Mosfellingur - 01.04.2021, Page 8
Mosfellsbær hlýtur
jafnlaunavottun
Jafnlaunavottun er ætlað að
staðfesta að við launaákvarðanir
séu málefnaleg sjónarmið höfð að
leiðarljósi og að laun hjá Mosfells-
bæ séu ákveðin á sama hátt fyrir
konur og karla. Þá er mikilvægt að
þau viðmið sem lögð eru til grund-
vallar launaákvörðunar feli ekki í
sér kynjamismunun. Að minnka
launamun kynjanna er einn liður í
jafnréttisstefnu Mosfellsbæjar.
Jafnlaunavottun Mosfellsbæjar er
unnin af BSI á Íslandi sem er faggild
skoðunarstofa og byggir á úttekt á
launum starfsfólks, starfaflokkun
og öðrum þáttum jafnlaunakerfis
Mosfellsbæjar sem hefur áhrif á kjör
karla og kvenna. Mosfellsbær hlaut
jafnlaunavottun fyrst fyrir þremur
árum og hefur gengist undir árlega
úttekt fagaðila síðan þá. Í kjölfar
síðustu úttektar hefur Mosfellsbær
nú hlotið jafnlaunavottun til
næstu þriggja ára. Með því hefur
verið staðfest að jafnlaunakerfi
Mosfellsbæjar hefur verið í stöðugri
þróun, það verið rýnt reglulega og
að það fellur undir þau skilyrði sem
þarf til að standast jafnlaunavottun
samkvæmt ÍST 85:2012 staðlinum
til maí 2024. Frá því að Mosfellsbær
fékk vottunina fyrst hefur launa-
munur kynjanna minnkað úr 6,5%
í 4,0% þannig að viðmið og reglur
um launasetningu hafa náð fram að
ganga hjá bænum.
Ingólfur Hrólfsson formaður
s. 855 2085 ihhj@simnet.is
Úlfhildur Geirsdóttir varaformaður
s. 896 5700 bruarholl@simnet.is
Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri
s. 863 3359 margretjako@gmail.com
Snjólaug Sigurðardóttir ritari
s. 897 4734 snjolaugsig@simnet.is
Kristbjörg Steingrímsdóttir meðstjórnandi
s. 898 3947 krist2910@gmail.is
Jóhanna B. Magnúsdóttir 1. varamaður
s. 899 0378 hanna@smart.is
Bragi Bergmann Steingrímsson
2. varamaður bbergman@hive.is
StJÓrn FaMoS
Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu
Skrifstofa félagsstarfsins er opin
alla virka daga kl. 13–16. Sími félags-
starfsins er 586-8014. Forstöðumaður
félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ
er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda-
og félagsmálafræðingur, s: 698-0090.
Skrifstofa FaMos á Eirhömrum
er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16.
FélaG aldraðra
í Mosfellsbæ og nágrenni
famos@famos.is
www.famos.is
nýjar reglur í
félagsstarfinu :(
Félagsstarfið er opið mánudaga - fimmtu-
daga kl. 11-16 og föstudaga kl. 13-16
en aðeins 8-10 manns komast að í einu
og mega mest stoppa í tvo klukkutíma
í senn, svo sem flestir komist að og geti
aðeins komist út ef fólk treystir sér til.
Skrá þarf nafn og síma viðkomandi sem
inn kemur og grímuskylda og 2 metra
reglan er í gildi.
Hópar sem eru á námskeiðum í félagstarf-
inu halda áfram ef hópurinn er undir 10
manns.
Eftir páska verður opið mán.-fim. 11-16
og föstud. 13-16.
Þessar reglur verða til 13. apríl.
Kveðja Félagsstarfið
- Fréttir af Mosfellingum8
páska
Gleðilega
Mosfellsbær stendur fyrir rafrænum íbúafundi um málefni barna og
ungmenna í Mosfellsbæ á Facebook síðu Mosfellsbæjar.
Fundurinn verður haldinn þann 8. apríl 2021 og mun standa frá
klukkan 17-18.15. Yfirskrift fundarins er „Það þarf heilt þorp til að
ala upp barn“ sem er afrískur málsháttur sem á alltaf við þegar við
ræðum um velferð barna og ungmenna.
Tilefni fundarins er meðal annars niðurstöður könnunar Rann-
sókna og greininga sem voru kynntar í janúar á þremur rafrænum
kynningarfundum sem Mosfellsbær boðaði til fyrir foreldra ung-
menna í 8., 9. og 10. bekk. Þeir fundir voru vel sóttir og sköpuðust
ágætar umræður um þessi mikilvægu mál.
Vísbendingar um aukna áhættuhegðun
Kannanir Rannsókna og greininga á högum og líðan ungmenna
er lögð fyrir árlega hérlendis. Hjá Mosfellsbæ eru niðurstöður hvers
árs rýndar og hagnýttar í forvarnarstarfi Mosfellsbæjar á hverjum
tíma. Í síðustu könnun sem fór fram í nóvember og er aukakönnun
vegna Covid-19 ástandsins, komu fram vísbendingar um að stækk-
andi hópur ungmenna í Mosfellsbæ sýni í auknum mæli það sem
kallast áhættuhegðun.
Áhættuhegðun er skilgreind sem hegðunarmynstur sem getur
haft neikvæð áhrif á líf einstaklinga og ógnað heilbrigði þeirra. Í
ljósi þeirrar stöðu er mikilvægt að eiga gott samtal við alla hagaðila
og ræða hvað það er sem við getum gert sameiginlega.
Fyrirkomulag fundarins
Á fundinum verður boðið upp á innlegg frá aðilum sem hafa
mikla reynslu á ólíkum sviðum forvarna og samskipta. Fjallað
verður um þau atriði sem skipta máli til að skapa trausta og góða
umgjörð um börn og ungmenni eins og mikilvægi samveru og
samstöðu samfélagsins, forvarnargildi tómstunda- og íþróttastarfs
hvað foreldrar geta gert til að standa saman og hvernig sveitarfé-
lagið Mosfellsbær getur stutt við umgjörðina.
Í Mosfellsbæ er unnið markvisst að forvarnarstarfi í skólum og
félagsmiðstöðvum. Forvarnarteymi fundar reglulega, félagsmið-
stöðvar vinna í samvinnu við skólana að einstaka verkefnum,
halda námskeið og vinna með foreldrum að verkefnum eins og
foreldrarölti sem er mjög mikilvægt verkefni. Þá kemur Barnavernd
Mosfellsbæjar að fræðslu með áherslu á forvarnir, bæði við foreldra
og börn.
Skerpa á útivistartíma
Áhrifaríkustu þættirnir sem lúta að foreldrum er stuðningur
þeirra við reglur um útivistartíma, taka þátt í foreldrarölti, og vera
í góðum samskiptum við þá sem barn þeirra umgengst eins og vini
og foreldra.
Sérstakir áherslupunktar í forvarnarstarfi núna eru að skerpa
á útivistartíma barna og ungmenna með því að senda foreldrum
upplýsingar og hvetja til samvinnu foreldra.
Mikilvægt samtal við foreldra
„Þessi fundur er mjög mikilvægur fyrir foreldra barna og ung-
menna í Mosfellsbæ enda lykillinn að velgengni í forvörnum þétt
samstarf heimila og skóla,“ segir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri.
„Þá hefur forvarnargildi tómstunda- og íþróttastarfs fyrir löngu
sannað gildi sitt.
Árangur okkar á þessu sviði hefur verið kölluð íslenska leiðin og
hún byggir alfarið á rannsóknum og gagnreyndri þekkingu.
Ég hlakka til þessa fundar enda um að ræða mikilvægt samtal við
foreldra þar sem við getum í sameiningu markað umgjörðina og
varðað farsæla leið fyrir börnin okkar og samfélagið í Mosfellsbæ.
Það þarf nefnileg heilt þorp til að ala upp barn.“
Rafrænn íbúafundur um málefni barna og ungmenna • Könnun á högum og líðan
Heilt þorp til að ala upp barn
Börn við stekkjar-
flöt í MosfellsBæ