Mosfellingur - 09.12.2021, Síða 2
Í þá gömlu góðu...
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 23. desember
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn:
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 5.000 eintök. Dreifing: Afturelding.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Ég fór í Hellisgerði í Hafnarfirði fyr-
ir jólin í fyrra eins og annar hver
Íslendingur og naut þar ljósadýrðar
með fjölskyldunni. Mikið sem ég
hugsaði þá hvað við í
Mosfellsbæ værum
mikill eftirbátur
þeirra. Þar að auki
voru þau með heilt
jólaþorp. Ég ætlaði
nú að vera búinn
að skrifa um
þetta en nú er
það líklega of
seint.
Mosfellingar tóku sig saman
á árinu og kusu Jólagarð til
sögunnar í Okkar Mosó 2021 og nú
er hann mættur. Þvílíkt sem hann
vekur mikla gleði í hjörtum gesta, það
er alveg magnað. Það þarf ekki alltaf
mikið til að gleðja okkur, sérstaklega
ekki á þessum síðustu og verstu.
Næstu sunnudaga verða skemmti-
legar uppákomur í Jólagarðinum
kl. 13-17. Þá verður Hátíðarvagninn
með heitt kakó og piparkökur,
mosfellskir kórar syngja og jólasvein-
ar láta sjá sig. Ég hvet Mosfellinga til
að njóta dýrðarinnar í desember og
fagna hátíð ljóss og friðar.
Jólin alls staðar
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
- Fréttir úr bæjarlífinu62
Héðan og þaðan
Fyrirsögnin blasir við okkur í Álafosskvosinni og hefur gert í áratugi. Starfsemi í húsinu hefur verið af ýmsum
toga um langt skeið. Fyrir um 20 árum var þarna fyrirtæki í veitingarekstri sem bar nafnið ÁLAFOSS-FÖT
BEZT. Bræðurnir Karl og Steinar Tómassynir og eiginkonur þeirra áttu og ráku staðinn. Auk veitinga var þarna
umfangsmikið tónleikahald og ýmsir menningarviðburðir svo sem upplestur úr nýjum bókum á jólaföstunni.
Efri myndin er úr úrklippusafni SkóMos. Þessi hópur var mikið á ferðinni og spilaði jólalögin jafnt í heimabyggð
og á Laugaveginum í Reykjavík - Hilmar Gunnarsson, trompet, Tryggvi Gunnarsson, baritón, Baldur Rafnsson,
trommur, Sigurður Valsson, túba, Ólafur Stefnir Jónsson, básúna, Jens Guðjónsson, trompet.
ÁLAFOSS-FÖT BEZT
í álafosskvos 5. desember 2021