Austurglugginn


Austurglugginn - 11.10.2007, Page 6

Austurglugginn - 11.10.2007, Page 6
6 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 11. október Póstfang: Brekkugata 9, 730 Reyðarfjörður Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf. Umbrot & prentun: Héraðsprent Auglýsingastjóri: Erla Sigrún Einarsdóttir 477 1571 - 891 6484 - erla@agl.is Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Einar Ben Þorsteinsson 896 5513 - frett@agl.is Fréttaritari á Vopnafirði - Bjarki Björgólfsson 85 49482 - kompan@vortex.is Fréttaritari í Neskaupstað: Áslaug Lárusdóttir - 695 8498 - aslaugl@gmail.com Fréttaritari í Reykjavík: Gunnar Gunnarsson - 848 1981 - zunderman@manutd.is Aðalsími: 477 1571 Fréttasímar 477 1750 - 477 1755 Fax 477 1756 - www.agl.is Íslenskur lánamarkaður er skrítið fyrirbæri. Verðtrygging og okurvextir virðast vera alvarlegasta vandamál sem fjölskyldur landsins glíma við. Bankarnir eru í þeirri sérstöku aðstöðu að geta ekki tapað peningum hvað sem á dynur. Öll stærri lán til almennings frá bönkum eru verðtryggð, hækki vísitala neysluverðs þá hækkar höfuðstóll lánanna. Þannig eru bankarnir varðir fyrir öllum sveiflum í íslensku efnhagslífi. Neytendur eru hins vegar óvarðir, hækki neysluverð þá hækka ekki launin, en bankarnir eru tryggðir. Hækki verð á kornflexi, þá hækka lánin. Hækki lottómiðinn, þá hækka lánin. Hækki áskrift að Stöð 2 þá hækka lánin. Óverðtryggð lán bankanna eru einnig verðtryggð, ekki vísitölubundið heldur af Seðlabanka Íslands. Aukist verðbólga þá hækkar Seðla- bankinn stýrivexti sína og vextir á óverðtryggðum lánum, svo sem á yfirdráttarlánum og öðrum neyslulánum hækka. Áhætta bankanna við lánveitingar er því engin og er þetta fyrir- komulag útlánahvetjandi fyrir bankastofnanir. Miðað við núverandi hagstjórn sitja bankarnir aldrei uppi með tímabil þar sem hagnaður er minni en gert var ráð fyrir. Öllu heldur hagnast bankarnir jafnt og þétt og lánveitingar þeirra eru verðtryggðar af Seðlabanka Íslands. Hvergi í byggðu bóli í Evrópu hagnast útlánastofnanir jafnvel og á Íslandi. Lánamarkaður hér á landi er talsvert frábrugðinn lánamarkaði í öðrum Evrópulöndum þar sem verðtrygging lána tíðkast varla. Þar þekkja fasteignaeigendur ekki vítahring vísitölubindingar lána sem Íslendingar virðast samþykkja vöfflulaust. Meira að segja er húsnæðisverð bundið í neysluvísitöluna, sem þýðir það að ef fasteignir hækka í verði þá hækka lánin sem á þeim hvíla að sama skapi einnig. Bankarnir eru þannig búnir að fjárfesta í fasteignamarkaðnum með þeim hætti að ef fasteignir hækka, þá hækkar höfuðstóll allra útlána. Þetta sitja íbúðaeigendur í smærri byggðum einnig uppi með, þótt fasteignaverð hækki ekki þar að raungildi, það er ósanngjörn staða. Hækki fasteignaverð í Reykjavík – þá hækkar höfuðstóll fasteignalána á Borgarfirði Eystra. Það er erfiður vítahringur fyrir neytendur. Afnám verðtryggingarinnar væri eitt- hvert mesta framfaraskref Íslandssögunnar, án afnáms mun aldrei skapast samkeppni milli lánastofnana landsins og neytendur munu halda áfram að blæða. Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, hefur flutt ófáar ræðurnar um afnám verðtryggingar. Hennar orð eru ekki gleymd og vonandi man hún enn eftir þeim sjálf nú þegar hún er sest í ráðherrastól. Stýrivextir og vísitölubindingar gera bankana óábyrga í efna- hagslífinu. Það skiptir engu hvort þeir láni of mikið og skapi þenslu, það er allt vísitölutryggt og verðtryggt í topp. Óverðtryggð lán eru svo í þokkabót verðtryggð af Seðlabanka Íslands. Þessi staða gerir bankana að óábyrgum aðilum sem geta ekki tapað vegna sveiflna í efnahagslífinu sem stafa meðal annars af of miklum og óábyrgum lánveitingum bankanna. Neytendur blæða og bankarnir græða. Leiðari Þetta kemur fram í máli Gissurar Péturssonar, forstjóra Vinnumálastofnunar. Hann segir samkomulagið sem gert var við Arnarfell mikilvægt og að það tryggi greiðslur vegna starfsmannanna óháð fyrirslætti og undanbrögðum GT verktaka. “Nei, þvert á móti hefur hið gagnstæða komið í ljós,” segir Gissur þegar hann er spurður hvort það hafi verið mistök að stöðva ekki vinnu GT verktaka í september. GT verktakar gáfu Vinnumálastofnun rangar upplýsingar í september og sögðu starfsmennina í vinnu hjá fyrirtækinu. Nú segja GT verktakar að starfsmennirnir starfi hjá starfsmannaleigunni NCL, Nordic Construction Line. Starfsmennirnir leituðu til AFLs starfsgreinafélags vegna hótana GT verktaka 3. október og óskuðu eftir aðstoð stéttarfélagsins. Starfsmennirnir þvingaðir Efnahagsbrotadeild lögreglunnar hefur nú mál GT verktaka til rannsóknar og miðar rannsóknin að því að finna út hvernig greiðslum til starfsmanna GT verktaka hefur verið háttað og hvort starfsmenn- irnir hafi verið neyddir gegn vilja sínum til þess að taka þátt í fölsun gagna til Vinnumálstofnunar. Einnig miðast rannsóknin að því hvort mennirnir hafi verið neyddir til þess að kvitta undir að þeir hafi fengið hærri laun, en þeim voru í raun greidd. Skýrslutökur af fimm starfsmönnum á vegum GT verktaka fóru fram á þriðjudag. Starfsmennirnir segja að sér hafi verið hótað, myndu þeir ekki skrifa undir falsaða pappíra um launakjör sín. Arnarfell ábyrgist GT verktaka Samkvæmt því samkomulagi sem gert var á Kárahnjúkum 6. september síðastliðinn við fyrirtækið Arnarfell þá tekur fyrirtækið ábyrgð á greiðslum til starfsmanna GT verktaka frá fyrsta degi á vinnusvæðinu. Félags- málatröll Jón Vigfússon nemandi í Grunn- skóla Reyðarfjarðar Jón Vigfússon nemandi í 10. bekk í Grunnskólanum á Reyðarfirði er þessar vikurnar í starfskynningu hjá Austurglugganum. Hann hefur hjálpað til við fréttaöflun, séð um spurningu vikunnar og fleira. Jón tekur virkan þátt í félagslífinu og í næstu viku mun hann fjalla um ferðalag á Landsmót Samfés á dögunum, þar sem hann var kosinn í ungmennaráð Samfés fyrir hönd Sveskjunnar á Reyðarfirði.

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.