Austurglugginn


Austurglugginn - 27.08.2010, Page 3

Austurglugginn - 27.08.2010, Page 3
KYNNING Fréttir frá Fjarðaáli Umsjón: Kristborg Bóel Steindórsdóttir ritstjóri Álpappírsins, fréttabréfs starfsmanna Alcoa Fjarðaáls. Jón Marinó Sigurðsson, framleiðslustarfs- maður í steypuskála, er fæddur og uppal- inn í Bítlabænum Keflavík. Hann er leikari að mennt, en hefur fengist við fjölmargt gegnum tíðina. Hann hefur starfað hjá Fjarðaáli frá því 2007. Kristborg Bóel ræddi við kappann á vormánuðum. Rúnar Júlíusson var „næs gæ“ Jonni segist að mestu hafa alist upp í Geim- steini, stúdíói rokkhetjunnar Rúnars Júlíusson- ar, eða Rúna Júl eins og flestir kölluðu hann. „Rúnar hafði eitthvert óútskýranlegt aðdrátt- arafl, hann var töffari af Guðs náð. Það rigndi þó aldrei upp í nefið á honum. Hann var svona „næs gæ.“ „Ég var í miklu sambandi við hann, allt þar til hann lést. Ég var til dæmis viðstaddur nánast allan tímann meðan GCD platan var tekin upp í Geimsteini. Það var Rúnari kappsmál að koma ungu tónlistarfólki áfram, hann aðstoðaði bíl- skúrshljómsveitir af stað - gaf þeim betri kjör á stúdíótímum en annarsstaðar þekktust. Hjál- mar eru gott dæmi um hljómsveit sem hefur tekið upp sína fyrstu plötu hjá honum og svo komist langt. Rúnar stóð alltaf fyrir útgáfutón- leikum hver jól þar sem böndin sem hann hafði aðstoðað yfir árið komu fram. Það var einmitt á þeim tónleikum sem hann hneig niður, fékk verk fyrir brjóstið og lést á sjúkrahúsi skömmu síðar,“ segir Jonni. Stóð allsnakinn fyrir framan forseta Íslands Að þessum tíma liðnum lagðist Jonni í heims- hornaflakk og fór til Danmerkur með fjórum fé- lögum sínum, þar sem hann vann í kjötvinnslu. Eftir störf við kjötvinnslu og ferðalög um Evrópu kom Jonni heim og vann hjá Varnarliðinu auk þess að vasast áfram í tónlistinni, en hann spilaði í ballhljómsveit á þessum tíma. „Ég var plataður í söngprufu fyrir söngleik hjá Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar. Ég fékk hlutverk í sýnin- gunni sem gekk mjög vel og gekk í leikfélag Ke- flavíkur í kjölfarið. Í allt hef ég líklega tekið þátt í yfir tíu sýningum hjá þeim,“ segir Jonni. Út frá þessu fór Jón Marinó að kenna leiklist í grunnskólunum á svæðinu auk þess að þreyta frumraun sína sem leikstjóri, þegar hann var fenginn til þess að leikstýra fjölmennri afmælis- sýningu fyrir jazzballettskóla. „Verkefnið luk- kaðist afar vel og fjórar sýningar urðu að átján. Ég náði að skapa mér smánafn í leikstjórabransanum við þetta verkefni.“ „Á þessum tíma var Leikfélag Kefla- víkur við það að lenda í gjaldþroti. Við komum nokkur saman til þess að fara yfir stöðuna, en við gát- um ekki hugsað okkur að missa leikhúsið frá okkur. Ég sagði við vin minn að ég væri tilbúinn til þess að strippa til þess að bjarga þessu. Hann tók mig á orðinu, hringdi í mig tveimur tímum síðar og sagðist vera búinn að finna leikrit sem við gætum sett upp, Stæltir stóðhestar, byggt á kvikmyndinni Full Monty. Þarna var ég kominn í örlitla klípu, en skemmst er frá því að segja að við settum verkið upp og það sló alveg í gegn. Við vorum valin áhugaverðasta áhugamannasýningin það árið og enduðum í tveimur sýningum í Þjóðleik- húsinu þar sem ég stóð allsnakinn fyrir framan fullan sal af fólki, þjóðleikhússtjóra og forseta Íslands! Út frá þessu verkefni var ég valinn til þess að ferðast um landið með útileikhúsi. Þegar það var búið gerði ég eina bíómynd með félögum mínum, lék í einu leikriti á fyrstu Ljós- anæturhátíðinni og stökk svo upp í flugvél til Englands þar sem ég ætlaði mér að komast inn í leiklistarskóla.“ Í Englandi byrjaði Jonni á því að læra til þjóns, vann á samningi á sveitahóteli og fór í leiklis- taprufur seinnipartinn. „Þetta var erfiður tími, ég fór í 15 prufur og fékk 14 nei. Ég er afar þrjóskur maður, en þarna var ég við það að gefast upp. Ég átti aðeins eina prufu eftir, í Central School of Drama og fékk þar inn. Nám- ið var eitt ár, en að því loknu reyndi ég aðeins fyrir mér á Englandi og fékk smærri hlutverk í breskum kvikmyndum - eins og að leika lík í stríðsmyndum. Það var þó ótrúlega gaman, ég lærði heilan helling á kvikmyndaheiminn og þar kviknaði áhugi minn á þeim vettvangi, frekar en leik á sviði.“ Frambjóðandinn, sirkusnemandinn og verkefnastjórinn Jón Marinó Sigurðsson Eftir heimkomu lék Jonni nokkuð fyrir Kvik- myndaskóla Íslands, vann í tengslum við kvik- myndirnar 101 Reykjavík og Englar alheimsins auk þess sem hann klippti myndina Uss sem þeir félagar tóku upp áður en hann fór til Eng- lands. Hann var ekki búinn að vera lengi heima þegar hann fékk símtal og var beðinn um að vera í fimmta sæti á lista Framsóknarflokksins í bæjarstjórn- arkosningum. „Ég sló til og skellti mér í framboðsslaginn. Við náðum vel til unga fólksins en skíttöp- uðum þrátt fyrir það. Árni Sigfússon, sem kom inn sem bæjarstjóri á þessum tíma sá eitt- hvað í mér og bað mig um að taka að mér þrettándagleði í bænum og í fram- haldi að vera verkefna- stjóri fyrir Ljósanótt. Það tókst allt saman mjög vel, en ég setti meðal annars upp stórt stomp- sjóv sem lukkaðist mjög vel. Við það kviknaði áhugi minn á götuleikhúsi og ég ákvað að skella mér til Stokkhólms og fór í sirkusskólann Cikur sem er frægur í sinni grein. Þar dvaldi ég í fjóra mánuði ásamt hópi af skemmtilegu fólki, þar sem ég lærði meðal annars eldgleypingar. Þegar ég kom heim setti ég upp götuleikhús í samstarfi við Reykjanesbæ.“ Skömmu síðar hafði Árni aftur samband við okkar mann, en að þessu sinni vildi hann fá hann sem verkefnastjóra yfir frístundaskólum Reykjanesbæjar. Hugmyndin var að byggja skólana upp á leiklist, tjáningu og íþróttum. Það varð úr, Jonni tók að sér verkefnið og sinnti því í tvö ár. Það fékk mikið lof og bæjarstarfsmenn víðs vegar að af landinu komu til þess að kynna sér málið. Jón Marinó hefur sungið af og til með Bigbandi Tónskóla Reykjanesbæjar frá því 1997, nú síð- ast fyrir einu og hálfu ári. „Það hefur verið ótrú- lega skemmtilegt, ég er búinn að fara í gegnum sex hópa og búinn að ferðast með þeim út um allan heim, meðal annars í Bandaríkjunum, á Spáni og í Búlgaríu. Ég var voða ánægður þeg- ar ég sá umfjöllun um tónleikana í blaði í Bo- ston, þar sem ég var kallaður Young Blue Eyes, en Frank Sinatra var kallaður old blue eyes - en það er ekki leiðum að líkjast! Eins og alltaf sagði mamma: „Go for it!“ Jonni þekkti hvorki til landsfjórðungsins hvað þá álframleiðslu þegar hann sótti um starf hjá Fjarðaáli árið 2007. „Á þessum tíma var allt farið að dala, hljóm- sveitin sprungin og lítið að gera í sjóvbiss- nessnum. Það var svo einn laugardaginn að ég sá bæði starfsauglýsingu í Fréttablaðinu og viðtal við Tómas Má Sigurðsson í sjónvarpinu. Ég fílaði þennan góðlátlega og brosandi mann, þannig að ég fór á Netið og tjáði mömmu að ég ætlaði að sækja um vinnu í álveri austur á landi. Eins og alltaf sagði mamma bara, go for it!“ Jonni segist hafa verið nokkuð lengi að gíra sig niður, enda búinn að vera á útopnu um allan heim síðan hann var unglingur. En hann var fljótur að læra að meta aðstæður. „Þó svo það hafi ekki beint verið afslappandi að taka þátt í gangsetningunni þá fann ég fljótt að það eru alger forréttindi að fá að búa í því um- hverfi sem hér er, en ég hef lært að njóta þess að slappa af.“ „Það er oft ótrúlegt hvernig lífið fer. Aldrei hefði mér dottið í hug að ég myndi lenda austur á landi í álveri. Það er mín trú að þessi reynsla eigi eftir að leiða mig eitthvað annað. Það er ekkert sem togar í mig fyrir sunnan, ég myndi frekar vilja fara til útlanda. Ég held mig á jörð- inni, en dreymir þó um að fá tækifæri til þess að fara sem þjálfari í önnur álver á vegum fyr- irtækisins. Svo hlýtur að koma að því að Tóm- as hætti sem forstjóri og þá verður einhver að taka við af honum,“ segir Jonni og hlær. Ólst upp í stúdíóinu hjá Rúnari Júl

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.