Austurglugginn


Austurglugginn - 26.10.2012, Síða 6

Austurglugginn - 26.10.2012, Síða 6
6 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 26. október Fjögur fyrirtæki fengu viðurkenn- ingu fyrir vinnuverndarstarf á fjöl- mennri vinnuverndarráðstefnu sem haldin var á þriðjudag í tilefni evr- ópskrar vinnuverndarviku sem nú stendur yfir. Guðbjartur Hannes- son,Velferðarráðherra, afhenti við- urkenningarnar sem veittar voru fyrir forystu stjórnenda og virka þátttöku starfsfólks í kerfisbundnu vinnuverndarstarfi. Fljótsdalsstöð var eitt þeirra fyrirtækja sem hlaut viðurkenningu fyrir vinnuverndar- starf ásamt Reykjafiski á Húsavík, Þjóðminjasafni Íslands og Mannviti, verkfræðistofu. Vísað er til þess að markvisst og árangursríkt vinnuverndarstarf skili margvíslegum ávinningi sem einnig megi meta til fjár, þótt skiljanlega beinist sjónir manna einkum að mannlega þættinum með áherslu á að forða slysum og draga úr veik- indum og vanheilsu. „Sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að fjárfesting fyrir- tækja í vinnuvernd skilar sér rúm- lega tvöfalt til baka. Til mikils er að vinna, því kostnaður samfélagsins vegna vinnuslysa og vinnutengdrar vanheilsu er talinn nema um 4% af vergri landsframleiðslu þjóða sam- kvæmt Alþjóðavinnumálastofnun- inni. Í Evrópu verða árlega um 6,9 milljónir manna fyrir vinnuslysum og 23 milljónir manna stríða við vinnutengda vanheilsu“ segir í til- kynningu Velferðarráðuneytisins. Fljótsdalsstöð fyrirmyndarfyrir- tæki á sviði vinnuverndar Samtök ferðaþjónustunnar stóðu fyrir gerð skoðanakönnunar á meðal félagsmanna sinna í september síð- astliðnum. Capacent Gallup sá um gerð könnunarinnar en þar kemur fram að 71% félagsmanna sem tóku afstöðu vilja hafa miðstöð innan- landsflugsins í Reykjavík frekar en í Keflavík. Spurt var: „Hvort kýst þú að hafa höfuðstöðvar innanlands- flugs á Reykjavíkurflugvelli eða Keflavíkurflugvelli?“. Í tilkynningu samtakanna segir að þessi könnun staðfesti vilja ferða- þjónustunnar í þessum efnum sem áður hefur komið fram að mið- stöð innanlandsflugs eigi að vera á Reykjavíkurflugvelli. Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar vill því beina því til ráðamanna, hvort sem er á Alþingi eða borgar- stjórn að „tryggja að umgjörð inn- anlandsflugs á Reykjavíkurflugvelli verði með viðunandi hætti. Í fyrsta lagi þarf að vinna að varanlegu samkomulagi milli ríkis og borgar um flugvöll í Reykjavík, stöðugar deilur um framtíð flugvallarins eru ekki bjóðandi heldur þarf að vinna að sátt um starfsemina. Meirihluti íbúa Reykjavíkur hefur ítrekað lýst yfir þeirri skoðun sinni að mið- stöð innanlandsflugs eigi að vera í Reykjavík og er eðlilegt að tekið verði mið af þeim vilja borgarbúa í þeirri sátt sem skapa þarf. Í öðru lagi þarf að veita leyfi til að aðstaða farþega og starfsmanna við flugafgreiðslu verði betrumbætt. Innanlandsflug á Íslandi er almenningssamgöngur. Meirihluti farþega í innanlandsflugi er að ferðast á eigin vegum til að komast á hagkvæman máta á milli landshluta. Á undanförnum 30 árum hefur farþegum í innanlandsflugi að meðaltali fjölgað um 3% á ári þrátt fyrir að áfangastöðum hafi fækkað og á undanförnum 10 árum hefur far- þegum í innanlandsflugi fjölgað um 16% þrátt fyrir bankahrun, eldgos og efnahagskreppu“ segir í tilkynningu samtakanna. Yfirgengileg hækkun sértækra gjalda á innanlandsflug Samtökin telja að þróun innan- landsflugs í fjölgun farþega sé ógnað vegna „yfirgengilegrar“ hækkunar sértækra gjalda á innanlandsflug. „Gjaldahækkanir sem lagðar hafa verið á undanförnum árum jaðra við aðför að innanlandsfluginu. Frá árinu 2009 hafa sértæk gjöld meira en tvöfaldast og ef það frumvarp til fjárlaga sem nú liggur fyrir á Alþingi verður að veruleika má búast við því að sértæk gjöld á innanlands- flugið muni þrefaldast frá því sem var fyrir einungis 3 árum síðan og verða yfir 600 milljónir króna á ári. Það er alveg ljóst að þörfin á öfl- ugu innanlandsflugi er mikil enda þjóðhagslega hagkvæmur ferðamáti, því er mikilvægt að sú umgjörð sem innanlandsfluginu er skapaður ógni ekki þessu hlutverki“ segir í tilkynn- ingu samtakanna. Feðginin Hallgrímur Bóasson og Ólöf Sól gengu niður á þessa stóru vogmey við kvöldgöngu í fjörunni í Reyðarfirði sl. sunnudagskvöld. Vogmærin reyndist vera um 162 cm að lengd. Vogmey getur orðið allt að þrír metrar á lengd og slæðist af og til í veiðarfæri sjómanna. Samkvæmt Vísindavef Háskóla Íslands er vogmærin sjaldgæf við strendur Austurlands. Á vefnum kemur fram að „sárafáar rannsóknir hafa verið gerðar á lífsháttum vog- meyjarinnar. Menn telja að hún sé fyrst og fremst miðsævisfiskur og hefur hún komið í veiðarfæri skipa á 64 - 640 metra dýpi. Vogmeyjar halda sig sennilega í smáum torfum og einstaka sinnum reka slíkar torfur á land. Fæða vogmeyjarinnar er einkum rækja, smokkfiskar og ýmsar teg- undir smáfiska. Ekki er vitað hvenær hún gýtur en nýgotnar hrygnur hafa rekið á land í maílok. Sjómenn hafa fengið vogmeyjar í flotvörpu djúpt undan Reykjanesi og hugsanlegt þykir að þar megi finna væna hrygningarslóð hennar.“ Sigurður Baldursson, bóndi á Sléttu í Reyðarfirði, fann meterslanga vogmey á svipuðum slóðum árið 2008. Fiskurinn er þekktur fyrir sérstakt útlit en hann er lang- og þunnvaxinn þunnvaxinn, sporðurinn og allir uggar á vogmeynni eru rauðir. Ófögur sjón Eftir þennan merka og sjaldgæfa fund gengu þau feðgin að ruslapoka sem hafði að öllum líkindum verið kastað í sjóinn. Reyndist pokinn fullur af gæsahræjum veiðimönnum til mikillar skammar. Sameinaður skóli Grunnskólans á Stöðvarfirði og Leikskólans Balaborgar var vígður í síðustu viku við hátíðlega athöfn. Nemendur spiluðu, sungu og fluttu ljóð af stakri snilld. Þau Jónas Ólafsson, skólastjóri, Jósef Friðriksson, for- maður fræðslu- og frístunda- nefndar, Ingibjörg Eyþórsdóttir, fráfarandi leikskólastjóri Balaborgar, Þóroddur Helgason, fræðslustjóri Fjarðabyggðar og Gunnar Jónsson, bæjarritari fluttu ávörp. Að lokum var gengið til veislu og nýr og breyttur skóli sýndur gestum. Vilja miðstöð innanlands- flugs áfram í Reykjavík Stór vogmey í fjöru Reyðarfjarðar Það er með ólíkindum að veiðimenn geti ekki séð sóma sinn í því að koma gæsahræjunum á ruslahaugana svo ekki séð talað um hversu furðulegt það er að veiða dýrin til þess eins að henda þeim án þess að nýta nokkuð af þessum góða mat. Vogmærin Stöðvarfjarðarskóli vígður Nemendur Stöðvarfjarðarskóla stóðu fyrir tónlistarviðburðum. Íbúð til leigu 150 fm íbúð á góðum stað í 105 Reykjav. til leigu, 2 svefnh., bílakjallari. Nánari uppl. á netfangið: salb@asa.is

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.