Mosfellingur - 09.12.2021, Blaðsíða 12
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ12
Miðbæjartréð fellt
Jólatréð sem nú prýðir Miðbæjartorgið var fellt með viðhöfn á dögunum en það kemur
nú í fyrsta sinn frá Skógræktarfélagi Mosfellsbæjar. Tréð er um 30 ára gamalt og hefur
vaxið og dafnað í Þormóðsdal þar sem finna má gull og græna skóga. Haraldur Sverris-
son bæjarstjóri var fenginn í verkið og naut aðstoðar skógræktarfólks í Mosfellsbæ.
bæjarstjóri, garðyrkjustjóri og
félagar úr skógræktarfélaginu
Landsbyggðarkaup-
félag á Múlalundi
Á Múlalundi er eina ritfanga-
verslunin í Mosfellsbæ. Reyndar
er verslunin ekki einungis rit-
fangaverslun heldur eins konar
„landsbyggðarkaupfélag“ sem
selur alls konar. Í versluninni fást
ritföng, bækur, ljósritunarpappír,
púsl, jólavörur, ljósaseríur úti og
inni, límbönd, prjónar, kaffi og kex
svo eitthvað sé nefnt. Nú er tími
til að setja upp ljósaseríur úti sem
inni, á Múlalundi fást flestar gerðir
af Led ljósaseríum. „Við erum alltaf
að heyra af Mosfellingum sem ekki
vita af búðinni. Margir halda að hér
séu bara seldar möppur og plöst
til fyrirtækja og átta sig ekki á hinu
fjölbreytta vöruúrvali og lága verði
sem hér er,“ segir Björn Heimir
verslunarstjóri. „Vefverslunin okkar
www.mulalundur.is er alltaf að
eflast. Við höfum opið milli 8 og 16
á daginn en lokað um helgar. Það
eru allir velkomnir á Múlalund.“
Hugarró í Nordic
angan á aðventunni
Í bakhúsi í Álafosskvosinni má
finna vinnustofu og verslun Nordic
angan. Gestir eru velkomnir að
líta við á mánudögum frá 16-18 og
kynna sér starfsemina en þar kennir
ýmissa grasa. Hægt er að skella
sér í ilmsturtu og upplifa íslenska
náttúru, fá kynningu á eimingar- og
ilmhönnunarstarfseminni og nýta
tækifærið til að versla í heimabyggð
fyrir jólin. Allar vörur eru unnar
út frá vistfræðilegu sjónarmiði og
notast er einungis við íslenskar
ilmkjarnaolíur og náttúruleg
hráefni í framleiðslunni. Vinsælustu
vörur Nordic angan eru unnar úr
íslensku greni. Pain Remedy og
Forest Therapy líkamsolíurnar eiga
uppruna sinn að rekja meðal annars
til mosfellskra trjáa og skilja engan
eftir ósnortinn. Einnig er hægt að
panta heimsóknir fyrir einstaklinga
og hópa með því að senda tölvupóst
á sales@nordicangan.com.