Viljinn - 01.12.1958, Qupperneq 4
■barn reifað og liggjanái í jötu.
Hvílíkur viðburður - "Engill Drottins stóð hjá
þeim og dýrð Drottins Ijómaði í kringum þá".
Ihugum þessa mynd.
Sjálfur Guð himinsins stígur niður til syndugra
manna - Kærleikurinn íklæðist hmldi.
"Svo elskaði Guð heiminn,að hann gaf sin sinn eingetin"
Gaf hann nauðstöddu mannkyni. Aldrei fyrr,hafði þvílík
fórn verið færð - aldrei gefin önnur eins gjöf -
Jesús,soiiur Guðs var komin í heiminn og hann varð
frelsari mannanna.
bar með rættust allar forspár hinna heilögu spá- ^
manna um komu Messíasar. óskeikult orð Drottins
uppfylltist svo bókstaflega án þess þó að fjöldin vissi
af eða reiknaði með því að málin skipuðust þannig.
"Ljósið skeih £ myrkrinu".
Priðarhöfðingin kom,hann,'sem einn er fær um að veita
þann frið,sem mannkynið hefur þráð um langan aldur og
þráir enn í dag, - frið,sem hver maður getur öðlast
ef hann vill ganga að friðarkostunum.
"Yður er í dag frelsari fæddur".
hetta var kjarninn í boðskap engilsins' sem hann
flutti fjárhirðunum í Betlehem. Fullkomið hjálpræði
var veitt og himininn fagnaði hjálpræðinu,sem föllnu
mannkyni hlotnaðist.Því "og í sömu svipan var með
englinum fjöldi himneskra hersveita,sem lofuðu Guð og
sögðu.
"Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu með
þeim mönnum,sem hann hefur velþóknun á".
Já, þannig var fagnaðarboðskapurinn,sem fluttur var-
heiminum fyrir h.u.b. 2ooo árum og er enn í dag. m
Og hvernig bregðast svo menn nú við þessum boðskap?
Er boðskapur Jesú okkur fagnaðarboðskapur?
Ef mannkynið hefði skilið boðskapin um fyrri komu
frelsarans í heiminn - borið Messíasar vonina í
brjósti,hefðu allir fagnað fæðingu barnsins í Betlehem
í Júdeu.
En gerðu menn það?
Guðspjallamaðurinn Jóhannes segir; "Heimurinn þekkti
hann ekki,Hann kom til eignar sinnar og hans eigin
tóku ekki við honum".
hó sendi Guð heiminum skýran boðskap áður en hann