Mosfellingur - 09.12.2021, Síða 36
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Í eldhúsinu
Jóla-
pistill
Þegar þetta er skrifað er annar í aðventu
... mér líður samt sem áður eins og það
hafi verið í gær sem sagt var við mig að
það væru rétt rúmir 150 dagar í jólin.
Eins skrítið og það hljómar þá er þessi
blessaði covid-tími bara frekar fljótur
að líða, maður gerir ekki mikið annað
en að halda sig innandyra og það sem
var áður tilhlökkun í helgarfrí er orðið
tilhlökkun í að komast í vinnu.
Þegar Covid-tímar verða gerðir upp þá
verður tekið undir það hvað það var nú
auðvelt að hringja sig inn veikan í vinnu
eða skóla „gjemli ég er tæpur í hálsinum
ég held ég treysti mér ekki innan um
fólk í dag,“ og það þrætir enginn við
mann eða biður mann um að harka
þetta af sér eða segir „mættu og svo
sérðu bara til hvernig þú verður“. Það er
ekki til í myndinni.
En þetta átti að vera jólapistill, mikið er
ég spenntur fyrir jólunum og þá kannski
sérstaklega matnum þó svo það sé orðið
alltof auðvelt að næla sér í hamborgar-
hrygg löngu fyrir jól, þetta er orðið jafn
hversdagslegt og lasagna í mötuneytum
bæjarins.
En mikið á að láta okkur vinna um jólin
og það er kannski bara fyrir bestu að
láta aðfangadag vera á föstudegi „óþarfa
frí um jólin það tíðkaðist ekki hér á
árum áður,“ myndi kannski einhver
segja í pottunum, en þetta er betra fyrir
veskið og sennilega aldrei eins gott eins
og í janúar að fá fínt inn á heftið.
Til jólasveinanna sem eru væntanlegir
á næstunni vil ég segja passið að spritta
ykkur vel og ekki vera að fara milli húsa
ef þið eruð með minnstu einkenni.
Það er ekki gott að senda alla í sóttkví
yfir hátíðarnar en besta við það ef þið
treystið ykkur ekki á sleðana þá getið þið
heyrt í Heimkaup og þeir keyra þessu
upp að dyrum fyrir ykkur.
Heiða og Bragi skora á Laufeyju og Baldur að deila næstu uppskrift
Aðalheiður Helgadóttir og Bragi Þor-
steinsson deila að þessu sinni með okkur
skemmtilegum uppskrifum af jólamöndl-
um. Fyrri uppskriftin segja þau að sé
tilvalin með uppáhalds jólabjórnum og
seinni er tilvalin með góðum kakóbolla
eða í jólapakkann.
Jólamöndlunasl m/rósmarín og chili
(Tilvalið með uppáhalds jólabjórnum)
• 2 msk góð olía
• 1 msk rósmarín
• 1-2 tsk gróft salt
• 1 tsk chiliduft
• ½ tsk cayenne pipar (má sleppa)
• 3 dl möndlur m/hýði og 3 dl
pekanhnetur
Blandið öllu saman í skál og setjið á
ofnplötu klædda bökunarpappír. Setið inn
í 170° heitan ofn í 15-20 mín. og hrærið
reglulega á meðan. Takið út, kælið og njótið.
Klassískar jólamöndlur
(Tilvalið með kakóbolla eða í jólapakkann)
• ½ bolli vatn
• 1 bolli sykur (+2 msk í lokin)
• 1 msk kanill
• 1 tsk vanillusykur
• 2 bollar möndlur m/hýði
Blandið saman vatni, sykri, kanil og
vanillusykri á pönnu.
Þegar suðan kemur upp er möndlunum bætt
við og hiti lækkaður.
Hrærið vel þar til allur vökvi hefur gufað
upp (ca 15 mín).
Stráið ca 2 msk af sykri í lokin yfir allt og
hrærið nokkrum sinnum til viðbótar (ca 5
mín).
Hellið möndlunum á bökunarpappír, kælið
og njótið.
bragi thor
Jólamöndlunasl
hjá heiðu og braga
Kristinn Orri fæddist 7. júní 2021.
Hann var 18 merkur og 53 cm. Foreldr-
ar hans eru Tinna Sif Guðmundsdóttir
og Daði Freyr Davíðsson. Eldri systur
Kristins Orra eru Caritas Rós, 8 ára og
Þóra Huld 3 ára.
- Heyrst hefur...36
heyrst hefur...
…að bæjarstjóri utan af landi sé
búinn að vera að íhuga framboð í
Mosfellsbæ.
...að Pósturinn sé að leita að staðsetn-
ingu fyrir Póstbox í Mosó.
...að RÚV sé að fara að taka upp Stund-
ina okkar í jólagarðinum við Hlégarð
í næstu viku og verður Jólastundin
með Ragnhildi Steinunni, Sveppa,
Frikka Dór og fleirum sýnd á jóladag.
...að búið sé að ráða hljómsveitina
Albatross ásamt góðum gestum til
að skemmta á Þorrablóti Aftureld-
ingar 22. janúar 2022.
...að Kolbrún Þorsteins ætli að
gefa kost á sér í 1. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðismanna þann 5. febrúar.
...að strákarnir í Kaleo séu að stefna að
því að kveðja Mosfellinga á Barion á
milli hátíðanna áður en þeir leggja í
þriggja ára túr.
...að jólaskógurinn í Hamrahlíð verði
opnaður á laugardaginn kl. 13.
...að mosfellski fimleikasnillingurinn
Viktor Elí hafi landað silfrinu á EM í
fimleikum ásamt íslenska karla-
landsliðinu.
...að farið verði í hugmyndasamkeppni
um lystigarð í Bjarkarholtinu í
miðbæ Mosfellsbæjar.
...að Árni Magg og Thelma hafi eignast
son á dögunum.
...að jólalest Coca Cola keyri í gegnum
Mosfellsbæinn á laugardaginn upp
úr kl. 17.
...að ötulum sjálfboðaliðum í kringum
handboltann hafi verið hampað í
Seinni bylgjunni.
...að Steindinn okkar eigi afmæli í dag.
...að knattspyrnudeildin muni aðstoða
jólasveinana við að afhenda gjafir á
aðfangadag.
...að rafmagnið sé alltaf að fara af
Leirvogstungunni.
...að það verði fjölmenn skötuveisla
á Blik á Þorláksmessu og Greta
Salóme muni skemmta.
...að til standi að setja listaverk
á hringtorgið sem kennt er við
Kjarnann í miðbæ Mosfellsbæjar.
...að það verði uppákomur í Jólagarð-
inum næstu tvo sunnudaga, heitt
kakó, kórar, sveinkar og stemning.
...að Þorgeir Leó og Wentzel Steinarr
verði með Barsvar á Barion í kvöld.
...að stefnt sé að því að
Hlégarður verði tilbúinn eftir endur-
bætur á fyrstu mánuðum nýs árs.
...að bæklingur með eldunarleið-
beiningum frá Kjötbúðinni fylgi
Mosfellingi í hvert hús í dag.
...að jólatréð á Miðbæjartorginu sé frá
Skógræktarfélagi Mosfellsbæjar.
...að Íris og Orri hafi eignast strák í
vikunni.
...að Ási Stef og Constance Riam hafi
trúlofað sig í Karíbahafinu.
mosfellingur@mosfellingur.is
Atli Óskarsson, fæddur 21. júní 2021.
Foreldrar eru Hugrún Þorsteinsdóttir
og Óskar Smári Haraldsson. Skagfirsk-
ur Mosfellingur.
Nýjustu frændsystkini
Mosfellsbæjar.
Drengur Benediktsson
fæddur 13. október 2021
á Akranesi. Hann var 10
merkur og 47 cm. For-
eldrar hans eru Benedikt
Geir Jóhannesson og
Sædís Rán Sveinsdóttir.
Katla Maren Antons-
dóttir fædd 10. apríl
2021 í Reykjavík. Hún
var 15 merkur og 50 cm.
Foreldrar hennar eru
Anton Örn Kristjánsson
og Ingibjörg Bergrós
Jóhannesdóttir.