Austurglugginn - 11.10.2007, Qupperneq 14
14 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 11. október
Framkvæmdir við stækkun
Lagarfossvirkjunar fólu í sér
stækkun stöðvarhúss, dýpkun
og breikkun aðrennslisskurðar,
byggingu inntaks og aðrennslis-
ganga svo og uppsetningu á
búnaði virkjunarinnar. Eldri
hverfill virkjunarinnar verður
áfram notaður og er nýr hverfill 20
megawött hrein viðbót. Eldri hluti
virkjunarinnar var tekinn í notkun
árið 1975.
Framkvæmdatími
tvö ár
ÍAV, byggingaverktaki
virkjunarinnar hóf framkvæmdir
við virkjunina í apríl 2005. Þá var
hafin vinna við gerð varnargarðs til
að varna vatni leið að stöðvarhúsinu.
Eiginlegar framkvæmdir hófust
svo í september 2005, og er
framkvæmdatími því um tvö ár. Að
sögn Rarik eru framkvæmdirnar
innan tímaramma sem var
settur þegar hafist var handa.
Heildarkostnaður við byggingu
virkjunarinnar er áætlaður um
3,4 milljarðar króna miðað við
núverandi verðlag.
“Stærri” en
Kárahnjúkavirkjun
Virkjunin þykir mjög hagkvæm og
er keyrð á viðbótarvatni sem fæst
með tilkomu Kárahnjúkavirkjunar.
Þar hefur Hálslón mikið um að segja,
því án jafnrennslis frá Kárahnjúkum
væri virkjunin varla möguleg.
Sama vatn, auk þveráa Lagarfljóts,
rennur um Lagarfossvirkjun og
Kárahnjúkavirkjun. Haft var á orði
í gamansemi á opnunarhófinu að
þarna væri á ferðinni stærri virkjun
en Kárahnjúkavirkjun, þar sem
um Lagarfossvirkjun rennur meira
vatnsmagn.
Hornsteinn
og blessun
Á laugardaginn var virkjunin
svo formlega tekin í notkun.
Í opnunarhófi lagði Hilmar
Gunnlaugsson, stjórnarformaður
Rarik, hornstein að virkjuninni
eftir að Tryggvi Þór Haraldsson,
rafveitustjóri, hefði sagt nokkur
vel valin orð. Eftir að hornsteinn
hafði verið lagður blessaði Vigfús
Ingarsson sóknarprestur virkjunina
að viðstöddu fjölmenni.
Lagarfossvirkjun tvö-
faldar framleiðsluna
Á laugardaginn var Lagarfossvirkjun vígð á formlegan hátt. Eftir
stækkun virkjunarinnar tvöfaldast framleiðslugeta Rarik og stækkar
virkjunin úr 8 megawöttum í 28 megawött. Þarna var því um að ræða
merkan og mikilvægan dag í sögur Rarik.
Valdimar Benediktsson var eini
gesturinn sem ekki var með hvítan
hjálm. Þennan sögufræga græna
hjálm bar hann á höfði þegar hann
starfaði við byggingu eldri hluta
Lagarfossvirkjunar á árunum
1971-1975.
Fjölmenni var við opnunarhátíðina.
Lagarfoss er minningin ein. Hann rennur nú undir stöðvarhúsinu, en hann hvarf sjónum þegar fyrri hluti
virkjunarinnar var byggður.