Mosfellingur - 09.12.2021, Blaðsíða 34

Mosfellingur - 09.12.2021, Blaðsíða 34
MarkMið Morgundagsins Ég er að vinna með öflugu teymi þessa dagana. Verkefninu sem við erum að vinna að núna miðar vel áfram og það er mjög líklegt að við komumst mun lengra með það en gert var ráð fyrir í upphafi þess. Ein af ástæðum þess er að markmiðin eru skýr. Bæði aðalmarkmiðið og sömuleiðis markmið hvers dags. Þegar vinnudagurinn er að klárast tökum við stuttan fund, förum yfir hvað við fórum langt með markmið þess dags og setjum okkur markmið fyrir morgundaginn miðað við stöð- una í dag. Tökum svo vinnurispu, klárum daginn og höldum brattir heim – sérstaklega þegar við höfum komist lengra með verkefnið en við áttum von á. Þetta vinnulag hentar mér mjög vel. Og það er einfalt að yfirfæra það yfir á lífið sjálft. Þú setur þér markmið og vinnur að því alla daga. Gerir eitthvað sem færir þig nær markmiði þínu á hverjum degi, sama hversu stórt eða smátt það er. Tekur stöðuna í lok dags, ákveður hvað þú getur gert á morgun til að komast nær stóra markmiðinu og framkvæmir það svo. Stóra markmiðið getur verið hvað sem er, en það þarf að vera eitthvað sem þér finnst spennandi og þannig að þér finnist á þeim tíma- punkti sem þú setur þér markmiðið að það sé alls ekkert mjög líklegt að þú náir því. Þannig verður markmið- ið spennandi og hvetjandi. Og með því að vinna að því á hverjum degi, færist þú nær. Það að setja markmið fyrir morg- undaginn heldur manni á tánum og í fókus. Allt verður skýrara og það er miklu skemmtilegra að vinna á þennan hátt heldur en að mæta bara í vinnuna og sinna fyrirliggjandi verkefnum. Sama hver vinnan og verkefnin eru. Talandi um skemmtileg markmið. Hið árlega utanvegar- þrautahlaup, KB þrautin, verður haldin laugardag- inn 21. maí 2022. Þið lásuð það fyrst hér! HeilsuMolar gaua - Aðsendar greinar34 Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is www.fastmos.is Frá því Covid-19 skall á með öllum þeim ósköpum sem því hefur fylgt hefur skapast umræða í þjóðfé- laginu um að heimilisofbeldi hafi aukist mikið og tilkynningum til barnaverndar fjölgað. Heilu fréttatímarnir voru und- irlagðir og mikið gekk á á höfuð- borgarsvæðinu í þessum málum, en þar var þó aðallega verið að vísa til fjölg- unar í öðrum sveitarfélögum því á sama tíma í Mosfellsbæ sáum við ekki merkjandi aukningu í þessum sömu tilkynningum. Við byrjuðum að fjalla sérstaklega um þessi mál á fundum okkar í fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar, upplýsingum var safnað fyr- ir nefndina og fékk málið heitið „Covid-19 stöðuskýrsla fjölskyldusviðs“. Þessi skýrsla var fyrst lögð fram á 293. fundi fjölskyldu- nefndar 19. maí 2020. Þar var ekki að sjá sýnilega aukningu í þeim málefnum sem fjallað hafði verið um í fréttum. Á fundi nefndarinnar nr. 292 sem haldinn var 17. mars var farið yfir mál sviðsins vegna Covid-19 áhrifa og tryggt að allir skjólstæð- ingar Mosfellsbæjar fengju nauðsynlega þjónustu og gerðar yrðu ráðstafanir til að tryggja bæði starfsmönnum og notendum þjónustu fyllsta öryggi vegna aðstæðna. Það tókst og eiga starfsmenn fjölskyldu- sviðs Mosfellsbæjar hrós skilið fyrir góðan undirbúning og skipulag. Síðan fyrsta skýrslan var lögð fram í maí 2020 höfum við á hverj- um fundi nefndarinnar lagt hana fram og við fylgst með og rýnt í þær upplýsingar sem liggja fyrir hverju sinni. Starfsmenn fjölskyldusviðs hafa á sama tíma unnið ötullega að því að hlúa að þeim einstaklingum og fjölskyldum sem um er fjallað. Það sem er einna ánægjulegast að segja frá er að þrátt fyrir fjölgun samþykktra umsókna um fjárhagsaðstoð milli áranna 2019–2020 lítur út fyrir að árið 2021 þurfi um 24% færri einstaklingar fjárhagsaðstoð. Það er frábært þegar fólk kemst aftur út á vinnumarkaðinn eftir alls konar áföll. Á sama tíma sjáum við að atvinnulausir Mos- fellingar eru óðum að nálgast 2019 tölurnar en áður en Covid-19 skall á var þegar byrjað að halla undan fæti á vinnumarkaðinum og Mosfellingar fengu sinn skerf af því eins og aðrir. Þegar mest var voru 569 Mosfellingar á atvinnuleysisskrá, í mars 2021, en voru í september 2021 komnir niður í 297. Fæstir atvinnulausir Mosfellingar voru 124 í jan- úar 2019 og má því segja að enn er töluvert í land. Varðandi tilkynningar til barnaverndar hefur verið ákveðin fylgni milli íbúafjölg- unar og tilkynninga og þrátt fyrir að um 12% aukning hafi verið milli 2019–2020 lítur út fyrir að árið 2021 verði aukning um 5%. Á sama tíma stefnir í að tilkynningum um heimilisofbeldi fækki um 22% milli áranna 2020-2021 sem er gott. Ég minni á að á heimasíðu Mosfellsbæjar á mos.is er gulmerktur hnappur „Ég er barn og hef áhyggjur“. Þar geta börn sent inn til- kynningu ef þau þekkja einhvern sem þarf á aðstoð að halda og komið ábendingum til starfsmanna barnaverndar þar sem fullum trúnaði er heitið. Allar þær upplýsingar sem hafa komið fram hér að ofan eru aðgengi- legar á heimasíðu Mosfellsbæjar, mos.is, undir fundargerðum fjölskyldunefndar og hvet ég íbúa að kynna sér þær. Ég óska öllum Mosfellingum gleðilegrar hátíðar, árs og friðar og förum varlega um jólin í faðmi okkar nánustu. Rúnar Bragi Guðlaugsson, bæjarfulltrúi og formaður fjölskyldunefndar Mosfellsbæjar Covid-19 stöðuskýrsla fjölskyldusviðs Við Íslendingar stöndum í þeirri bjargföstu trú að náttúra landsins sé fögur, hrein og tær. Er það svo alls staðar? Ég stend í þeirri trú að Mosfellsbær sé mjög fallegur bær, náttúran og fjöllin allt um kring og fegurð vatna, lækja, áa og hafs sem umlykur okkur. Nýlega tók ég sæti í Heilbrigðisnefnd Kjósar- svæðis (HK) fyrir Mosfellsbæ. Þegar maður tekur við ábyrgð sem þessari vill maður leggjast yfir allt og lesa sér til. Það gerði ég og sá mér til mikillar undrunar niðurstöðu mengunarmæl- inga í viðamikilli og stórmerkilegri ársskýrslu heilbrigðiseftirlitsins fyrir árið 2019. Á bls. 24 (mynd 28) blasti við mér súlurit sem sýndi fjölda saur- kólígerla á hverja 100 millilítra vatns (saurkólíg/100ml) á nokkrum stöðum í Mosfellsbæ. Þar bar hæst súla við fornan stað hér í Mos- fellsbæ sem ber heitið Hestaþinghóll. Hvar er það? Ég varð hugsi og fann út að þessi staður hefur slegið öll met í Mosfellsbæ hvað þessa tegund mengunar varðar. Ég las mér til og fann frétt á vef RÚV frá því 15. júlí 2017 þar sem fjallað var um mikla saurkóligerlamengun á baðstaðnum í Nauthólsvík. Þá mældust þar 99 saurkólíg/100ml. Reyndist þetta meira en venja er á þessum þekkta baðstað höfuðborgarbúa. Sama ár, þ.e. 20. júlí 2017, birtist frétt á mbl.is um saurkólígerlamengun í Varmá, ánni okkar sem búið er að friða. Sú frétt gekk út á m.a. það að 14. júlí, þ.e. skömmu áður en fréttin birtist, var mikill fiskidauði í Varmá ásamt því að benda á mikla saurkólígerlamegnun. Þá mæld- ust 760 til 1000 saurkólíg/100ml. Þá var sagt í sömu frétt að reglugerð um fráveitur og skólp fyrir útivistarsvæði á fjölda saurkólígerla í að minnsta kosti 90% tilfella eigi að vera undir 100 saurkólíg/100ml miðað við lágmark 10 sýni (reglugerð nr. 450/2009). Hestaþinghóll er þar sem Varmá rennur út í Blikastaðakró/Leiruvoginn okkar hér í Mosfellsbæ og út á haf. Mosfellsbær, ásamt Reykjavíkurborg og með aðstoð Umhverf- isstofnunar, auglýstu áform um friðun í sumar á Blikastaðakró/ Leiruvogi (nær frá Geldinganesi í Reykjavík til botns Leiruvogs í Mosfellbæ). Frestur til að skila athugasemdum var gefinn til 10. ágúst 2021 og er það lágmarksfrestur eða 4 vikur. En hve mikil er mengunin við Hestaþinghól? Hún hefur verið að slá upp í um eða yfir 2400 saur- kólíg/100ml (mynd 27 í skýrslu HK) og að meðaltali hafa mælingar síðustu ár legið frá 400 til allt að 700 saurkólíg/100ml. Þarna við Hestaþinghól fer barnafólk í göngutúra allt árið um kring, fólk með gæludýr sín og sjálft til að njóta fegurðarinnar. Þó fólk baði sig hugsanlega ekki þarna gætu gæludýr gert það. Að- skotahlutir sem berast í fjöruna gætu því verið mengaðir. En er ekki hér eitthvað í meiriháttar ólagi ef þetta er orðið að viðvarandi ástandi? Mengun hér við ströndina slær út allar mælingar á höfuðborg- arsvæðinu og í þokkabót ætlar Mosfellsbær að kalla eftir friðun á hafsvæði, lífríki þess og hafsbotns sem bærinn sjálfur stendur að því að menga sem mest. Samkvæmt gögnum Umhverfisstofnunar var svæðið þarna skráð á náttúruminjaskrá 1978, Varmárósar frið- lýstir 1980 ásamt endurskoðun til aukinnar friðunar árið 2012 og nú í ár 2021. Svo má minnast á fitjasefið blessaða sem þarna vex við Hestaþinghól sem er friðuð háplöntutegund á válista. Ég veit að efni þessarar greinar minnar er ekki beint kræsilegt og mæli ég því eindregið með lestri hennar áður en kristileg hátíð okkar nær hámarki með dýrindis máltíð, hlátri, gleði og söng. Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár. Sara Hafbergsdóttir. Fulltrúi Miðflokksins í Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis Mosfellsbær og friðun Blikastaðakróar/Leiruvogs SPÆJARAHUNDURINN Spennandi og skemmtileg barnabók um klókan hund sem fær sakamálin í loppurnar þegar löggan hefur gefist upp á að leysa þau. Magnaðar teikningar prýða bókina.  BókaútgáfanHólar holabok.is / holar@holabok.is

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.