Austurglugginn - 26.04.2013, Blaðsíða 7
Föstudagur 26. apríl AUSTUR · GLUGGINN 7
FYRIR FÓLKIð Í LANDINU
Á EGILSSTÖÐUM OG Í NESKAUPSTAÐ
KOSNINGAMIÐSTÖÐVAR VG
STEINGRÍMUR
Kosningamiðstöð Vinstri grænna í Kaupvangi 5 á Egilsstöðum er opin:
Miðvikudag kl. 17-21. – Fimmtudag kl. 17-21. – Föstudag kl. 13-22.
Á kjördag verður opið frá kl. 10. Kosningakaffi frá kl. 15-18.
Símanúmer kosningamiðstöðvar á Egilsstöðum er 472 1166. Þeir sem þurfa akstur
á kjörstað á kjördag geta hringt í símanúmer kosningamiðstöðvar.
Kosningamiðstöð Vinstri grænna í Mýrinni í Neskaupstað er opin:
Miðvikudag kl. 17-19. – Fimmtudag kl. 17-19. – Föstudag kl. 17-19.
Á kjördag verður opið frá kl. 13. Kosningakaffi frá kl. 15-18.
Símanúmer kosningamiðstöðvar í Neskaupstað er 861 1619. Þeir sem þurfa akstur
á kjörstað á kjördag geta hringt í símanúmer kosningamiðstöðvar.
BJARKEY
EDWARD
ALLIR
VELKOMNIR
Miðvikudaginn 17. apríl var haldin vegleg gjafa-
móttaka á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
FSN, þar sem velferðaráðherra Guðbjartur Hann-
esson tók formlega á móti gjöfum sem höfðu borist
sjúkrahúsinu á s.l. ári 2012-13.
Verðmæti gjafa sem þar voru afhentar, voru að
verðmæti kr: 70.000.000,00 og í móttökunni
tilkynnti SÚN um að félagið myndi kosta endur-
nýjun á svæfingavél fyrir skurðstofu FSN, að
verðmæti kr. 7.000.000,00.
Samtals eru því verðmæti gjafa sem sjúkrahúsi
FSN hefur borist á einu ári að verðmæti
a.m.k: 77.000.000.
Bar þar af nýtt og fullkomið 16 sneiða
CT – tölvusneiðmyndatæki sem Holl-
vinasamtök FSN, höfðu safnað fyrir
og voru þar stærstu gefendur, Síldar-
vinnslan, SÚN (Samvinnufélag útgerð-
armanna í Neskaupstað) Alcoa- Fjarðaál
o.fl. en söfnun hafði staðið yfir frá árinu
2010, en um er að ræða endurnýjun á
eldra og minna tæki sem gefið var til
FSN árið 2005. Af öðrum gjöfum má
nefna : Nýtt og fullkomið fæðingarúm
fyrir fæðingardeild, 4 rafdrifin sjúkrarúm
á sjúkradeild, Pentax speglunarbúnað
með myndgjafa fyrir skurðstofu FSN,
og monitorar og og hugbúnaður fyrir
hjartasjúklinga. Þá var lagður fyrir ráð-
herra listi yfir brýna þörf á endurnýjun á búnaði
spítalans, sem nú þjónar sem Umdæmissjúkrahús
Austurlands, með
bráðaþjónustu, fæð-
ingardeild og legu-
deildum, samkvæmt
heilbr igðislögum.
Ráðherra þakkaði
fyrir höfðinglegar
gjafir frá nærsam-
félaginu, til heilbrigðisþjónustunnar, sem sýndi
góðan hug og stuðning við mikilvæga þjónustu
sem veitt væri íbúum Austurlands og öflugu
framleiðsludrifnu atvinnulífi til lands og sjávar í
fjórðungnum, sem skapaði mikilvægan gjaldeyri
fyrir land og þjóð.
Í móttökunni var einnig tilkynnt um framlag
einstaklings, sem í tilefni af áttræðisafmæli sínu
ánafnaði FSN gjöf til hljóðfærakaupa, og var
afhjúpað, nýtt og glæsilegt rafmagnspíanó, sem
er færanlegt á milli deilda, til afþreyingar.
Til hamingju íbúar Fjarðabyggðar