Bræðrabandið


Bræðrabandið - 01.11.1953, Qupperneq 3

Bræðrabandið - 01.11.1953, Qupperneq 3
3 - "Bræðrabandið11 10.IX' 53 of lítið og mátti heita að það væri að falli komið. Hefur endurbygging þess og stækkun verið hið mesta átak fyrir söfnuðinn þar, og hafa systkinin óspart lagt fram fé og sjálfhoðaliðavinnu til þessarra framkvæmda. Enda er bygg- ingin nú hin myndarlegasta og mjög hontug fyrir starfsemi skólans og safnaðarins í heild, En skólahúsið hefur jafnan verið notað fyrir starfsemi ungmennafélagsins og systrafél- agsins, og hefur starfsemi þessarra fólaga staðið með miklum blóma um margra ára skeið, þrátt fyrir erfið starfsskil- yrði, sem stafað hafa af þröngu og ófullnægjandi húsnæði. Bessa nýja áfanga í starfsemi safnaðarins var . minnst á sórstakri sarnkomu, sem haldin var laugardagskvöld- ið 24. þ.m.. Flutti Bragi Straumfjörð kennari skýrslu um fjárhag byggingarframkvæmdanna og gang þeirra yfirleitt. Str. Margrót Guðmundsdóttir flutti frumsamið ljóð og enn- fremur frásögn um starfsemina í gamla húsinu, sem fell, og vonirnar, seiií tengdar eru við rúmgóða húsið, sem risið er af grunni. Skólabörnin komu fram, undirritaður talaði og myndir voru sýndar. Vctrarstarfsemi ungmennafólagsins er nú að hefjast, barnaskólinn er í fullum gangi og fullskipaður nemendum. Fjórir unglingar frá Vestmannaeyjasöfnuði eru nemendur í Hlíðardalsskóla í vetur, en tveir útskrifuðust þaðan s.l. vor. Megi blessun Drottins hvíla yfir söfnuði þessum fram- vegis og megi honum auðnast að bcra mikinn ávöxt Guði til dýrðar. Haustsöfnunin virðist hafa gengið greiðara í haust en nokkru sinni fyrr. Að minnsta kosti er það svo hór í^Reykjavík, að þátttakan í henni hefur verið almennari en áður, og svo sem kunnugt er vinna margar hendur létt verk. Takmarkið, sem okkur hafði verið sett, eru 55 þúsund krónur, Mun þeim nú vera náð að mestu leyti. En eitthvað mun vera eftir af blöðum ennþá, og ekki má unna sér neinnar hvíldar fyrr en hvert blað er gengið út. Margir, bæði innan safnaöar- ins og utan hans, hpifa látið í ljós ánægju sína með efni blaðsins. Það á erindi til fólksins. Fað þyrfti að komast inn á hvert heimili. Þeir, som enn hafa blöð undir höndum, ættu að hraða sér að koma þeim út, og þau, sem eftir verða þegar öll svæði eru búin, ætti að endursenda skrifstofunni sem fyrst. í síðastliðinni viku voru nemendur og starfsfólk Hlíðardalsskólans öll í haustsöfnun. Hver nemandi og starfs- fólkið allt tók þátt, og blaðið fór inn á hvert heimili í nágrenni skólans. Að lokum innilegar kveðjur til allra systkinanna nær og fjær. Þótt við séum dreifð og gegnum hvert sínu starfi, erum við öll eitt í þjónustu hins sama göfuga mál- efnis. Oft hugsum við til ykkar, sem fjarlæg eruð, tölum um ykkur og biðjum fyrir ykkur. Tími vinnst ekki til að skrifa einstaklingum, en Bræðrabandið er tengiliður milli

x

Bræðrabandið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.