Mosfellingur - 01.04.2021, Qupperneq 6

Mosfellingur - 01.04.2021, Qupperneq 6
Opið fyrir umsóknir í Klörusjóð til 15. apríl Klörusjóður er nýsköpunar- og þró- unarsjóður skóla- og frístundastarfs í Mosfellsbæ. Markmið Klörusjóðs er að stuðla að framþróun á skóla- og frístundastarfi. Heildar framlag til sjóðsins árið 2021 eru tvær milljónir og í ár er áherslan lögð á fjölbreytta kennsluhætti. Opið er fyrir umsóknir í sjóðinn vefsíðu Mosfellsbæjar til 15. apríl. Nafn sjóðsins er Klörusjóður, til heiðurs Klöru Klængsdóttur (1920-2011). Klara útskrifaðist frá Kennaraskóla Íslands árið 1939 og hóf sama ár kennslu við Brúarlandsskóla. Hún starfaði alla sína starfsævi sem kennari í Mosfellsbæ. - Bæjarblað allra Mosfellinga6 Kæri Mosfellsbæingur, ég get bætt við mig eignum í sölu! Ánægjuleg fasteignaviðskipti – það skiptir máli! · Fasteignaráðgjöf og frítt verðmat þér að kostnaðarlausu og án skuldbindinga · Hafðu samband ef þú eða einhver sem þú þekkir er í fasteignahugleiðingum · Ég veiti framúrskarandi þjónustu sem skilar árangri Ingimar Óskar Másson – Það er best að búa í Mosó! Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali ingimar@helgafellfasteignasala.is 612 2277 ingur, Samkeppni um nafn á eldri deildina Við skiptingu Varmárskóla mun yngri deildin bera áfam nafnið Varmárskóli en finna þarf nýtt nafn á eldri deildin sem tilheyrir 7.-10. bekk. Efnt hefur verið til nafna- samkeppni og eru allir áhugasamir hvattir til að koma með tillögur að nýju nafni á nýjum skóla. Hægt er að skila tillögum inn í gegnum slóð- ina mos.is/nafnasamkeppni2021. Frestur til að skila inn tillögum er til 10. apríl. Í dómnefndinni sitja Bjarki Bjarnason, Anna Sigríður Guðnadóttir, Ásta Kristbjörnsdóttir, Margrét Lára Höskuldsdóttir og Birgir D. Sveinsson. Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2020 var lagður fram á fundi bæjarráðs þriðju- daginn 30. mars og ber reksturinn þess merki að heimsfaraldur ríkti á árinu með tilheyrandi kólnun í hagkerfinu Rekstrarniðurstaða ársins er neikvæð um 541 milljón sem er um 770 milljóna lakari afkoma en gert var ráð fyrir í fjár- hagsáætlun ársins. Það skýrist helst af lægri tekjum vegna lækkunar launatekna íbúa, minni íbúafjölgun í sveitarfélaginu, minnkandi framlaga frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til málefna fatlaðs fólks og aukins fjármagnskostnaðar. Endurspeglar skugga heimsfaraldar Í tilkynningu frá Mosfellsbæ kemur fram að rekstur málaflokka hafi gengið vel og sé í góðu samræmi við fjárhagsáætlun. Þá var töluvert framkvæmt á árinu bæði til þess að geta tekið við fjölgun íbúa sem var hlut- fallslega næst mest í Mosfellsbæ þegar litið er til höfuðborgarsvæð- isins og til að byggja upp tæknilega innviði sveitarfélagsins um leið og áskorun stjórnvalda um auknar opinberar framkvæmdir var tekið. „Ársreikningur fyrir árið 2020 endurspegl- ar þann skugga sem heimsfaraldurinn varp- ar á starfsemi sveitarfé- laga en einnig sterka stöðu Mosfellsbæjar til að mæta tímabundinni fjárhagslegri ágjöf,“ segir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri. Bæjarsjóður rekinn með halla um sinn „Við hjá Mosfellsbæ viljum vera til fyr- irmyndar varðandi rekstur og þróun starf- seminnar þannig að íbúar og starfsmenn séu á hverjum tíma meðvitaðir um gæði þjónustunnar og kostnað við að veita hana. Minnkandi skatttekjur vegna áhrifa kór- ónaveirunnar á efnahag sveitarfélaga hefur neikvæð áhrif á afkomu sveitarfélagsins. Sveitarfélagið er rekið af ábyrgð með áherslu á komandi kynslóðir og ársreikn- ingurinn sýnir að við höfum hafið okkar við- spyrnu um leið og við verjum þjónustu við íbúa af öllu afli. Efnahagsleg áhrif faraldurs- ins eru það mikil á rekstur sveitarfélagsins að óhjákvæmilegt er annað en að bæjarsjóð- ur verði rekinn með halla um sinn.“ Skilvirkur rekstur og sterk fjárhagsstaða „Hinn möguleikinn hefði verið að skera verulega niður í rekstri og þjónustu sveitar- félagsins en það er ekki skynsamleg stefna við ríkjandi aðstæður. Skilvirkur rekstur og sterk fjárhagsstaða auðveldar okkur að taka vel á móti nýjum íbúum og þjónustan er vel metin af íbúum samkvæmt niðurstöðum þjónustukönnunar Gallup. Sem fyrr nota ég þetta tilefni til að þakka starfsmönnum Mosfellsbæjar, kjörnum fulltrúum og nefndarfólki fyrir þeirra þátt í þeim árangri sem við höfum náð og brýna okkur til góðra verka á næstu misserum.“ Ársreikningurinn verður til umræðu í bæjarstjórn í apríl. Árseikningur Mosfellsbæjar lagður fram • Rekstrarniðurstaðan neikvæð um 541 milljón Reksturinn í takt við árferðið • Tekjur ársins námu alls um 13.007 m.kr. • Launakostnaður nam 6.666 m.kr. • Annar rekstrarkostnaður nam 5.704 m.kr. • Framlegð 638 m.kr. • Veltufé frá rekstri nam 495 m.kr. sem er um 3,8% af tekjum. • Eigið fé í árslok nam 6.882 milljónum og eiginfjárhlutfall 29%. • Skuldaviðmið nemur 99,8%. • Íbúar Mosfellsbæjar voru 12.565 1. desember 2020. • Starfsmenn voru 818 í 673 stöðu- gildum í árslok 2020. helstu tölur ársins 2020 Haraldur Sverris- son bæjarstjóri Mosfellingar verða brátt 13.000 talsins

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.