Mosfellingur - 24.02.2022, Blaðsíða 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið
HelgiHald næstu vikna
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ4
sunnudagurinn 27. febrúar
Guðsþjónusta kl. 11 í Mosfellskirkju.
Sr. Arndís.
sunnudagurinn 6. mars
Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 13 í
Lágafellskirkju. Umsjón: Sr. Ragnheiður,
Bogi æskulýðsfulltrúi og Bryndís.
Þema: Samferða í Afríku. Messukaffi
í safnaðarheimili eftir guðsþjónustu
þar sem hægt er að styrkja verkefnið
,,Vaffla fyrir steinhús“ fyrir munaðarlaus
börn í Úganda.
sunnudagurinn 13. mars
Guðsþjónusta kl. 11 í Lágafellskirkju.
Sr. Arndís.
æskulýðsfélagið ósoM
(fyrir 8. - 10. bekk)
Á þriðjudögum kl. 20-21:30 í safnaðar-
heimilinu. Þar er ýmsilegt brallað. Farið
verður á æskulýðsmót ÆSKR í Vatna-
skógi 11.-13. mars. Skráning hafin!
sunnudagaskólinn
Kl. 13 í Lágafellskirkju - Söngur, leikir,
biblíusaga og fjör.
Nánari upplýsingar á www.lagafells-
kirkja.is & endilega fylgdu okkur á samfé-
lagsmiðlunum facebook & instagram.
Skoðanakönnun við
val á lista Viðreisnar
Uppstillingarnefnd Viðreisnar í
Mosfellsbæ auglýsir eftir áhuga-
sömu fólki til þess að taka sæti á lista
flokksins í bæjarfélaginu í sveitar-
stjórnarkosningum sem fara fram
þann 14. maí. Framboðsfrestur er til
28. febrúar. Dagana 2. til 7. mars fer
svo fram rafræn, óbindandi skoð-
anakönnun á meðal félagsmanna
Viðreisnar í Mosfellsbæ varðandi
röðun í 1. til 6. sæti á listanum.
Þau sem hyggja á framboð og vilja
leggja nafn sitt inn í könnunina
þurfa að skila inn upplýsingum á
netfangið mosfellsbaer@vidreisn.is
Önnur sem eru áhugasöm um
framboð en vilja taka sæti neðar
á listanum en 6. sæti hafa sama
framboðsfrest, til 28. febrúar.
Þorrablótinu frestað
til 21. janúar 2023
Á fundi þorrablótsnefndar Aftureld-
ingar sem haldinn var síðastliðinn
sunnudag var ákveðið að halda
stærra og veglegra þorrabót á næsta
ári eða nánar tiltekið laugardaginn
21. janúar 2023. „Allar mögulegar
dagsetningar á næstunni gengu
ekki upp, hljómsveitamál, ferm-
ingar, páskar og dansleikur hjá
knattspyrnudeild í lok apríl gerðu
það að verkum að nefndin ákvað að
gera næsta ár að vonandi flottasta
þorrablóti sem haldið hefur verið.
Miðasala verður fyrr, flöskuborðin
fleiri og skemmtiatriðin stærri. Við
hlökkum til að vera með ykkur á
næsta ári, takið daginn frá,“ segir í
tilkynningu frá þorrablótsnefnd.
Póstbox taka við af pósthúsum • Pósthúsinu í Háholti lokað 1. maí næstkomandi
loka pósthúsinu í Mosfellsbæ
Mosfellsbær hefur lengi leitast við að vera
til fyrirmyndar í umhverfismálum.
Árið 2018 voru settar upp ruslatunnur
á Miðbæjartorginu þar sem hægt er að
flokka rusl í pappír, plast, skilagjaldsskyldar
drykkjarumbúðir og almennt rusl.
„Tunnurnar eru mikið notaðar og árang-
ur hefur verið góður en betur má ef duga
skal,“ segir Tómas G. Gíslason umhverfis-
stjóri hjá Mosfellsbæ.
„Ennþá er talsvert um að ekki sé nægi-
lega vel flokkað í tunnurnar og sorpflokk-
um blandað saman þannig að flokkunar-
efnið verður ekki hreint til endurvinnslu.
Algengt er að hundaskítur sé settur í flokk-
unartunnurnar, en hann á að sjálfsögðu
að fara í almennt rusl. Einnig eiga skila-
gjaldsskyldar drykkjarumbúðir úr plasti að
fara í sína endurvinnslutunnu, frekar en í
plasttunnuna.“
Mosfellsbær vill hvetja íbúa til að huga
vel að umhverfismálum, nýta tunnurnar á
miðbæjartorginu til flokkunar á rusli, enda
er áhugi fyrir því að setja upp fleiri flokkun-
artunnur á opnum svæðum bæjarins.
Vinna við mótun og síðar uppbyggingu
nýs miðbæjar í Mosfellsbæ hefur átt sér
stað á síðustu árum og mun ljúka á næstu
misserum.
Á árinu 2007 var haldin hugmyndasam-
keppni um kirkju og menningarmiðstöð
sem rísa skyldi á klöppunum við Bjark-
arholt. Mosfellsbær á þá lóð sem frátekin
hefur verið fyrir byggingu kirkju og menn-
ingarmiðstöðvar.
Vinningstillagan í hugmyndasamkeppn-
inni gerði ráð fyrir að í húsinu yrðu safn-
aðarheimili, bókasafn, listasalur og loks
kirkjubygging. Í gildandi deiliskipulagi
miðbæjarins er gert ráð fyrir að á þessari
lóð verði menningarstarfsemi.
Sóknarnefndin hefur komið þeim skila-
boðum til Mosfellsbæjar að enn sé til staðar
áhugi á að byggja safnaðarheimili á lóðinni
og einnig að slíkt rými væri unnt að nýta til
trúarlegra athafna. Fjölnota salir hafa víða
verið byggðir og nýst vel til fjölbreyttrar
samfélagslegrar og menningarlegrar starf-
semi.
Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur falið
bæjarstjóra að hefja formlegt samtal við
sóknarnefnd Lágafellssóknar og höfunda
vinningstillögunnar um það hvort og þá
hvernig væri unnt að vinna að málinu mið-
að við breyttar áherslur sóknarnefndar.
Niðurstaða þeirrar vinnu verður kynnt
bæjarráði og í kjölfarið verði mótaðar til-
lögur um næstu skref.
Nýting lóðar í miðbænum vegna menningarhúss og kirkju • Hugmyndasamkeppni 2007
Áform um menningarhús og
kirkju í Bjarkarholti skoðuð á ný
Pósturinn hefur ákveðið að loka tveimur pósthúsum á höfuðborgar-
svæðinu 1. maí næstkomandi. Um er að ræða pósthúsin við Háholt
14 í Mosfellsbæ og annað sem staðsett er í Garðabæ.
„Það eru miklar breytingar í þessum rekstri. Við erum ekki að
fækka afgreiðslustöðum heldur fjölga þeim – en vissulega að breyta
þeim,“ segir Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs
Íslandspósts.
„Þetta er búið að vera í undirbúningi og við höfum upplýst
viðkomandi bæjaryfirvöld og fundað með bæjarstjórunum,“ segir
Hörður.
Eftir að pósthúsunum tveimur verður lokað verða sex pósthús
eftir á höfuðborgarsvæðinu.
„Pósthúsið í Mosfellsbæ er okkar minnsta pósthús en við erum
þegar komin með tvö póstbox í Mosfellsbæ og erum að vinna með
bæjarstjórninni í að finna pláss fyrir fleiri þar,“ segir Hörður. pósthúsið í Mosfellsbæ
Ruslatunnur á Miðbæjartorginu hafa nýst vel til flokkunar • Betur má ef duga skal
Íbúar hvattir til að flokka betur
MOSFELLINGUR
keMur næst út
17. Mars
mosfellingur@mosfellingur.is