Austurglugginn


Austurglugginn - 16.12.2021, Síða 2

Austurglugginn - 16.12.2021, Síða 2
2 Fimmtudagur 16. desember AUSTUR · GLUGGINN Aðventan er dásamlegur tími, við eigum saman notalegar stundir með þeim sem okkur þykir vænt um. Við væntum komu Krists og hlökkum til hátíðar ljóss og friðar. Þetta á við um okkur mörg hver, við megum hins vegar aldrei gleyma þeim sem kvíða fyrir jólahátíðinni t.d. vegna fátæktar eða sorgar. Það er umhugsunarvert að ýmislegt breytist jafnt og þétt í samfélagi manna. Með aukinni tækni höfum við fjarlægst náttúruna, göngum stöðugt á auðlindir hennar og gamlar hefðir tapast. Þegar þetta er sagt virðumst við á aðventunni sækja í gamlar góðar hefðir eins og öryggisnet. Við hægjum ferðina, steikjum laufabrauð, skreytum, bökum o.fl. Þetta skapar stemningu og samverustundirnar verða magnaðar. Sagan af fæðingu litla Jesúbarnsins hefur jákvæð áhrif. Hún virðist vekja okkur til umhugsunar, minnir okkur á rætur menningarinnar, gamlar góðar hefðir og boðskapinn dýrmæta. Á fallegan hátt laðar sagan fram það besta í okkur. Ég velti því fyrir mér hvort ferðalag ungu foreldranna Maríu og Jósefs til Betlehem, út í náttúruna sé ekki einmitt mikilvægur hluti af sögunni. Ferðalagið var sem andlegur undirbúningur, þau komast í snertingu við náttúruna. Þrátt fyrir að komið væri að fæðingu og ferðalagið erfitt, undirbjó litla fjölskyldan sig fyrir undrið. Ég er viss um að margir fara í göngutúr á aðventunni og yfir hátíðarnar. Sækja í friðinn í náttúrunni. Sleðaferð eða skautaferð með fjölskyldunni og heitt kakó á aðventunni hljómar mun betri undirbúningur en verslunarferð. Það er líka tæplega tilviljun að Jesús hafi fæðst meðal dýranna í fjárhúsinu. Hann var ekki stöðluð ímynd konungsins, voldugur harðstjóri fæddur í vellystingum. Hann kom í heiminn til að þjóna meðal dýra og hirða og minnir okkur stöðugt á hlutverk okkar gagnvart náunganum. Það má því færa rök fyrir því að náttúran og dýrin séu mikilvægur hluti af jólaguðspjallinu. Við megum aldrei gleyma að bera kærleika til náttúrunnar. Jólaguðspjallið hefur þau áhrif að við brjótum upp dagana en á sama tíma minnumst við þess að sælla er að gefa en þiggja. Jesús sagði eitt sinn sögu af því þegar fátæk ekkja gaf peningagjöf. Peningarnir voru ekki miklir í samanburði við þá sem auðmennirnir gáfu en Jesús sagði: „Hinir allir lögðu í sjóðinn af allsnægtum sínum en hún gaf af skorti sínum, alla björg sína.“ (Lúk 21.1-4). Þessi saga endurspeglast á aðventunni þegar við opnum hjörtu okkar og gefum gjafir, verðmæti þeirra skiptir ekki höfuðmáli. Hjálparstarf kirkjunnar er gott dæmi en starfið styður við bakið á fjölskyldum í vanda með matar- og fatagjöfum. Kærleiksboðskapur Krists á hér sannarlega hlut að máli. Jólaguðspjallið minnir okkur þannig á dæmisögur Jesú og við áttum okkur á hvað það er göfugt að láta gott af sér leiða. Það ríkti mikil eftirvænting þegar Jesús fæddist, heimurinn breyttist. Sagan af fæðingunni minnir okkur sannarlega á dýrmætan boðskap og gerir það að verkum að við sækjum fast í gamlar traustar hefðir. Á aðventunni ríkir eftirvænting vegna þess að við hægjum á og gefum undrunum í tilverunni gaum. Megi góður Guð vera með ykkur öllum, gleðilega hátíð ljóss og friðar og blessunaróskir á nýju ári. Alfreð Örn Finnsson, prestur í Austfjarðaprestakalli Jólahugvekja Árni Friðriksson, framhalds- skólakennari og leikskáld á Egilsstöðum, sendi nú nýverið frá sér bókina Einleikir um tímalaust eðli. Bókin er sú 25. í ritröðinni Pastel, sem gefin er út á Akureyri. Í bókaflokknum er leitast við að gefa út bókverk sem fara yfir hefðbundin landamæri ólíkra listgreina. Þannig hefur í Pastel-bókunum mátt finna ljósmyndir, myndbrot, teikningar, dagbókarbrot, frjálslegri prósa, formfasta ljóðabálka, smásögur, örleikrit og skáldsögur. Í ritröðinni er líka leitast við að gefa bæði út verk þekktari höfunda og annarra sem minna hefur borið á eða eru að stíga sín fyrstu skref. Það er ekki gott að segja hvar nákvæmlega Árni telst vera í þeirri röðun. Hann hefur getið sér gott orð að undanförnu fyrir leikverk. Hann vann fyrir nokkrum árum samkeppni um útvarpsleikrit byggð á verkum Williams Shakespeare. Þá skrifaði hann, í samstarfi við leikhópinn Svipi, leikritið Sunnefa sem frumsýnt var í fyrra. Hann kemur því að Pastel ritröðinni fyrst og fremst sem leikskáld, enda efni bókarinnar tveir einleikir, eins og nafnið ber með sér. Er Einleikir um tímalaust eðli tilgerðarlegur titill? Vissulega. Er tilgerðarlegt að skrifa einleik í sextán örþáttum upp úr ljóðflokknum Dichterliebe sem Róbert Schumann samdi við ljóð eftir Heinrich Heine? Biddu fyrir þér já! Er það til einhverra vansa? Nei, ekki minnstu. Fólk hefur almennt of mikið óþol gagnvart tilgerð. Stundum er bara í fínu lagi að hefja sig svolítið á flug. Rífa sig upp yfir hversdaginn. Segja bara, hér er ég og ég les sonnettur Shakespeare, hlusta á Schumann og skrifa hátimbraða leiktexta til útgáfu. Sögurnar sem einleikir Árna segja eru ekki flóknar. Þetta eru sögur af samböndum sem við þekkjum. Bæði góðum og slæmum, jafnvel samböndum sem eru á einhverjum tímapunkti bæði góð og slæm. Höfundurinn sýnir, að því marki sem ég er dómbær á það, ágæta hæfni til að setja sig í spor ólíkra persóna, sem er ekki sjálfgefið. Umfjöllunarefnið útheimtir næmni og hana hefur Árni til að bera. Þetta verk er ábyggilega ekki allra, mun líklega seint verða metsöluverk, en þetta gengur allt saman upp. Þetta eru vel skrifaðir textar og ég hafði ánægju af að lesa þá. Svo má alveg kalla það ánægjuefni að hér eystra sé að finna skáld sem eru þátttakendur í útgáfuverkefnum af þessu tagi og skrifa á þessu kalíberi. Við megum alveg vera stolt af því. Stefán Bogi Sveinsson Einleikir um tímalaust eðli Bókarýni Austurglugginn - Fréttablað Austurlands // Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir // S: 477-1750 • Ritstjórn: Gunnar Gunnarsson ritstjóri og áb.m: gunnar@austurfrett.is • Albert Örn Eyþórsson, blaðamaður : frett@austurglugginn.is • Auglýsingar: Anna Dóra Helgadóttir: auglysing@austurglugginn.is • Áskriftir: Anna Dóra Helgadóttir: askrift@austurglugginn.is • Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf. • Umbrot og prentun: Héraðsprent

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.