Mosfellingur - 01.04.2021, Síða 31

Mosfellingur - 01.04.2021, Síða 31
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is Deiliskipulagsbreyting 4. áfanga Helgafellshverfis Mosfellsbær auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi í Helgafellshverfi, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umrætt svæði er nýr íbúðasvæði suðaustast í Helgafellshverfi sunnan nýs Skammadalsvegar. Breytingin felur í sér að tæplega 1 ha. spilda sunnan Sauðhóls bætist við skipulagssvæðið. Íbúðum fjölgar um 10 í hverfinu ýmist sem einbýli eða íbúðir í fjölbýli. Fjölbýli nyrst breytast líttilega. Hliðrun á nokkrum raðhúsum. Ný húsagerð einbýlis á tveimur hæðum skilgreind í greinargerð. Minniháttar breytingar eru á flestum götum og gangstéttum. Gildandi skipulag var staðfest 29.04.2020. Smækkuð mynd af breytingu Tillagan verður aðgengileg á vef Mosfellsbæjar, mos.is/skipulagsauglysingar, og á Upplýsingatorgi, Þverholti 2, svo þeir sem vilja geta kynnt sér hana og gert athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar, ásamt helstu upplýsingum um sendanda, og merktar skipulagsnefnd Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ. Einnig má senda athugasemdir í tölvupósti á skipulag@mos.is. Athugasemdafrestur er frá 1. apríl 2021 til og með 16. maí 2021. Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar Dróttskátarnir í Mosverjum fóru í útilegu í Lækjarbotnaskála helgina 12.-14. mars ásamt dróttskátum úr Skjöldungum og Ægisbúum í Reykjavík. Hér kemur frá- sögn frá þrem Mosverjum sem vildu deila með ykkur upplifun sinni af helginni. Yfir helgina gerðist margt og mikið. Úti- legan var raftækja- og tímalaus sem lagði áherslu á að lifa í núinu og að draga úr stressi. Þegar spurt var um tíma var alltaf svarað “korter í sjö”, vegna þess að klukkan í Ægisbúaheimilinu var föst á þeim tíma í 10 ár. Það var nokkuð pirrandi en á sama tíma fyndið. Skálinn var mjög snyrtilegur og vel um genginn. Með honum fylgdi rennandi vatn, nothæf klósett og rafmagn. Við eyddum miklum tíma úti í leikjum eða inni að spila og vingast við aðra skáta. Hvert félag sá um einn stóran leik sem allir gátu tekið þátt í. Við, Mosverjar, vorum með næturleik rétt eftir komu okkar á föstudaginn. Í honum áttum við að finna stað í grennd við skál- ann, kallað hreiður, þar sem við földum litaða steina sem við kölluðum egg. Mark- mið leiksins var að finna hreiður annarra og stela eggjum frá þeim. Morguninn eftir vorum við vakin með dúndrandi tónlist í risastórum hátölurum en í þetta sinn var það þó ekki hin týpíska Latarbæjartónlist. Eftir morgunverð fórum við í tveggja tíma göngu og stoppuðum á eins konar leikvelli. Þar lékum okkur og fórum svo í leik sem Skjöldungar voru með sem kallast “Capture the flag”. Markmið hans er að tvö lið eru með stað fyrir fánann sinn og reyna svo að stela fána hins liðs. Svo gengum við aftur í skálann og fengum mjög langan frjálsan tíma. Eftir það fórum við í Löggu og bófa í umsjón Ægisbúa. Þá var okkur boðið upp á pylsur og við byrjuðum kvöldvökuna. Í henni var hvert félag með atriði og við sungum og dönsuðum aðeins saman. Tveir aðilar áttu afmæli yfir helgina þannig sungið var fyrir þá og þeir fengu köku. Upp úr þurru koma skátaforingjar klæddir í her- mannabúningum og stálu Skjöldungafor- ingjanum Signýju. Við fengum þá verkefnið að finna hana og fengum vísbendingu hjá henni hvert ætti að fara næst. Þá enduðum við fyrir utan lítinn helli og þar voru nýir skátar vígðir. Við fórum þá aftur í skálann þar sem maður gat valið að hafa það rólegt eða dansa við sturlaða tónlist. Næsta dag vöknuðum við á okkar eigin hraða og byrjuðum að pakka niður og þrífa skálann. Þegar það allt var búið fengum við loksins að vita tímann og við fórum í nokkra leiki. Foreldrar/forráðamenn sóttu okkur um eittleytið og þá var útilegunni lokið. - Takk fyrir okkur, Eberg, Kristófer og Óliver. Raftækja- og tímalaus útilega Aðsendar greinar - 31 RÖSK vinnustofa Sérhæfum okkur í prentun á persónulegum gjöfum - púdar - veggplattar - ísskápsseglar - Kíkid á okkur á Facebook - roskvinnustofa@gmail.com R S vinnustofa Sérhæfum okkur í pren á persónulegum gjöfum - púdar - veggplattar - ísskápsseglar - Kíkid á okkur á Facebook - roskvinnustofa@gmail.com

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.