Mosfellingur - 17.03.2022, Blaðsíða 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ4
Fermingar ,,vertíðin” er að hefjast en
fermt verður í ellefu athöfnum frá og
með sunnudeginum 27. mars.
sunnudagur 20. mars Guðsþjónusta
kl. 11 í Lágafellskirkju. Sr. Ragnheiður
Jónsdóttir.
sunnudagur 27. mars Fermingar-
guðsþjónustur kl. 10:30 og 13:30. Sr.
Ragnheiður Jónsdóttir og sr. Arndís
Linn. Kl. 13: Sunnudagaskólinn færist í
safnaðarheimilið, Þverholti 3, 2. hæð.
Þema: Bíó og popp sunnudagaskóli!
sunnudagur 3. apríl Fermingarguðs-
þjónustur kl. 10:30 og 13:30 í Lágafells-
kirkju. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir og sr.
Arndís Linn. Kl. 13: Sunnudagaskóli í
safnaðarheimilinu, Þverholti 3, 2. hæð.
Þema: Dans-sunnudagaskóli!
sunnudagaskólinn
Flakkar víða í samstarfi við Reynivalla-
prestakall - Mosfellingar, Kjalnesingar,
Kjósverjar og öll hvött að mæta - sjá
nánar auglýsingu.
Foreldramorgnar
Á fimmtudögum kl. 10-12 í safnaðar-
heimilinu, 3. hæð. Á dagskránni er opið
hús, gestafyrirlesarar, léttar veitingar
og góð aðstaða fyrir krílin.
Nánari upplýsingar á www.lagafells-
kirkja.is & endilega fylgdu okkur á samfé-
lagsmiðlunum facebook & instagram.
Fyrirtækið Varmás í Mosfellsbæ hlaut á
dögunum viðurkenningu sem besti um-
boðs- og söluaðili á gagnvirkum tæknibún-
aði fyrir menntastofnanir á Íslandi.
Varmás hefur þjónustað skólastofnanir
síðan 1989 og býr yfir sérþekkingu á skóla-
tengdum upplýsingakerfum.
„Þetta er mikill heiður fyrir okkur og sýn-
ir að við erum að gera eitthvað rétt,“ segir
Ólafur Sigurðsson eigandi fyrirtækisins sem
staðsett er í Markholti 2.
„Það er ánægjulegt að tekið sé eftir okk-
ur og hvað við erum að gera en við höfum
verið að selja og þjónusta gagnvirka skjái
og töflur í áratugi. Einnig að eftir okkur
sé tekið af erlendu fagtímariti, það er stór
plús, European Enterprise Awards - EU
Business News.“
Varmás er í örum vexti og standa nú
yfir framkvæmdir við stækkun húsakosts í
Markholtinu en þar kennir svo sannarlega
ýmissa grasa.
Tæknifyrirtæki í örum vexti í þrjá áratugi • „Mikill heiður“
Varmás hlýtur alþjóð-
lega viðurkenningu
ólafur sigurðsson
Gallup kannar árlega þjónustu sveitarfé-
laga og mælir viðhorf íbúa til þjónustu í 20
stærstu sveitarfélögum landsins. Könnun-
in hefur verið framkvæmd í fjölda ára og
ávallt er spurt sömu spurninga. Könnunin
veitir yfirlit yfir þróun mála í einstaka mála-
flokkum yfir tíma og stöðu sveitarfélagsins
gagnvart öðrum sveitarfélögum.
Eins og undanfarin ár situr Mosfellsbær
í efstu sætum þegar spurt er um sveitarfé-
lagið sem stað til þess að búa á en dalaði í
fyrra þegar mat var lagt á þjónustuna í heild
sem hlýtur þá að koma til skoðunar.
Á árinu 2021 reyndust 89% aðspurðra
frekar eða mjög ánægðir með sveitarfélagið
sem stað til að búa á og hækkaði úr 88% frá
fyrra ári. Á móti fækkaði þeim sem svara
þeirri spurningu með svarinu hvorki né og
fjölgaði aðeins í hópi íbúa sem eru frekar
óánægðir með sveitarfélagið sem stað til
þess að búa á.
innlegg í þróun þjónustu mosfellsbæjar
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri segir að
könnun Gallup sé hluti af þeim gögnum
sem bærinn nýtir til að rýna hvað gangi vel
og hvað megi betur fara. „Könnun Gallup
er ævinlega kynnt fyrir öllum nefndum
bæjarins og mögulegar umbætur eru rædd-
ar þar. Í kjölfarið vinnur hvert svið fyrir sig
að því að rýna hvað megi betur fara. Í fyrra
var ákveðið að afla frekari upplýsinga hjá
íbúum í þrem málaflokkum.
Gallup var falið að halda rýnihópa þar
sem sjö til níu íbúum var boðið að ræða það
hvar sveitarfélagið stendur sig vel og hvar
síður en ekki hvað síst hvernig Mosfellsbær
gæti bætt sig. Þannig voru tveir rýnihópar
fengnir til að fjalla um skipulagsmál og
annar hópur rýndi þjónustu bæjarins við
aldraða.
Loks var gerð sérstök spurningakönnun
meðal fatlaðra til að fá betri mynd af þeirra
sjónarmiðum um hvað má betur fara í
þjónustu við þann mikilvæga hóp en við
sjáum að stærri sveitarfélögum vegnar síð-
ur í þeim málaflokki. Eitt af því sem hlýtur
að koma til skoðunar er hvað það er sem
minni sveitarfélög eru að gera með öðrum
hætti en við sem tilheyrum hópi stærri
sveitarfélaga í landinu.
Nú stendur yfir vinna framkvæmdastjóra
sviða við að móta aðgerðir og umbætur sem
byggjast á þeim gögnum sem aflað hefur
verið umfram hina árlegu könnun Gallup
á þjónustu sveitarfélaga,“ segir Haraldur
Sverrisson.
Yfir landsmeðaltali í tíu af tólf þáttum
„Almennt séð minnkar ánægja íbúa á ár-
inu 2021 í öllum sveitarfélögum sem könn-
unin nær til og er Mosfellsbær þar engin
undantekning. Mosfellsbær er þó sem fyrr
yfir landsmeðaltali í tíu af þeim tólf þjón-
ustuþáttum sem spurt er um og ánægja
með málefni grunnskólans eykst milli ára
á sama tíma og meðaleinkunn sveitarfélaga
lækkar á landsvísu í þeim málaflokki.
Svipuð þróun á sér stað í málefnum eldri
borgara þar sem við náum að halda okkar á
sama tíma og landið dalar. Við Mosfellingar
getum verið stolt af því að vera efst stærri
sveitarfélaga þegar kemur að mati íbúa á
Mosfellsbæ sem stað til að búa á. Mér finnst
það enn og aftur staðfesta að við búum yfir
ákaflega miklum félagsauð þar sem sterkar
tengingar eru milli fólks og við stöndum
saman í því sem skiptir máli.
Nú sem fyrr skiptir það okkur sem störf-
um fyrir Mosfellinga máli að vita að þeir
eru í megindráttum ánægðir með þjónust-
una. Við höfum markað þá stefnu að vöxtur
sveitarfélagsins hafi jákvæð áhrif á þjón-
ustu og þjónustustig og það hefur að mínu
mati tekist í öllum megindráttum. Það er
hins vegar ekki nóg fyrir okkur að vera yfir
landsmeðaltali í meginþorra málaflokka
því við viljum og getum gert betur,“ sagði
Haraldur Sverrisson.
Könnunin var framkvæmd frá 8.
nóvember 2021 til 12. janúar 2022.
Heildarúrtak í könnuninni er 11.426
manns í 20 stærstu sveitarfélögum
landsins. Úrtakið í Mosfellsbæ var 430
einstaklingar. Nánari upplýsingar má
finna á slóðinni mos.is/gallup2021.
Árleg könnun Gallup á þjónustu sveitarfélagann
89% íbúa ánægðir
Ánægð(ur)
89%
Hvorki né 6%
Óánægð(ur) 5%
Hversu
ánægð(ur) eða
óánægð(ur) ert
þú með mosfells-
bæ sem stað til
að búa á?
Ljósmyndasýning
í Lágafellslaug
Þessa dagana stendur yfir skemmti-
leg ljósmyndasýning í Lágafellslaug.
Myndirnar eru allar eftir Ragga Óla
ljósmyndara Mosfellings sem um
árabil hefur myndað helstu viðburði
bæjarins auk þess sem hann er
einstaklega lunkinn við að festa
stemninguna í bæjarlífinu á „filmu“.
Á sýningunni er skemmtileg blanda
af mannlífsmyndum sem teknar eru
héðan og þaðan í Mosfellsbæ.
Ný stjórn kjörin á
aðalfundur FaMos
Aðalfundur FaMos, Félags aldraðra
í Mosfellsbæ og nágrenni, var
haldinn í Harðarbóli mánudaginn
28. febrúar. Fundarstjóri var kjörinn
Magnús Sigsteinsson sem stýrði
fundinum af röggsemi. Á fundinum
flutti fráfarandi formaður, Ingólfur
Hrólfsson, skýrslu stjórnar og
formenn nefnda skýrslur þeirra um
starfið síðasliðið ár. Starfandi eru
innan félagsins nokkrar nefndir
sem halda utan um margvíslega
starfsemi á vegum félagsins. Þar
má nefna Menningar- og skemmti-
nefnd, Íþróttanefnd, Ferðanefnd og
nefnd sem heldur utan um bingó,
pútt, bridge og félagsvist. Covid
hafði þónokkur áhrif á starfið og
varð að fella niður marga viðburði
þótt tekist hafi að halda aðra.
Fram kom í skýrslu formanns að um
1.300 einstaklingar muni vera 67 ára
og eldri í Mosfellsbæ en í félaginu
eru nú tæplega 700 félagar.
Ný stjórn var kjörin á fundinum,
hana skipa Jónas Sigurðsson
formaður, Jóhanna B. Magnúsdóttir
varaformaður, Margrét Ólafsdóttir
gjaldkeri, Kristbjörg Steingríms-
dóttir ritari, Þorsteinn Birgisson
meðstjórnandi, Guðrún K. Haf-
steinsdóttir varamaður og Áshildur
Þorsteinsdóttir varamaður.