Mosfellingur - 09.12.2021, Síða 32

Mosfellingur - 09.12.2021, Síða 32
 - Fréttir úr bæjarlífinu32 Framsókn til framtíðar Kæri sveitungi, eins og flestum íbúum Mosfellsbæjar er kunnugt þá verða sveitarstjórnarkosningar þann 14. maí 2022. Spennandi tími er fram und- an og hægt að hafa góð og mikil áhrif. Við framsóknarfólk ætlum okkur að sjálfsögðu að mæta sterk til leiks og höfum nú þegar hafið kosningaundirbúning. Það er tilhlökkun í okkar fólki og kominn tími til aðgerða og sóknar og gera góðan bæ enn betri. Þann 17. ágúst sl. var haldinn aðalfund- ur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar og ný stjórn kosin: Stjórnin er þannig skipuð: Halla Karen Kristjánsdóttir formaður, Þorbjörg Sól- bjartsdóttir varaformaður, Örvar Jóhanns- son ritari, Kjartan Helgi Ólafsson gjaldkeri og Leifur Ingi Eysteinsson meðstjórnandi. Varamenn: Eygló Harðardóttir og Sigurður E. Vilhelmsson. Á félagsfundi okkar 10. nóvember sl. var svo tekin ákvörðun um að við röðun á framboðslista okkar fyrir kosningarnar í vor verði notast við uppstillingu. Á fundinum var einnig skipuð uppstillingarnefnd sem þegar hefur tekið til starfa og er það Ævar Sigdórsson sem leiðir starf nefndarinnar. Við viljum hvetja alla sem hafa áhuga á að koma á fundi hjá okkur, mæta í gönguferðir eða taka þátt í starfinu með okkur á einn eða annan hátt, til að láta sjá sig á auglýstum viðburðum eða hafa samband við okkur til að tryggja að raddir sem flestra heyrist. Þín rödd er mikilvæg og þú skiptir máli fyrir bæjarfélagið. Það er okkur mikilvægt að eiga gott samráð og samvinnu við ykkur bæjarbúa. Við erum traust og heiðarleg, ætlum að vera með gleðina í fyrirrúmi og látum hana drífa verkin áfram og heilbrigða skynsemi ráða ferðinni. Framsóknarkveðja Halla Karen Kristjánsdóttir formaður Jólatrjáasalan í Hamrahlíð við Vesturlandsveg hefst laugardaginn 11. desember klukkan 14:00. Jólasveinar munu mæta á svæðið og verður því fjör í Jólaskóginum í Hamrahlíðinni. Bæjarstjórinn mun höggva fyrst tréð auk þess sem Mosfellskórinn syngur nokkur lög. Jólatrjáasalan er fyrir löngu orð- inn fastur liður í undirbúningi jólanna hjá mörgum íbúum Mosfellsbæjar og nærsvei- tunga. Það er skemmtileg hefð að skunda í skóginn og velja sér fallegt tré. Oft er það nú þannig að því meiri vinna og tími sem fer í að velja tréð, því meiri merkingu hefur það í stofunni. Í Hamra- hlíðinni er nægt úrval af blágreni, sitka- greni og stafafuru sem verður vinsælla jólatré með hverju árinu sem líður. Hvetj- um við því sem flesta að mæta í fjallið og skoða úrvalið í skóginum. Einnig er í boði að velja sér tré úr rjóðrinu þar sem eru tré sem hafa verið felld úr skógum félagsins. Með kaupum á jólatrjám er stutt við starf Skógræktarfélags Mosfellsbæjar, en mest af starfsemi félagsins er unnið í sjálfboða- vinnu. Hluti af ágóða jólatrjáasölunnar er nýttur til að gróðursetja allt að 30 tré fyrir hvert selt tré. Með kaupum á mosfellskum jólatrjám er því verið að stuðla að aukinni skógrækt innan Mosfellsbæjar. Hluti af þessum trjám eru gróðursett milli annarra trjáa og vaxa því upp í skjóli, og hluti gróðursettur í ný svæði sem auka þar með flatarmál skóga innan sveitarfélagsins. Þessar gróðursetningar gefa af sér útivist- arskóga, viðarnytjar og framtíðar- jólatré. Með hverju seldu jólatré er því margþættur ávinningur svo ekki sé minnst á kolefnisbindingu með trjágróðri. Búast má við að af þessum 30 trjám sem gróðursett eru fyrir hvert selt tré, muni 15 halda áfram vexti og þar með binda kolefni næstu áratugina. Hin 15 trén munu ýmist deyja í æsku, verða nýtt sem grisjunarviður eða verða að fram- tíðarjólatrjám. Jólaskógurinn er því sjálfbær, það bætast fleiri tré við en eru tekin út. Þetta er einnig í takti við nýjustu áherslur ríkisstjórnarinnar um aukna skógrækt til að ná markmiðum um 55% samdrátt í losun gróðurhúsaloft- tegunda fyrir árið 2030. Það þurfa allir að taka höndum saman til að ná þessu mark- miði. Þar skiptir auðvitað mestu að við drögum sem mest úr losun. Kaup á íslenskum jólatrjám eru góð leið til að taka þátt í bindingu á móti losun. Það sem skiptir þó mestu máli er að þið getið mætt til okkar í jólatrjáasöluna í Hamra- hlíðina og valið ykkur jólatré úr skóginum eða rjóðrinu og notið svo jólanna við furu- eða greniilminn. Gleðilega aðventu. Björn Traustason Formaður Skógræktarfélags Mosfellsbæjar Jólaskógurinn í Hamrahlíð

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.