Mosfellingur - 01.04.2021, Page 17
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2021
Sækja skal um starfið á ráðningarvef Mosfellsbæjar, www.mos.is/storf. Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem
greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar veitir Linda Udengård framkvæmda-
stjóri fræðslu- og frístundasviðs í síma 525-6700 eða á linda@mos.is og Atli Guðlaugsson skólastjóri Listaskólans í síma 864-8019 eða á
atli@mos.is. Um framtíðarstöðu er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga
og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni
og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Fjölbreyttur skóli — Skapandi umhverfi
Mosfellsbær er í fararbroddi í nýbreytni í skólastarfi. Listaskóli
Mosfellsbæjar skipar fastan sess í skóla- og menningarlífi
bæjarins. Markmið hans er að bjóða börnum og ungmennum
upp á tónlistarnám og þátttöku í öðrum listgreinum. Undir
hatti skólans starfa tónlistardeild og skólahljómsveit, sam-
starfssamningar eru við Myndlistarskóla Mosfellsbæjar og
Leikfélag Mosfellsbæjar.
Listaskólinn starfar í eigin húsnæði og í öllum grunnskólum
bæjarins. Við tónlistardeildina eru starfandi bæði klassísk og
rytmísk deild og kennt er á öll helstu hljóðfæri auk söngs.
Strengjasveit og rytmískar hljómsveitir eru starfandi við
skólann auk fjölmargra annarra samspila.
Skólastjóri Listaskólans ber ábyrgð á að starfið sé í samræmi
við lög, reglugerðir, aðalnámskrá tónlistarskóla og stefnu-
mörkun Mosfellsbæjar. Hann ber ábyrgð á starfsemi skólans,
veitir honum faglega forystu og er daglegur stjórnandi tónlist-
ardeildar.
Mosfellsbær leitar eftir metnaðarfullum einstaklingi sem
hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, býr yfir skapandi hugsun
og leiðtogafærni til að leiða starfsfólk og nemendur Listaskól-
ans áfram inn í framtíðina.
Mosfellsbær leitar eftir metnaðarfullum einstaklingi sem
hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, býr yfir skapandi hugsun
og leiðtogafærni til að leiða starfsfólk og nemendur Listaskól-
ans áfram inn í framtíðina.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun á sviði tónlistar skilyrði
• Viðbótarmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis-
og menntunarfræða skilyrði
• Þekking á stjórnsýslu, fjármálastjórnun og
stefnumótunarvinnu
• Reynsla á sviði stjórnunar og faglegrar forystu í
mennta- og menningarstofnunum
• Reynsla af tónlistarflutningi og tónlistarkennslu
• Þekking á sviði upplýsingatækni
• Frumkvæði, sjálfstæði og góðir skipulagshæfileikar
• Lipurð og færni í samskiptum
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Almenn tungumálakunnátta
Skólastjóri
LiStASkóLA
MoSFeLLSbæjAR