Bræðrabandið - 01.11.1953, Qupperneq 7
7 -
"Bræðrabandið11 10.11'53
kraftana og vora tiltúin að standa upp og skína, þegar
myrkur heimsins er svartast.
Spámaðurinn Jesaja segir, að velgerðarstarfsemin
muni veita heiminum ljós: "ká mun lýós þitt kruna fram, sem
morgunroði.". Það er skiljanlegt. Nýtt líf í söfnuðinum
mun koma því til leiðar, að hann lýsi öðrum. Og hið nýja
líf kemur þegar andi Guðs fær að fylla meðlimina, og þeir
taka höndum saman í kærleiksþjónustu fyrir aðra, "Kristur
gefur þeim anda af sínum anda og líf af sínu lífi." Þetta
gerir hann vegna þess að þeir nota það honum til dýrðar.
Hann úthellir ekki anda sínum og andlegu lífi í dauða
hrunna. En hann þráir að úthella því gegn um lifandi leiðsl-
ur - hreinar leiðslur - leiðslur, sem eru öðrum til hless-
unar. Aftur vitnum við til Jes. 58,11. Hór er átt við
rennandi straum. Slíkur söfnuður hefur eitthvað að gefa
heiminum. Hann gefur von hinum örvæntandi, hinum syrgjandi
veitir hann olíu gleðinnar, hann gefur líf, ljós og kærleika.
Með slíkar horfur framundan ættum við sem söfnuður
að auka og efla velgerðarstarf okkar. Að lokurn þetta:
Komumst við hjá því að skilja, að afstaða okkar til þessa
máls hefur að gera með andlega 'velferð okkar sjálfra?
Shr. Matt. 25,34-40.
MINNINGAHOES
i! ti i! i! i! H tt n tt n n n n n n n u n n 1. n n n
Str. Herdís Magnúsdóttir
var jarðsett frá Aðventkirkjunni í Reykjavík 10. apríl s.l.
Herdís sáluga var meðal hinna fyrstu, sem aðhyllt-
ust Aðventhoðskapinn í Vestmannaeyjum fyrir um þaö hil 30
árum. Var hún síðan í flokki hinna öruggu og trúu meðlima
þess safnaðar um langt skeið. Síðar fluttist hún til
Roykjavíkur og dvaldi hór til dauðadags. Systir Herdís var
meöal hinna kyrrlátu og hógværu, en vcrk hennar vitnuðu um
það, sem í hjartanu hjó. Vinnuafköst hennar fyrir systra-
félögin voru ótrúlega mikil.
Fjölmennur hópur ættingja, vina og trúsystkina var
viðstaddur útför hennar. Undirritaður flutti kveðjuorð,
sr. Sigurhjörn Einarsson prófessor rakti æfiferil hinnar
látnu og jarðsöng. Athöfninni var útvarpað. J.G.
Br. Agnar Magnússon
andaðist á heimili sfnu hinn 3. ágúst s.l. og var útför hans
gerð frá Aðventkirkjunni 11. ágúst að viðstöddu miklu fjöl-
menni.
Br. Agnar var meðlimur Aðventsafnaðarins í Reykja-
vík í flciri áratugi. Síðustu mánuðina gat hr. Agnar ekki
sótt samkomur safnaðarins sökum heilsuhrests. Hann elskaði
Aðventhoðskapinn og honum var það mikil ánægja að leggja
fram krafta sína og hæfileika í þjónustu hans. Hann elsk-
aði kirkju sína og söfnuð sinn og gat í sannleika sagt: