Austurglugginn - 11.10.2007, Blaðsíða 12
12 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 11. október
Aino Grib frá Lófóten í Norður-
Noregi dvelur nú um stundir
í gestaíbúðinni Klaustrinu á
Skriðuklaustri. Hún hefur búið
á Svalbarða undanfarin sex ár
og í fyrirlestri sem hún heldur á
Skriðuklaustri sunnudaginn 14.
október mun hún fjalla um sögu
Svalbarða og Longyearbæjarins.
Hún mun einnig segja frá því
hvernig það er að búa á Svalbarða
og sýna dvd mynd sem hún
hefur gert og nefnir Svalbarði
- ærandi þögn. Myndin gefur
góða innsýn í náttúruna, lífið
og stemninguna á Svalbarða.
Eins og áður segir er fyrirlesturinn
á Skriðuklaustri, sunnudaginn 14.
október kl. 15.00. Hann fer fram
á ensku en útdrætti á íslensku
verður dreift til áheyrenda.
Fyrirlesturinn er ókeypis og öllum
opinn á meðan húsrúm leyfir.
Þann 13. og 14. október verður
haldið málþing um skáldkonuna
Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm
(1845-1918) að Þórbergssetri
á Hala í Suðursveit. Málþingið
er haldið á vegum Fræðaseturs
Háskóla Íslands á Höfn og
Þórbergsseturs. Auk fjölbreyti-
legra fyrirlestra verður boðið upp
á göngu- og landkynningarferðir
um heimaslóðir Torfhildar en
hún var fædd og uppalin að
Kálfafellsstað í Suðursveit. Mál-
þingið er öllum opið og
skráning fer fram hjá Soffíu
Auði Birgisdóttur, starfsmanni
Háskólaseturs á Höfn, í síma 470
8042 og 848 2003 eða í tölvupósti:
soffiab@hi.is. Þátttökugjald er
6000 kr. og innifalið í verðinu er
kaffi og kvöldverður á laugardag;
morgunverður, hádegisverður og
kaffi á sunnudag og aðgangur
að sýningu á Þórbergssetri. Þeir
sem vilja lengja dvölina og njóta
útivistar gætu komið strax á
föstudeginum, merktar göngu-
leiðir eru að finna í nágrenni Hala
og að Klukkugili í Papbýlisfjalli.
Þorbjörg og Fjölnir bjóðast til að
vera með leiðsögn í gönguferðum
á föstudeginum ef áhugi er fyrir
hendi og veður leyfir.
Hægt er að panta gistingu á Hala
í síma 867 2900, á Gerði í síma
846 0641, á Smyrlabjörgum í
síma 478 1074 og á Skálafelli í
síma 894 5454.
Þann 12. september sl. afhenti
framkvæmdastjóri Fjarðabyggða-
hafna Kristófer Ragnarsson
málmdeild VA fræsara að gjöf.
Tilefnið var átaksverkefni skól-
ans á vordögum þegar leitað var
til fyrirtækja og stofnana um
fjárhagslegan stuðning til kaupa á
tækjum og kennslubúnaði vegna
náms í málmiðngreinum. Mörg
fyrirtæki og stofnanir styrktu
skólann við þetta tækifæri og alls
söfnuðust kr. 1.450.000
Við tækifærið ávarpaði bæjarstjóri
Fjarðabyggðar Helga Jónsdóttir
samkomuna en auk hennar tóku
til máls þau Helga M. Steinsson
skólameistari og Jóhann Zoega
deildarstjóri málmdeildar VA.
Eftir fyrstu prufukeyrslu fræsar-
ans var öllu starfsfólki og nem-
endum boðnar veitingar í vélasal
skólans.
Haustið í Ríki Vatnajökuls
Torfhildarþing í Suðursveit
Fyrirlestur frá Lófeten
Verð í lausasölu kr. 350 Áskriftarverð kr. 1.140 á mánuði (kr. 285 eintakið) ISSN 1670-3561
Hvar lest þú fréttir af Austurlandi?
Viltu fá Austurgluggann heim til þín á hverjum fimmtudegi?
Pantaðu áskrift núna í síma
477-1571 eða á www.agl.is
Sigfúsar-
þing
Sigfúsarþing verður haldið á
Eiðum og á Seyðisfirði 12. og 13.
október nk. í minningu Sigfúsar
Sigfússonar þjóðsagnaritara.
Þingið er samvinnuverkefni
Minjasafns Austurlands, Gunnars-
stofnunar, Héraðsskjalasafns
Austurlands, Árnastofnun, Félags
þjóðfræðinga á Íslandi og
Miðstöðvar munnlegrar sögu.
Dagskráin skiptist í fyrirlestra,
3 stutt námskeið og ferð á slóðir
Sigfúsar. Tilgangur þess er í raun
tvíþættur, að heiðra minningu
Sigfúsar og verka hans en jafnframt
að halda starfi hans áfram sem er
ekki síður mikilvægt í nútímanum,
þ.e. að safna þjóðsögum, að segja
sögur og varðveita munnlega
sögu.
Frá afhendingu fræsarans.
Verkmenntaskólinn fær góða gjöf