Viljinn - 01.10.1939, Síða 4

Viljinn - 01.10.1939, Síða 4
- 4 - unaraflið fá lausan tauminn hér, er oss hinsvegar ekki bannað, heldur er það skylda vor að færa oss í nyt, hið á- reiðanlega efni um siðu og háttu þeirra tíma, eða urn atburði seinna á æfi hans, sem benda til hinna fyrrri ára hans, til þess að sameina bernsku hans við frásögn guðspjallanna, þar sem þau taka upp aftur þráðinn í æfisögu hans. Það er mögu- legt á þennan hátt að fá að minnsta kosti að nokkru leyti sanna hugmynd um, hvað hann var í bernsku og æsku, og undir hvaða áhrifum hann þroskaðist svo mörg þögul ár. Vér vitum undir hvaða heimilisáhrifum hann ólst upp. Heim- ili hans var eitt af þeim, sem var prýði landi hans eins og þau eru í voru landi - nefnilega heimkynni guðrækins og géf- aðs verkafólks. Jósef - húsfaðirinn, var heilagur maður og vitur. En að ekki er á hann minnst seinna í lífi Krists, er venjulega talið vottur um, að hann hafi dáið, meðan Jesús var í bernsku, og ef til vill lagt umönnun heimilisins é herðar Jesú. Móðir hans hefur að líkindum haft hin eindrægn- ustu áhrif á allan ytri þroska hans. Hvað hún var, getum vér séð af þeirri staðreynd, að hún var kosin af öllum konum í heimi til að vera krýnd æðsta kvenlegum heiðri. Söngurinn sem hún orkti sýnir það, að hún hefur verið trúrækin kona og föðurlandsvinur og hið besta skáld, hafði lesið ritninguna og einkum um hinar miklu konur, því ljóðiö var þrungið af • húgmyndum gamlatestamentisins og hagaðeeftir söng Hönnu. Andinn er frábærilega auðmjúkur, og þó fær um aö meta til fúllnustu þann heiður, sem henni var veittur. HÚn var eng- in undursamleg himindrotning, eins og hjátrúin hefur gert hana, heldur frábærilega hrein og heilög, elskurík og göfug- lynd kona. Þetta er nægileg greinargerð henni til hánda. Jesús ólst upp í elsku hennar og elskaði hana heitt á móti. En það voru fleiri á heimilinu. Hann átti bræður og syst— ur. íbheilagri ritningu höfum vór bréf frá tveimur bræðriim hans, Jakobi og JÚdasi, og þar getum vér lesið, hvernig lund- erni þeirra var. Það er ef tilavill ekki ótilhlýðilegt af hinurn ströngu orðum í bréfum þeirra, að álíta að þeir hafi verið harðir .og óvægir menn, meðan þeir voru vantrúaðir. Að minnsta kosti er það víst, að þeir trúðu ekki á hann í lif- anda lífi, og ekki líklegt, að þeir hafi verið vanir félagar hans í Nasaret. Hann var að líkindum mjög einmana og til- finningin í orðum hans - að spámaður væri hvergi minna met— inn en í föðurlandi sínu og á heimili sínu - náði að líkind- um til áranna, áður en hann hóf starf sitt. - Eramh.

x

Viljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Viljinn
https://timarit.is/publication/1700

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.