Mosfellingur - 24.02.2022, Blaðsíða 28

Mosfellingur - 24.02.2022, Blaðsíða 28
 - Aðsendar greinar28 Eftir að úrslit prófkjörs lágu fyrir hér í Mosfellsbæ nýlega virðist sem að upp á yfirborðið hafi leit- að sjóðheit mál sem virðast hafa kraumað lengi undir niðri. Hér er um innanbúðarátök að ræða. Okkur sem sitjum í bæjarstjórn Mosfellsbæjar var gert að tryggja í upphafi kjörtímabilsins að rétt kynjahlutföll yrðu að vera jöfn í ráðum og nefndum Mosfellsbæjar. Hneykslast var á því í upphafi kjörtímabilsins að bæjarfull- trúi Miðflokksins hafi ætlaði að tilnefna konu í fræðslunefnd. Hafði formaður nefndarinnar á orði að það gengi ekki að Miðflokkurinn tilnefndi konu þar sem Sjálfstæðisflokkurinn væri með tvær konur sem aðalmenn af 5 í nefndinni og Viðreisn eina. Það gengi því alls ekki að það væru of margar konur í nefndinni. Í janúar, nánar tiltekið 6. janúar sl., barst oddvita Miðflokksins í Mosfellsbæ árétting frá Jafnréttisstofu þess efnis að fyrir næstu kosningar ætti að „viðhalda jöfnu kynja- hlutfalli í bæjar- og borgarstjórnum ásamt því að minna á mikilvægi fjölbreytileika.“ Það er rétt að taka undir þetta en í sama erindi var fjallað um hvatningabréf frá Kvenréttindafélagi Íslands sem er sagt vera hluta af herferðinni og verkefni sem tilheyrir Byggðaáætlun ríkisins. Með þetta í veganesti í upphafi kjörtímabils, bæði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018 og nú 2022, er mikilvægt að huga að breytingum. En hvað gerðist á kjörtímabilinu? Í fyrsta lagi virðist sem einn íþrótta- frömuður í Mosfellsbæ vilji ekki annan íbróttafrömuð í forystu hjá Sjálf- stæðisflokknum. Í annan stað var formanni bæjarráðs Mos- fellsbæjar vikið til hliðar á miðju kjörtímabilinu, þ.e. því sem senn er á enda. Við það fór forysta Sjálf- stæðisflokksins og Vinstri hreyf- ingarinnar græns framboðs gegn áréttingum Jafnréttisstofu enda er nú bæjarstjórinn karl, formaður bæjarráðs karl og forseti bæjarstjórnar líka karl. Ekki ætla ég að útlista mig sérstaklega hvort þetta sé gott en vegna bæði samsetn- ingar á pólitískum flokkum og einstakling- um þarna tel ég þetta öllu verra en t.d. ef einn karlinn væri úr Miðflokknum, a.m.k. hefur oddviti þess flokks einhverja innsýn inn í jafnréttismálin. Í málefnasamningi Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs kemur fram að „D- og V-listi vilja stuðla að efla jafnrétti í öllum birtingamyndum þess orðs.“ Niðurstaða þessara framboða virðist ítrekað benda til brota á eigin loforðum en í upptalningu í málefnasamningnum kemur einnig fram að það eigi að „horfa til jafnréttissjónarmiða í allri ákvarðanatöku sveitarfélagsins.“ Það er því spurning hvort framboðum, sem hafa starfað lengi saman en fara lítt eftir eigin áformum, sé treystandi til að stjórna Mosfellsbæ næstu misserin. Það þarf að gæta festu við stjórn sveitarfélaga og jafnréttis. Sveinn Óskar Sigurðsson, oddviti Miðflokksins í Mosfellsbæ og bæjarfulltrúi allra Mosfellinga. Væringar á vígstöðvum „Maður verður að rækta garðinn sinn“ sagði Birtíngur í lok sam- nefndrar bókar eftir Voltaire. Það er hægt að leggja margs konar merkingu í þessi orð, en ein túlkun er sú að hver og einn beri ábyrgð á því að skapa sína eigin paradís í samspili við nærumhverfi sitt og samferðamenn. Ef Mosfellsbær er okkar heimili þá mætti segja að fellin í kringum okkur, heiðarnar, skógarnir, árnar og vogarnir séu okkar garður og höfum við bæjarbúar skyldu til að rækta hann svo hann verði sem blóm- legastur. Eitt af höfuðeinkennum Mosfellsbæjar hefur verið hugmyndin um „sveit í borg“ og spila fyrrnefnd náttúra og víðerni þar höfuðhlutverk. Aðdráttarafl Mosfellsbæjar fyrir öllum þeim sem vilja njóta útivistar og óspilltrar náttúru er skýrt enda fjölgar bæjarbúum dag frá degi og færri komast að en vilja. Slíkri uppbyggingu og fólksfjölgun fylgja áskoranir, en jafnframt tækifæri til að hugsa hlutina upp á nýtt og gera betur. Þétting byggðar, stuðningur við fjölbreytta samgöngumáta, rík áhersla á lýðheilsu og útivist og grænar áherslur í skipulagi eru meðal atriða sem núverandi meirihluti bæjarstjórnar hefur horft til í uppbyggingu bæjarins. Það er mikilvægt að sú uppbygg- ing verði framsækin og umhverfismiðuð, en einnig í samræmi við þann bæjarbrag sem við höfum notið hingað til, svo að við glötum ekki því sem gerði bæinn okkar svo eftirsóttan til að byrja með. Það hefur ýmislegt áunnist í umhverf- ismálum í Mosfellsbæ á liðnu kjörtímabili sem við getum verið stolt af. Ný og róttæk umhverfisstefna Mosfellsbæjar var gefin út árið 2019 sem markaði skýra sýn í umhverf- isvernd, sjálfbærri landnýtingu, fræðslu og úrgangsmálum svo fátt eitt sé nefnt. Á kjörtímabilinu átti umhverfisnefnd bæj- arins frumkvæði að því að stækka friðland við Varmárósa til að vernda enn fremur viðkvæmt votlendi og stefnt er að því í samstarfi við Reykjavík- urborg að friðlýsa Leiruvog og og Blikastaðarkró. Ef það heppnast mun Mosfellsbær hafa komið að því að friða alla þá ósnertu strand- lengju og hafsvæði sem bærinn á land að fyrir komandi kynslóðir til að njóta. Í samstarfi við fyrirtækið Resour- ce International mun Mosfellsbær hefja reglubundnar loftgæðamælingar innan bæjarmarkanna á næstu misserum. Það er stöðug vinna að styðja við fjölbreytta og umhverfisvæna samgöngumáta, en bær- inn hefur sýnt þann stuðning í verki með samstarfi um Borgarlínu og áframhaldandi uppbyggingu göngu- og hjólastíganets í bænum. Umhverfis og loftslagsmál eru og munu halda áfram að vera stærsta staka áskorun og áhyggjuefni nútíma samfélags. Það þarf engan að undra sem hefur rætt þann mála- flokk við yngri kynslóðir okkar. Liðinn er sá tími að umhverfismál og umhverfisvernd séu einungis til punts, nú er það okkur beinlínis nauðsyn að finna sjálfbærari leiðir til að lifa á þessari jörð og nýta hana. Eitt brýnasta verkefni stjórnvalda er að finna leiðir til að virkja hvern og einn einasta einstakling í því verkefni. Sveitarfélagið sem minnsta lýðræðislega stjórnsýsluein- ingin er kjörinn vettvangur fyrir slíkt, en hvar byrjar sú vinna ef ekki í skólunum, í lífi og leik út í náttúrunni, í umræðum við kvöldverðarborðið? Það er hagur okkar allra að Mosfellsbær sé til fyrirmyndar í umhverfismálum, og að okkur bæjarbúum sé kleift að taka sem virkastan þátt í því verkefni. Þannig getum við haldið áfram að rækta garðinn okkar, svo að vist þeirra sem á eftir komi verði ávallt örlítið farsælli. Bjartur Steingrímsson, formaður Umhverfis- nefndar Mosfellsbæjar fyrir hönd Vinstri Grænna. Að rækta garðinn sinn Grunnskólarnir okkar eru ein meg- in samfélagsstoðin í bænum okkar. Öll höfum við gengið í skóla og vitum hversu mikilvægt hlutverk grunnskólanna er í fræðslu, upp- vexti og félagslegri mótun barna. Grunnskólinn hefur tekið geysi- legum breytingum og framförum undanfarna áratugi frá því rekstur skólanna var fluttur frá ríki til sveitarfélag- anna árið 1996. Við flutninginn var gert samkomulag milli sveitarfélaga og ríkisins um hvernig fjármagna skyldi reksturinn og hvaða upphæðir væri um að ræða. Allar götur síðan hefur verið deilt um hvort rétt hafi verið gefið í því spili. Skóli margbreytileikans Grunnskólinn hefur tekið mjög miklum breytingum á þeim tíma sem rekstur hans hefur verið á höndum sveitarfélaganna. Þar ber einna hæst stefnu stjórnvalda um skóla án aðgreiningar. Í skóla án aðgreiningar á að vera pláss fyrir öll börn og þau eiga að fá þá þjónustu sem þau þurfa til að þroska hæfileika sína. Börnin eiga að fá aðstoð við að finna fjöl- ina sína og skólinn á að útvega þeim þær bjargir sem þeim eru nauðsynlegar til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að. En erum við að veita þá þjónustu sem börnin eiga skilið? Kennarar og aðrir sérfræðingar Kennarar eru sérfræðingar í kennslu og miðlun þekkingar og búa yfir gríðarlegri sérþekkingu á sínu sviði. Skóli margbreyti- leikans gerir mjög ríkar kröfur til kennara um að mæta öllum nemendum þar sem þeir eru staddir og veita öllum börnum þær bjargir sem þau þurfa til að uppfylla þær kröfur sem skólinn setur fram. En enginn kennari er sérfræðingur í öllu sem viðkem- ur börnum og þeim fjölbreytilegu þörfum sem þau hafa. Til að búa börnum okkar sem vænlegust skilyrði til vaxtar og þroska þarf að fjölga öðrum sér- fræðingum innan skólakerfisins til að starfa við hlið kennaranna. Ef við viljum að skóli án aðgreiningar nái markmiðum sínum verður að fjölga fagfólki með fjölbreytta þekkingu inni í skólunum. Til dæmis ættu þroskaþjálfar, talmeinafræðingar, iðjuþjálfar og sálfræð- ingar að vera hluti af starfsliði skólanna í ríkari mæli til að styðja við það starf sem sérfræðingar í kennslu stýra svo hvert barn fái sem besta möguleika á að þroska sína styrkleika. Með því að grípa þau börn sem það þurfa snemma og veita þeim þá þjón- ustu sem þau þurfa tímanlega er verið að fyrirbyggja vandamál síðar meir og leggja inn fyrir farsæld á fullorðinsaldri. Fjármögnun og farsæld Um hvað snúast sveitarstjórnarmál í grunninn? Þau snúast um þjónustu við íbúana, að íbúar fái þá þjónustu sem þeir þurfa á að halda þegar hennar er þörf. Ekki síst á þetta við um þjónustu við börn þar sem hvert ár er óendanlega mikilvægt í þroskaferli þeirra. Það er skylda sveitarfélaga að búa þannig að skólastarfi að það uppfylli þarfir barnanna og stuðli að farsæld þeirra. Það er verkefni næstu bæjarstjórnar Mosfells- bæjar, í samstarfi við önnur sveitarfélög, að halda áfram að þrýsta á ríkisvaldið um að styrkja tekjustofna sveitarfélaganna þannig að þeim sé gert kleift að uppfylla margbreytilegar þarfir barna í skóla án að- greiningar sem er jú stefna stjórnvalda. Anna Sigríður Guðnadóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar Farsæll grunnskóli Einn mælikvarði á velsæld þjóða er hvernig komið er fram gagnvart þeim sem veikust eru. Hvernig til tekst að skapa þeim eins gott líf og aðstæður leyfa hverju sinni. Flest erum við sammála um að þetta er markmið sem við eigum að setja okkur. En hvernig tekst okkur til? Ríkið vill spara sér fé til hjúkrunarheimila Samkvæmt lögum skipta ríki og sveit- arfélög með sér verkum við þjónustu fyrir veika, fatlaða og aldraða. Skipting á því hver sér um hvað er bundin í lög. Þannig er starfsemi hjúkrunarheimila á forræði ríkisins. Hins vegar hefur það atvikast þannig að sveitarfélög víða um land hafa tekið að sér að reka hjúkrunarheimili og gert samning um þann rekstur við ríkið til að flýta fyrir uppbyggingu þeirra. Það á t.d. við hér í Mosfellsbæ þar sem bærinn er ábyrgur fyrir rekstri hjúkrunarheimilis- ins Hamra. Mosfellsbær hefur líkt og fleiri sveitarfélög deilt við ríkið um framlög til reksturs þessara heimila. Ríkið skammtar of lítið fé til þess að veita veikasta fólkinu okkar á hjúkrunarheimilum mannsæmandi þjónustu, það er öllum ljóst. Þannig hafa sveitarfélög verið nauðbeygð til þess að nota útsvarstekjur til þess að brúa bilið. Þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi lofað því að styrkja rekstrargrundvöll hjúkrunar- heimila hefur biðin eftir efndum verið löng. Biðin bitnar á öldruðu og mjög veiku fólki. Aldraðir í tómarúmi Þjónusta við aldraða skiptist á milli sveit- arfélaga og ríkisins þannig að ríkið sér um heilbrigðisþjónustu en sveitarfélög sjá um aðra nauðsynlega þjónustu fyrir aldraða. Ódýrast og best er að hjálpa fólki að búa heima hjá sér eins lengi og unnt er. Fyrir fólk fylgir því í flestum tilfellum aukin lífs- gæði að fá að vera lengur heima hjá sér. Til að fólk geti verið lengur heima þarf að vera fyrir hendi þétt samstarf við heilsu- gæslur um nauðsynlega samþættingu heimahjúkrunar og heimaþjón- ustu. Þarna þarf samstarf ríkis og sveitarfélaga að vera öflugra. Þetta er nauðsynlegt að laga. NPA samningar stranda á ríkinu Málefni fatlaðra eru hins veg- ar á forræði sveitarfélaga sem fá framlög úr framkvæmdasjóði fatlaðra til þess að fjármagna þá þjónustu. Ein af þeim þjónustum sem fötluðu fólki stendur til boða eru NPA samningar en það er skammstöfun fyrir notendastýrða persónulega aðstoð. Fólk sem þarf á aðstoð að halda getur þannig gert samninga um þjónustu. Það stýrir því sjálft hvar það fær aðstoð, hvenær, hvernig og hver aðstoðar. Slíkir samningar eru fyrir fólk sem þarf töluverða aðstoð í daglegu lífi og skiptir sköpum að þessi aðstoð sé veitt. Sveitar- félög kosta þessa þjónustu á móti ríkinu sem borgar 25%. Ríkið hefur hins vegar takmarkað fjölda samninga sem gerðir eru og afleiðingin af því er að sveitarfélög hafa hætt að gera fleiri samninga þar til ríkið stendur við sitt. Félagsmálaráðherra þarf að gera betur. Þetta bitnar á fötluðum. Lögum kerfin Fólk á ekki að vera fórnarlömb kerfislægs vanda í samskiptum ríkis og sveitarfélaga. Við sem erum kosin á Alþingi og í sveitar- stjórnir eigum að gera betur og laga þetta kerfi. Það skiptir fólk sem notar þjónustuna eða borgar fyrir hana ekki máli úr hvaða vasa er borgað heldur að þjónustan verði veitt með skilvirkum hætti þannig að vel- sæld fólks verði hámörkuð. Það þarf skýrari verkaskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga. Ríkið þarf að veita meira fé í hjúkrunarheimili. Sveitarfélög þurfa meira fé til þess að sinna öldruðum heima og að uppfylla skyldur sínar gagnvart fötluðu fólki. Ég mun gera að forgangsmáli á næsta kjörtímabili að laga þessi kerfi. Valdimar Birgisson, bæjarfulltrúi Viðreisnar. Látum kerfin ekki þvælast fyrir okkar veikasta fólki

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.