Bræðrabandið


Bræðrabandið - 01.11.1953, Qupperneq 10

Bræðrabandið - 01.11.1953, Qupperneq 10
10 - "Brsðrabandið11 10.11’33 álíta það hluta af kristinni skyldu sinni aö sjá um skemmt- anir fyrir sig og aðra til framdráttar málstað Krists. Hægt en sígandi skilnaður frá Guði. - Gleymum því ekki, að söfnuðurinn stckkur ekki í einu vetfangi skref sín til fráfalls, heldur lætur hann hægt og sígandi undan álagi og áleitni heimsins og villu óvinarins. Hví skyldum við ekki gera Ritninguna sem mælikvarða og leiðsögn okkar í þessu sem öðrum efnum? Það er ekki minnsta tilefni til þess gefið í Ritningunni, að það sé skylda safnaðarins að skemmta fólk- inu. Ef Frelsarinn hefði álitið slíkt vænlegt tæki til að komast í samband við syndara, eða halda þeim, er þegar hefðu öðlast afturhvarf, hefði hann áreiðanlega sýnt það með fordæni sínu. Sumar kirkjudeildir hafa menntaða sórfræðinga í þjónustu sinni til að sjá um skemmtanir fyrir unga fólkið. Það er engu líkara en Kristi hafi yfirsést yfir það, því við lesum; "Og frá honum er sú gjöf komin, að sumir eru postular, sumir spámenn, sumir trúboðar, sumir hirðar og kennarar, til þess að fullkomna hina heilögu, til að láta þeim þjónustu í té, líkama Krists til uppbyggingar." Ef.4,11. Hér er að engu leyti séð fyrir opinberum skemmtun- um til að draga að unga eða gamla. Ef slíkt væri heppilegt tæki til að vinna fólk til Boðskaparins, hofði Drottinn feef- ið fyrirmæli um það. Þaö er ekki einungis að starf spámann- anna og postulanna sé gersneytt slíku, heldur höfum við sterka ástæðu til að halda, að allt slíkt sé af öðru sauða- húsi komið. Sláandi lýsing. Eitt eftirtektarvert dæmi er framsett í Biblíunni um mann í ábyrgðarstöðu, or lét undan beiðni óhelgaðra manna um skemmtun, Hin óstyrka,eftirgefanlega stefna hans og löngun í vinsældir var greidd ægilegu verði. Aron gerði gullkálfinn og "lýðurinn settist niöur til að eta og drekka, og þeir stóðu upp til að leika", en dómur Guðs kom yfir fólk- ið og þrjú þúsund þeirra dóu á þeim degi. "Hvers oft á vorum dögum er skemmtanafýsnin dulbúin, "yfirskin guðhræðslunnar". Trúarbrögðin, sem loyfa fólki að helga sig eigingjarnri eða holdlegri eftirlátssemi um leið og trúarathafnir eru um hönd hafðar, eru jafnkær fjöld- anum nú og á dögum Israels. Og enn eru eftirlátir Aronar til, sem jafmframt því að hafa á hendi ábyrgðarstöðu í söfn- uðinum, láta eftir óskum hinna óhelguðu, og ýta þannig undir syndir þeirra." Patr. and Prof. 317• 1 annari skýringu um sama efni lesum við: "Þar fór fram kæti og dans, glaðværð og söngur í blindni, sem blekkti skynsemina, einnig eftirlátssemi úr hófi fram, lostafullar tilfinningar, allt þetta blandaðist saman í þessum viðbjóðslega atburði.... Eg get ekki nú íhugað þessa sögu lengra, en eg bið ykkur í hverri borg, hverjum bæ, á hverju heimili, eg bið hvern einstakling að athuga þessa lexíu, þessi ritningarvers með hinum innblásnu orðum í hugas "Sá, sem stendur, gæti sín, að hann ekki falli." Ættu ekki feður og mæður að taka þessa alvarlegu aðvörun til greina? Ættu þau ekki að benda æskufólkinu á hætturnar, sem

x

Bræðrabandið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.