.“
Þetta var skrítinn tími
„Haustið 2006 lá leið mín í Háskólann í
Reykjavík í viðskiptafræði. Ég tók eina önn
erlendis, dvaldi í Leipzig þar sem ég stund-
aði nám við þýskan viðskiptaháskóla.
Eftir útskrift fékk ég vinnu hjá Arion
banka sem áður var Kaupþing og starfaði
þar í miðju bankahruninu. Þetta var lær-
dómsríkur tími sem ég er þakklát fyrir en
hann var líka skrítinn, þetta var í raun smá
klikkun. Ég var lánsöm með samstarfsfólk
sem ég er enn í sambandi við í dag.“
Fluttu til Danmerkur
Eiginmaður Bertu er Hannes Rúnar
Herbertsson rafmagnsverkfræðingur hjá
Norðuráli. Synir þeirra eru Þórhalli Leó f.
17. ágúst 2011 og Theodór Nói f. 12. október
2016., d. 15. október 2016.
„Við fjölskyldan fluttum til Danmerkur
árið 2013 þar sem Hannes fór í framhalds-
nám í verkfræði. Ég fékk vinnu í leikskóla
sem matráður og þar lærði ég að tala
dönsku. Hannes fékk síðan góða vinnu
og við vorum ekkert á leiðinni heim. Líf-
ið lék við okkur, annað barn á leiðinni og
við búin að koma okkur vel fyrir í Char-
lottenlund í úthverfi Kaupmannahafnar.
Síðar kom áfallið, ég fór af stað geng-
in 34 vikur og Theodór Nói fæddist með
hraði, stór og stæðilegur drengur. Allt
gekk vel en eftir fæðingu hófst rússíbana-
reiðin mikla sem ég óska engum að upplifa.
Til að gera langa sögu stutta þá var Theodór
mikið nýrnaveikur og þurfti að fara beint í
öndunarvél. Við vorum lánsöm að tengda-
mamma var komin út og foreldrar mínir á
leiðinni.
Við fengum öll fallegar stundir með Nóa í
þá þrjá sólarhringa sem hann lifði.“
Þetta voru erfið skref
„Ég átti mjög erfitt eftir allt sem á undan
var gengið en reyndi mitt besta. Hannes
minn tók þá ákvörðun fyrir okkur bæði að
nú skyldum við flytja heim til þess að ég gæti
komist aftur upp á bakkann. Þetta voru erfið
skref að stíga en við fengum stuðning úr öll-
um áttum sem við erum mjög þakklát fyrir.
Við ákváðum að flytja í Mosfellsbæinn
eftir mína góðu upplifun af bænum. Systir
mín býr hér, foreldrar og bróðir í Grafar-
voginum svo staðsetningin var góð upp
á að vera nálægt baklandinu. Ég réð mig
í fulla vinnu og meira til en ég endaði á
vegg. Þarna hófst mín endurhæfing en ég
er á góðum stað í dag.
Ég fékk aðstoð víða, Alfa Regína Jóhanns-
dóttir sem þá var stöðvarstjóri World Class
í Mosfellsbæ gaf mér tækifæri þar innan
veggja og þannig hófst mín vegferð sem
þjálfari hjá World Class. Ég skráði mig í
mastersnám í jákvæðri sálfræði sem ég
kláraði haustið 2021 frá Buckinghamshire
New University. Ég sá svo sóknartækifæri í
Covid og bætti við mig markþjálfun.“
Við nýtum þekkingu okkar
„Á meðan á námi mínu stóð var ég svo
heppin að Halla Karen Kristjánsdóttir,
íþróttakennari hafði samband við mig og
bauð mér að stíga inn með sér sem þjálfari
fyrir 65 ára og eldri. Ég var fljót að segja já
og höfum við stöllur brallað ýmislegt sam-
an síðan þá.
Við Halla höfum verið að þróa námskeið
sem við erum með fyrir hópa í Word Class
og að Varmá. Við nýtum þekkingu okkar til
þess að efla þetta frábæra fólk enn frekar og
erum með fræðslu um andlega og líkam-
lega heilsu. Við erum líka með útifjör fyrir
konur á öllum aldri þar sem skemmtun
ræður ríkjum.
Ég er svo með hvatningarþjálfun og nám-
skeið fyrir konur í World Class ásamt því að
vera með opna hóptíma. Ástríða mín liggur
í því að vinna með fólki, hvetja það áfram
og sjá það blómstra,“ segir Berta brosandi
að lokum er við kveðjumst.
Allt gekk vel en eftir fæðingu
hófst rússíbanareiðin mikla
sem ég óska engum að upplifa.
Fjölskyldan: Hannes Rúnar, Þórhalli Leó og Berta.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Ástríða mín að hvetja fólk
og sjá það blómstra HIN HLIÐIN
Hvaða hlutur er þér kærastur?
Fótsporið hans Nóa míns.
Fullkominn laugardagur?
Góður morgunverður, samvera með
fjölskyldunni og útivera.
Draumaborgin?
Miami, hiti, sól, hjól og líkamsrækt á
ströndinni, getur ekki klikkað.
Eitt atriði um þig sem fólk veit ekki
um? Ég fór ein í bakpokaferðalag til
Ástralíu og ferðist um allt með stúlku frá
Brasilíu sem ég þekkti ekki neitt.
Uppáhaldsgræjan á heimilinu?
Klárlega Vitamix blandarinn sem foreldrar
mínir gáfu mér í afmælisgjöf fyrir sjö
árum, notaður daglega.
Bestu kaup sem þú hefur gert?
Þegar ég fjárfesti í húsnæði í Mosfellsbæ.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Tyggjó sem ekki er hent í ruslið.
Ef þú mættir taka með þér leynigest í
matarboð, hver yrði fyrir valinu?
Ari Eldjárn.
Berta Guðrún Þórhalladóttir lífstílsþjálfari þjálfar fólk á öllum aldri í Mosfellsbæ, bæði byrjendur og lengra komna
þriggja ára berta og halla karen
berta á balí