Mosfellingur - 17.03.2022, Blaðsíða 23

Mosfellingur - 17.03.2022, Blaðsíða 23
Íslandsmót einstaklinga í keilu með forgjöf fór fram dagana 19.-27. febrúar í Keiluhöllinni í Egilshöll. Leiðin að titlinum er nokkuð löng en forkeppnin var leikin helgina 19.-20. febrúar þar sem allir þátttakendur léku sex leiki hvorn dag og komust 12 efstu leikmenn áfram í milliriðil. Okkar maður var í 2. sæti eftir forkeppnina og hélt sínu sæti eftir milliriðilinn en sex efstu leikmenn komust þá áfram í undanúrslitin þar sem allir leikmenn mættust maður á mann en þar gekk Svavari mjög vel og tyllti hann sér í 1. sætið fyrir úrslitin sjálf. Úrslitin eru leikin þannig að 3 efstu spila 1 leik og sá lægsti dettur út og þá er einungins úrslitaleikurinn sjálfur eftir en hann var æsispenn- andi allt til síðasta kasts en Svavar lokaði þar lokarammanum með því að loka svokallaðari glennu þar sem aðeins 2 keilur stóðu eftir sitthvoru megin á brautinni til að tryggja sér titilinn. Svavar Steinn er 11 ára og æfir keilu í Keiluhöllinni í Egilshöll með Keilufélagi Reykjavíkur. Hann byrjaði að æfa keilu á síðasta ári og er þetta því algjörlega frábær árangur hjá honum. Keiluæfingar eru þri- svar í viku, á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum og hvetur Svavar alla krakka til að koma og prufa keiluæfingu. Allir geta komið og prufað frítt í 2 vikur en nánari upplýsingar um keiluæfingar má finna á heimasíðu Keilufélags Reykjavíkur www.kfr.is. SunnudagaSkólinn í lágafellSkirkju Mosfellingurinn Svavar Steinn Guðjónsson 11 ára Íslandsmeistari í keilu með forgjöf Stjórn Hamars ehf. hefur samþykkt sam- runa rekstrar félagsins og Deilis tækni- þjónustu ehf., NTD ehf. og Véla ehf. ásamt breyttu nafni félagsins sem heitir nú HD. Nýja vörumerkið sameinar hugvit, há- tækni og verkþekkingu félaganna fjögurra. „Sameiningin gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum í ólíkum atvinnugreinum enn betri þjónustu en áður. Má í því sam- bandi nefna tæknilegar ástandsgreiningar véla og sívöktun vélbúnaðar, hönnun, framleiðslu og þjónusta dælu- og lagna- kerfa, viðhaldi á jarðgufutúrbínum og rafölum orkuvera, innflutningi á vél- og tæknibúnaði, uppsetningar, varahlutaöflun og aðra þjónustu,“ segir Árni Rafn Gíslason forstjóri HD. 200 starfsmenn á 6 starfsstöðvum „Viðskiptavinir okkar eru í öllum helstu iðnaðargeirum Íslands sem eru stóriðnaður, sjávarútvegur, virkjanir, veitufyrirtæki, mat- vælaiðnaður og fiskeldi. Hjá HD starfa ríf- lega tvö hundruð manns á sex starfsstöðv- um vítt og breitt um landið. Starfsfólkið hefur víðtæka reynslu og menntun á stál-, véla- og tæknisviði sem gerir okkur kleift að hámarka virði þjónustunnar. Starfsfólk okkar er sérþjálfað í viðhaldi vélbúnaðar sem hámarkar uppitíma iðn- veranna sem við þjónustum. Sérhver stöðv- un vegna viðhalds er vandlega skipulögð í samræmi við aðstæður iðnversins, úrvali af sérhæfðu þjónustufólki og tiltæki varahluta sem þarf til verksins. Með þessu móti lág- mörkum við stoppin og aukum fyrirsjáan- leika í rekstri viðskiptavina okkar. Gildin okkar eru öryggi, heiðarleiki, þjónustulund og fagmennska. Þau varða leið okkar í daglegum rekstri og stjórnun gagnvart starfsfólki og viðskiptavinum okkar. Markmið félagsins er að vera fyrsta val viðskiptavina fyrir véla- og tækniþjónustu á íslenskum iðnaðarmarkaði.“ Hamar, Deilir tækniþjónusta, NTD og Vélar verða HD Sameinaðir kraftar undir nýju merki HD að völuteigi 31 www.mosfellingur.is - 23

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.