Austurglugginn - 11.10.2007, Side 16
Fimmtudagurinn 11. októberber 2007 ☎ 477 1750
Heimasíða Hitaveitu Egilsstaða og Fella
www.hef.is
Verslið þar sem
úrvalið er…
…allt í einni ferð
Opið
mánud. - föstud. 9-19
laugardaga 10-18
sunnudaga 12-18 EGILSSTÖÐUM
EGILSSTÖÐUM
Tóti segir
“Það var að koma nýtt
hrotulyf á markaðinn.
Eyrnatappar eru samt
ódýrari leið...”
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
M
I
32
03
6
0
3/
20
06
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is
Umboðsmenn í Fjarðabyggð
// TM Neskaupstað
Hafnarbraut 6
740 Neskaupstaður
sími 477 1735
// Sparisjóður Norðfjarðar
Búðareyri 2
730 Reyðarfjörður
sími 470 1100
Hinn nýbakaði faðir, Bragi, segir
að Sonja kona hans hafi orðið
þess vör að hríðir voru að hefjast
klukkan 12:30. Þau keyrðu af
stað sem leið lá til Egilsstaða,
en þau voru í símasambandi við
Heilsugæslustöðina á Egilsstöðum.
Þar voru staddar tvær ljósmæður
og kvensjúkdómalæknir. Er þau
komu á heilsgæslustöðina þá var
Sonja komin með sjö í útvíkkun
og reglulegar hríðirnar, þar missti
hún legvatnið. Ljóst var að stutt var
í fæðingu. Þá vildu starfsmenn á
Heilsugæslustöðinni senda þau með
sjúkrabíl á Fjórðungssjúkrahúsið í
Neskaupstað, jafnvel þótt tvísýnt
væri að þau næðu þangað í tæka
tíð. “Það er bannað að fæða börn á
Egilsstöðum, það má frekar fæða
börn á Fagradalnum eða um borð í
sjúkrabíl.” segir Bragi.
Fjarðarúnturinn
Á Fagradal fór fæðingin svo af stað
um borð í sjúkrabílnum og var þá
haft samband við Reyðarfjörð og
ráðstafanir gerðar þar svo hægt væri
að fæða barnið á heilsugæslunni þar í
bæ. Áður en þangað var komið hafði
hægt heldur á fæðingunni og var
afráðið að halda á næsta áfangastað,
Eskifjörð. Á Heilsugæslustöðinni
á Eskifirði kl. 15:17 ól Sonja svo
myndar stúlkubarn, 14 merkur að
þyngd. Ljósmæðurnar sem höfðu
komið með frá Egilsstöðum tóku
á móti barninu. Frá Eskifirði voru
Sonja, Bragi og nýburinn flutt í
Neskaupstað hálftíma síðar þar
sem Sonja og barnið voru lögð inn
á fæðingardeildina. “Þetta var allt
svolítið sérstakt,” segir Bragi og
heldur áfram, “Það er bara of langt í
Neskaupstað, þar er frábært fagfólk
og frábær aðstaða, en þangað er bara
of langt. Fyrr á árum mátti ala börn
á Egilsstöðum, nú er það bannað.
Hólmahálsinn og Fagridalur eru víst
betri staðir.”
Miklar
vegalengdir
Frá Eiríksstöðum til Neskaupstaðar
eru um 150 kílómetrar. Fleiri staðir
á Austurlandi eru svo langt og
jafnvel lengra frá sjúkrahúsinu, þar
má nefna Djúpavog og Borgarfjörð
Eystri. Ljóst er að ef starfrækt væri
önnur fæðingadeild á Austurlandi
væru vegalengdir styttri og öryggi
tilvonandi mæðra og nýbura í
fjórðungnum betra.
Frekar fætt á
Hólmahálsi en
Egilsstöðum
Hjónin Bragi Björgvinsson og Sonja Krebs á Eiríksstöðum áttu stúlkubarn
á dögunum. Á tímabili leit jafnvel út fyrir að barnið fæddist í sjúkrabíl.
Stúlkubarn þeirra Sonju og Braga, gárungarnir vilja skíra hana Eskju.