Austurglugginn


Austurglugginn - 27.08.2010, Qupperneq 4

Austurglugginn - 27.08.2010, Qupperneq 4
4 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 27. ágúst Búðareyri 7, 730 Reyðarfjörður Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Ragnar Sigurðsson frett@austurglugginn.is Auglýsingastjóri og þjónusta við áskrifendur: Erla Sigrún Einarsdóttir Fréttasími: 477 1750 frett@austurglugginn.is • www.austurglugginn.is Auglýsinga- og áskriftasími: 477 1571 & 891 6484 - auglysing@austurglugginn.is Fréttaritari í Neskaupstað: Áslaug Lárusdóttir s. 695 8498 - aslaugl@gmail.com Fréttaritari á Vopnafirði: Bjarki Björgólfsson s. 865 7471 - kompan@vortex.is Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf. Umbrot og prentun: Héraðsprent. ÞUNGUR ER ÞEGJANDI RÓÐUR Grein Ásmundar Ásmundssonar sem birtist í Austurglugganum þann 20. ágúst sl. hefur vakið margan til umhugsunar svo ekki sé kveðið fastar að orði. Í greininni fjallar Ásmundur um mikilvægi þess að sýna ráðdeild í fjármálum en um það hljótum við öll að vera sammála. Ásmundur telur að með því að flytja aðkomu ferjunnar yfir á Reyðarfjörð mætti spara umtalsverða fjármuni sem annars færu í gangnagerð. Ekki veit ég hvort Seyðfirðingar myndu slá af kröfum sínum um göng þó svo að ferjan færi og ég þykist vita það að ferjan fari hvergi. En það er annað mál, á öllum kaffistofum fjórðungsins hefur grein Ásmundar verið til umfjöllunar í meiri eða minni mæli. Umræður eru alltaf til góðs og ég fagna því að fólk sjái ástæðu til þess að setjast niður og skrifa blaðinu bréf. Í þessu blaði sjá þeir Ólafur Sigurðsson, bæjarstjóri á Seyðisfirði, og Vilhjálmur Hjálmarsson, fyrrverandi ráðherra, ástæðu til þess að svara Ásmundi, Seyðfirðingum til mikillar ánægju. Báðir sjá þeir ástæðu til þess að mótmæla Ásmundi og tína til ýmis sjónarmið máli sínu til stuðnings. Eins og Vilhjálmur bendir réttilega á í sinni grein þá eru samgöngumál Austfirðingum risavaxið viðfangsefni. Því er rík ástæða til að vanda til verka og hefja víðtæka samvinnu til að tryggja Austfirðingum viðunandi samgöngur. Samstaða næst hvorki með því að kæfa niður mál né með plotti milli sveit- arstjórna. Skoðanaskipti þurfa að eiga sér stað og sjónarmið hvers og eins verða að fá að njóta sín en lykilatriðið er að virða skoðanir samborgaranna. Því fagna ég þeim skoðanaskiptum sem fara hér fram í blaðinu og hvet alla til að tjá skoðanir sínar með þessum hætti. Ég vona að Ásmundur sé ekki af baki dottinn þrátt fyrir að hinn mikli penni, rithöfundur og fyrrverandi ráðherra, Vilhjálmur Hjálmarsson sjái ástæðu til þess að svara grein hans. Ég vænti því þess að sjá svör Ásmundar við greinum Ólafs og Vilhjálms í næsta tölublaði Austurgluggans og bíð spenntur líkt og margar kaffistofur fjórðungsins. Ég held hinsvegar að það sé ástæða til þess að hafa áhyggjur af baráttu okkar fyrir auknum samgöngubótum á Austurlandi. Sundrung kjörinna fulltrúa fjórðungsins er með slíkum hætti að fátt bendir til annars en að við séum að færa þeim er stýra niðurskurðarmálum vopn í hendur þ.e. ósamstöðuna. Vonandi leiða samskiptin til frekari sátta Ragnar Sigurðsson Björn Hafþór, formaður SSA, tekur við umsóknum og svarar fyrirspurnum um starf framkvæmdastjóra SSA sem hann sótti sjálfur um og fékk. Hjalli Ágætu lesendur Einhverjir hafa ef til vill veitt því athygli að vísukorn eftir mig birtist í Austurpésanum fyrir skömmu. Þar reyndi ég eftir bestu getu að níða niður nýráðinn ritstjóra þess blaðs. Í framhaldi af því hótaði undirritaður Ragnari ritstjóra að yrkja um hann níð í hverri viku ef hann gengi ekki að ákveðnum kröfum er ég setti fram. Var það úr að mér var boðið að halda úti örlitlu vísna- horni gegn því að ég hefði hemil á mér gagnvart áður nefndum Ragnari. Hugmyndin er að kasta fram fyrripart sem þið lesendur botnið. Síðan verður valið úr innsendum botnum og þeir birtir. Einnig hef ég hugsað mér að lauma inn einni og einni vísu bæði frá þekktum og minna þekktum stórskáldum. Hvað tekið verður fyrir hverju sinni fer eftir hvað er efst á baugi hverju sinni. Reikna þó frekar með því að halda mig innan fjórðungsins. Eins og flestir vita er uppgræðsla hvers konar mjög vinsæl nú á dögum. Margt er gert til að prýða landið en hugmyndir manna á Djúpavogi eru þó vægast sagt nýstárlegar: Djúpavogsins drengir góðir dugmiklir vildu rækta gras. Mig langar að biðja alla sem vettlingi geta valdið að senda inn botna en ekki síður hugmyndir sem gætu nýst í vísnahorninu. Sendist á netfangið frett@ austurglugginn.is Vísnakveðjur Glúmur Vísnahornið3 glæsilegar list- og hönnunarsýningar Þann 14. ágúst sl. opnuðu 3 glæsilegar list- og hönnunarsýningar í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Þar sýna í Frystiklefanum Ólöf Björk Bragadóttir myndlist- armaður 10 ára retrospective, Gallerí Snærós og Mupimup - endurvinnsla í gegnum hönnun, grafíkverk, textílverk, fatahönnun, vöruhönnun og fl., í anddyrinu sýna svo vöruhönnun með plexígleri HILMKO Hilmar & Kolla. Um 300 gestir sóttu sýningarnar heim á opnunardegi en sýningar í Sláturhúsinu eru ávallt mjög vinsælar og eftirsóttar bæði af heima- fólki svo og ferðamönnum og ekki síst erlendum ferðamönnum. Sýningarnar eru opnar til 29. ágúst nk.

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.