Austurglugginn - 30.05.2008, Blaðsíða 2
2 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 30. maí
Á aðalfundi Verslunarmannafélags
Austurlands sem fram fór á
Reyðarfirði síðastliðinn sunnudag
var samþykkt að félagið samein-
aðist VR. Allir fundarmenn greiddu
atkvæði með sameiningunni, enginn
sat hjá eða greiddi mótatkvæði.
Kristín Björnsdóttir, formaður VFA,
segir fundarsókn hafa verið óvenju
góða. “Það voru fjörtíu og fimm
manns á fundinum. Það er ánægju-
legt að víðtæk samstaða var um sam-
eininguna. Með sameiningu við VR
verða félagsmenn partur af öflugasta
stéttarfélagi landsins, en VR hefur á
að skipa sérstaklega öflugum sjúkra-
sjóði. Eins eru félagsmenn ánægðir
með að verða partur af mun stærra
félagi sem starfar í sömu starfsstétt.”
Kristín segir að þjónusta við félags-
menn á Austurlandi skerðist ekki í
kjölfar sameiningar. “Þvert á móti
mun þjónusta og upplýsingagjöf við
félagsmenn eflast í framhaldi af sam-
einingunni.”
Framkvæmdastjóri
Afls var á móti.
Sverrir Mar Albertsson, framkvæmda-
stjóri Afls, Starfsgreinasambands
Austurlands, skrifaði harðorða grein
í Austurglugganum í síðustu viku. Þar
sagði hann að “Ofurvald stofnana
að “sunnan” er og hefur verið þyrnir
í augum sjálfstæðra og stoltra íbúa
dreifbýlisins,” Í greininni setti Sverrir
fram þá skoðun að VFA ætti heldur
að sameinast Afli. Jafnframt segir í
greininni: “fyrir um ári síðan, var
Verslunarmannafélagi Austurlands
boðið til viðræðna um sameiningu
við Afl. Þær viðræður hafa aldrei
orðið.”
Sverrir klikkir út með orðunum:
“Það, hvernig VR kýs að halda á
sínum sjúkrasjóðs- og orlofsmálum
er pólitísk ákvörðun sem tekin
hefur verið þar að vel skoðuðu máli.
Forysta Afls hefur aðra skoðun og
fylgir henni.”
Á síðustu fimm árum hafa fimm versl-
unarmannafélög sameinast VR. Að
lokinni atkvæðagreiðslu um samein-
inguna var haldinn stofnfundur deildar
VR á Austurlandi þar sem kosin var 3ja
manna stjórn. Formaður deildarinnar
er Kristín Björnsdóttir. Sameiningin
tekur gildi frá og með 1. júní næst-
komandi. Formaður VR, Gunnar Páll
Pálsson, segir sameiningu VR og VFA
mikilvæga fyrir bæði félögin, það sé
ávinningur fyrir verslunarmenn að
taka höndum saman, burtséð frá því
hvar á landinu þeir búi.” Í VFA eru
skráðir um 400 félagsmenn.
Verslunarmenn
á Austurlandi
sameinast VR
Víkingur Heiðar Ólafsson, heldur
einleikstónleika hér í Kirkju- og
menningarmiðstöðinni Fjarðabyggð,
en hann brautskráðist fyrir aðeins
fáeinum vikum frá Juilliard tónlist-
arháskólanum í New York. Víkingur
Heiðar hefur notið fjárhagslegs
stuðnings frá Minningarsjóði um
Birgi Einarson apótekara und-
anfarin ár og því helgar hann tón-
leikana minningu hans. Tónleikarnir
eru þriðjudaginn 3. júní og hefjast
kl. 20.
Á efnisskránni eru, Eroica Varíasjónir
op. 35 eftir Beethoven, 16 valsar op.
39 eftir Jóhannes Brahms, Reykjavík
by Night - frumflutningur á 5
míníatúrum eftir Ólaf Axelsson, 7
Fantasíur op. 116 eftir Brahms og
Scherzo nr. 3 op. 39 eftir Chopin.
VR hefur aðsetur í Húsi Verslunarinnar
í Kringlunni 7. VR hefur í hyggju að efla
þjónustu og upplýsingagjöf til félagsmanna
á Austurlandi.
VR stóð áður fyrir Verslunarmannafélag
Reykjavíkur, en nú fyrir Virðing-Réttlæti.
Árið 1939 efndi sjómannadagsráð til samkeppni um ljóð og lag fyrir sjó-
mannadaginn. Magnús Stefánsson hlaut fyrstu verðlaun fyrir ljóð sitt
"Hrafnistumenn" við lag eftir Emil Thoroddsen. Lag þetta og ljóð er nú
einkennissöngur sjómannadagsins.
Tónlistarviðburður
Víkingur beint úr
Juilliard til Eskifjarðar
Sannleikskorn:
Hið eina sanna
sjómannadagslag
Hrafnistumenn
Íslands Hrafnistumenn
lifðu tímamót tvenn
þó að töf yrði á framsóknarleið.
Eftir súðbyrðings för
kom hinn seglprúði knörr
eftir seglskipið vélknúin skeið.
En þótt tækjum sé breytt
þá er eðlið samt eitt
eins og ætlunaverkið er sjómannsins beið.
Magnús Stefánsson
Erilsamt hjá lögreglu
Austfirskir lögreglumenn höfðu nóg að gera um helgina. Vinnuslys varð í álveri Alcoa og stórskemmtun á Egilsstöðum.
Einn gisti fangageymslur lögregl-
unnar á Egilsstöðum um helgina og
ein líkamsárás átti sér stað. Einn var
tekinn fyrir ölvun við akstur. Í sein-
ustu viku voru tíu ökumenn teknir
fyrir of hraðan akstur í umdæmi
sýslumannsins á Seyðisfirði, fjórir
kærðir fyrir önnur umferðarlagabrot,
sautján bifreiðar boðaðar í skoðun
og klippt af einni. Á föstudagskvöld
var tilkynnt um vinnuslys í álverinu
í Reyðarfirði. Þrjú rifbein brotnuðu
og lunga féll saman í starfsmanni
sem fékk deiglulok í sig. Þeir sam-
starfsmenn hans sem næstir stóðu
fengu áfallahjálp. Starfsmaðurinn var
að vinna við lokið uppi á vagni sem
tengdur var við lyftara. Vagninn virð-
ist hafa verið hreyfður til þannig að
lokið slóst í manninn sem féll við.
Lögreglan á Eskifirði hefur forræði
yfir rannsókn máls togbáts sem
staðinn var að ólöglegum veiðum.
Báturinn var færður til Hafnar í
Hornafirði og lögreglan þar rann-
sakar málið.