Mosfellingur - 09.12.2021, Page 24
Halldóra Sif Guðlaugsdóttir
fatahönnuður og klæðskeri er
hönnuðurinn á bak við fata- og
fylgihlutamerkið Sif Benedicta.
Á dögunum opnaði hún verslun og
vinnustofu ásamt tveimur öðrum hönn-
uðum í fallegu húsi við Laugaveg en þar
má finna kvenföt og fylgihluti sem unnin
eru úr hágæðaefnum. Hún segir mót-
tökurnar hafa gengið vonum framar og
er ánægð með að hafa getað opnað fyrir
jólahátíðina.
Halldóra Sif fæddist í Reykjavík 25.
september 1987. Foreldrar hennar eru þau
Ásta Björk Benediktsdóttir kennari og Guð-
laugur Pálsson eigandi Orku ehf. Halldóra
á einn bróður, Pál Helga f. 1994.
Fékk að endurraða í skápana
„Ég ólst upp í Kópavogi til 9 ára aldurs
og gekk í Snælandsskóla. Við krakkarnir í
hverfinu lékum okkur mikið úti við í hinum
ýmsu leikjum. Þegar ég var 5 ára þá kynntist
ég Ingibjörgu Helgu, við höfum verið góðar
vinkonur allar götur síðan.
Ég var mikið hjá ömmum mínum og
öfum á mínum yngri árum þar sem foreldr-
ar mínir voru sjálfstætt starfandi og stóðu
vaktina saman. Mér leið alltaf vel hjá þeim
því þau voru svo góð við mig og þolinmóð.
Ég var uppátækjasöm og fékk að bralla ým-
islegt, búa til eitthvað úr einhverju gömlu,
breyta fötum, búa til skart og eins hafði ég
gaman af því að endurraða í skápana.“
Forréttindi að alast upp á Íslandi
„Þegar ég var 7 ára þá keyptu föðurafi
minn og amma gamlan sveitabæ austur í
Landeyjum og síðar byggðu þau sér sumar-
bústað þar. Ég hef verið mikið fyrir austan
með fjölskyldu minni, þarna erum við með
hesta og njótum þess að ríða út.
Mér fannst alltaf gaman að vera í sveit-
inni innan um dýrin og leika úti allan dag-
inn. Það bjuggu börn þarna í kring og eins
komu mörg börn í heimsókn svo
maður hafði alltaf einhvern til að
leika við.
Það eru svo mikil forréttindi
að alast upp á Íslandi, svo mikið
frelsi og stutt í náttúruna alls staðar.“
Vorum í leynifélagi
„Árið 1996 fluttum við fjölskyldan í Mos-
fellsbæ sem þá var nú meiri sveit en bær.
Þar tók æskuvinkona mín áðurnefnda úr
Kópavoginum á móti mér en hún hafði flutt
í Mosó nokkrum árum á undan mér. Ingi-
björg kynnti mig fyrir Írisi, Valdísi, Sunnu
og Rakel og þar datt ég í lukkupottinn því
við náðum strax allar vel saman og höldum
hópinn enn í dag.
Við vinkonurnar gerðum
allt saman, æfðum fótbolta
með Aftureldingu, lærðum
saman, fórum á hestbak,
æfðum dans, vorum í leynifélagi og svo
vorum við klappstýrur. Ég svíf bara þegar
ég hugsa um þessar æskuminningar, þær
eru svo dásamlegar,“ segir Halldóra og
skellir upp úr.
„Mér gekk ágætlega í skólanum, gekk í
Varmárskóla og síðan í Gaggó Mos. Áhug-
inn á náminu minnkaði nú aðeins á ungl-
ingsárunum einfaldlega því það var svo
margt í gangi. Yfir sumartímann vann ég í
sjoppu foreldra minna í Háholtinu.“
Flutti til Danmerkur
„Við vinkonurnar fórum síðan allar í
Verzló. Fyrir mig voru það rosaleg viðbrigði
því ég átti hreinlega erfitt með að einbeita
mér. Ég íhugaði að hætta en skipti svo um
braut en var samt ekki viss hvað ég vildi
gera. Ég var byrjuð með manninum mín-
um þarna, Kristni Péturssyni en hann er
tveimur árum eldri en ég. Hann kláraði sitt
framhaldsskólanám í Menntaskólanum við
Sund og flutti svo til Danmerkur til að fara í
framhaldsnám í verkfræði.
Ég ákvað að klára námið í Verzló og flutti
svo til Kristins og fór í nám í Álaborgar-
háskóla í rekstrarhagfræði. Ég hætti eftir
mánuð því danskan var mér erfið og aftur
var einbeitingin að hrjá mig. Ég fór því að
vinna við að temja hesta sem ég hafði verið
að gera áður með skólagöngunni.
Við Kristinn eigum þrjú börn, Guðlaug
Benjamin f. 2012, Ástu Maríu f. 2018 og
Guðleifu Klöru f. 2019.“
Fann nám við hæfi
„Ég vissi ekkert á tímabili hvað mig
langaði til að læra en skráði mig svo á
sauma- og sníðanámskeið sem mér fannst
virkilega skemmtilegt. Þetta varð til þess að
ég sótti um í klæðskeranám og komst inn
Textilhandværkerskolen. Þetta var í fyrsta
sinn í 10 ár sem ég elskaði að læra, ég var
alltaf mætt fyrst í skólann og fór seinust. Ég
var bara ekki að trúa því að ég væri búin
að finna nám sem ég vildi vinna við í fram-
tíðinni.
Ég var á seinni árum greind með mikinn
athyglisbrest sem útskýrir margt eins og
til dæmis hvernig mér leið á minni skóla-
göngu. Það er alveg ljóst að verklegt nám
hentar mér mun betur en bóklegt.
Við Kristinn fluttum svo heim til Íslands
og ég hóf nám í Listaháskóla Íslands í fata-
hönnun.“
Fékk reynslu frá hönnuði í London
Eftir útskrift úr Listaháskólanum fór
Halldóra að starfa sem aðstoðarhönnuður
hjá Hildi Yeoman fatahönnuði og líkaði
vel. Það blundaði samt í henni að prófa að
starfa hjá einhverjum af sínum uppáhalds
hönnuðum erlendis til að fá reynslu þannig
að hún sótti um á nokkrum stöðum. Hún
fékk síðan starf sem lærlingur í WRTW-
deildinni hjá tískuhúsi Alexander McQueen
í London og flutti þar með út. Þar tók hún
meðal annars þátt í hönnunarferlinu á vor-
og sumarlínunni 2017.
Eigið vörumerki, Sif Benedicta
Eftir að Halldóra Sif flutti heim frá
London fór hún að hanna og þróa sitt eigið
vörumerki, Sif Benedicta. Hún sérhæfir sig
í lúxus leðurhandtöskum, plexítöskum og
skarti, þá helst eyrnalokkum, hálsmenum,
hárspennum og silkislæðum.
„Ég byrjaði á því að gera handtöskur og
fylgihluti en svo kom fyrsta fatalínan mín
út á Hönnunarmars í vor en framleiðsla úr
þeirri línu er að koma út núna fyrir jólin. Ég
eyði miklum tíma í að hanna góð snið, finna
óvæntar litasamsetningar og prentmynstur
og svo stílisera ég fötin á mismunandi vegu,
þetta eru aðallega jakkaföt, skyrtur og kjól-
ar fyrir konur.“
Opnuðu verslun við Laugaveg
Halldóra Sif var að opna, ásamt tveimur
öðrum hönnuðum, verslun og vinnustofu í
afar fallegu húsi við Laugaveg 16 í Reykjavík
sem heitir Apotek Atelier. Þar má finna tösk-
ur, kvenföt og fylgihluti úr hágæðaefnum.
„Undirbúningurinn að opnuninni hefur
staðið yfir á þriðja mánuð, við hönnuðum
saman allt hér að innan, gerðum fram-
leiðsluna klára og komum með nýjar vörur,“
segir Halldóra Sif um leið og hún sýnir mér
verslunina.
„Móttökurnar hafa verið vonum fram-
ar, nú er aðventan gengin í garð og jólin
á næsta leiti, við erum afskaplega ánægð
með að hafa náð að opna fyrir jól. Það
verður gaman að taka á móti þeim sem
eru á röltinu um bæinn,“ segir Halldóra
Sif og brosir um leið og hún kveður mig í
dyrunum.
Í fyrsta sinn í tíu ár elskaði ég
að læra, ég var alltaf mætt
fyrst í skólann og fór seinust.
Fjölskyldan, Ásta María, Halldóra Sif, Guðlaugur
Benjamin, Kristinn og Guðleif Klara.
- Mosfellingurinn Halldóra Sif Guðlaugsdóttir24
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir, Birta Rán Björgvinsdóttir og úr einkasafni.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Hef alltaf haft gaman
af því að skapa
Halldóra Sif Guðlaugsdóttir framleiðir kvenföt, töskur og fylgihluti úr hágæðaefnum
ung að árum halldóra sif og guðrún lísa
á brúðkaupsdaginn
HIN HLIÐIN
Býrðu um þig á morgnana? Ekki virka
daga en geri það um helgar.
Hvaða tegund af tannkremi notar þú?
Colgate.
Bestu kaup sem þú hefur gert? Svartar
leðurbuxur sem ég keypti á markaði á
1.500 kr. og nota enn.
Eitt atriði um þig sem fólk veit ekki
um? Ég keppti í hnefaleikum þegar ég bjó
í Danmörku.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Þegar ég var 6 ára þá ætlaði
ég að verða lögga eða prinsessa með
bleikt hár en síðar fornleifafræðingur.
Óvenjulegasta lífsreynslan? Að nudda
nokkra kílómetra af efni ásamt öðrum fyrir
brúðarkjól handa ítölskum stílista þegar
ég vann hjá Alexander Mcqueen.
Fallegasti staður í Mosfellsbæ?
Snoppa í Varmadal, heimili foreldra minna.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
hefur gert? Eignast börnin mín, ferðast
til Balí með fjölskyldunni og ferðast
um Ísland á hestbaki.