Austurglugginn


Austurglugginn - 05.12.2019, Blaðsíða 19

Austurglugginn - 05.12.2019, Blaðsíða 19
 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 5. desember 19 Kiwanis er alþjóðleg þjónustu- hreyfing manna og kvenna sem hafa það að markmiði að taka þátt í að bæta samfélagið og láta gott af sér leiða undir kjörorðinu: „Hjálpum börnum heimsins“. Hreyfingin leggur áherslu á manngildi og eflingu félagskenndar meðal félagsmanna. Hver Kiwanisklúbbur reynir að þjóna sem best því samfélagi þar sem hann starfar. Í Kiwanis eru kvenna-, karla- og blandaðir klúbbar og er hreyfingin ávallt tilbúin að aðstoða við stofnum nýrra klúbba og taka við nýjum félögum. Það þarf aðeins að senda póst á seinars@kiwanis.is og biðja um að vera með. Kiwanisklúbburinn Ós á Hornafirði hefur starfað í 31 ár og stendur nú til að stofna kvennaklúbb og seinna í vetur á að athuga um stofnun á Kiwanisklúbb eða klúbbum á Austfjörðum. Eru áhugasamir beðnir um að hafa samband við höfund greinarinnar eða vera með í fésbókarhópnum Kiwanis á Austfjörðum. Haldinn var kynningarfundur í október á Höfn með þátttöku umdæmis- stjóra, fjölgunarnefndar og Kiwanisklúbbsins Freyju á Sauðárkróki. Mikil hugur er hjá konunum um að hittast næst sem fyrst og hafa nokkrar sem ekki komust á fundinn haft samband um að þær ætli að vera með. Freyjurnar uppfræddu konurnar á Höfn, í gegnum netið, um Kiwanis og starfsemi klúbba. Þær eru tilbúnar að aðstoða nýjan klúbb og leiða þær í gegnum ferlið til stofnunar kvennaklúbbs. Þær ætluðu að vera á staðnum en veðrið setti strik í reikninginn. Konur í Sveitarfélaginu Hornafirði eru hvattar að senda póst á seinars@kiwanis.is ef þær vilja vera með eða leita að hópnum Konur í Kiwanis Höfn á Facebook og biðja um að bætast í hópinn. En hvað gerir Kiwanisklúbburinn Ós fyrir samfélagið? Kúbburinn hefur styrktarsjóð til að halda utan um ágóða af verkefnum klúbbsins. Árlega eru tíu bágstaddar fjölskyldur styrktar í kringum jólin og nýtist hluti af jólatrjásölunni í það. Ós hefur styrkt grunnskólann og framhaldsskólann með veglegum gjöfum gegnum árin. Heilbrigðisþjónustan hefur fengið sinn hluta af söfnunarfé til tækjakaupa og ýmsar safnanir hafa verið til hjálpar langveikum börnum. En ágóði af árlegri jólatrjásölu, páskabingói og Groddaveislu fer í Styrktarsjóð Óss og er þaðan veitt út til samfélagsins. Þau verkefni Kiwanis- hreyfingarinnar á Íslandi sem eru hvað þekktust er sala á K-lyklinum sem er seldur undir kjörorðinu „Gleymum ekki geðsjúkum“. Með þessu átaki hefur hreyfingin styrkt geðverndarmál um á fjórða hundrað milljóna króna, frá árinu 1974, og vakið athygli á þessum sjúkdómi sem enn í dag er oft mikið feimnismál. Síðast núna í september var Kiwanis að styrkja BUGL og PIETA-samtökin með 20 milljónum sem komu úr síðustu söfnun á K-lyklinum. Þá þekkja flestir hjálmaverkefnið þar sem markmiðið er að stuðla að öryggi barna í umferðinni með því að gefa öllum í fyrsta bekk grunnskóla reiðhjólahjálma. Þetta var gert að landsverkefni árið 2003 og hefur aðalstyrktaraðili verkefnisins um árabil verið Eimskip. Á heimsvísu hefur hreyfingin unnið þrekvirki í mörgum málefnum eins og að útrýma joðskorti í heiminum, en þetta verkefni var í samstarfi við UNICEF. Hreyfingin hefur einnig unnið að stífkrampaverkefni, MNT (Maternal/Neonatal Tetanus), með UNICEF en það snýst um að lækna fæðingarstífkrampa til bjargar mæðrum og ófæddum börnum þeirra í 39 löndum. Í dag eru 12 lönd ennþá að berjast við stífkrampa en í 27 löndum hefur tekist að eyða honum og verður Kiwanishreyfingin að fullu með í því verkefni þangað til sigur hefur unnist. Á landsvísu viljum við bæta við fleiri verkefnum í þágu barna til að efla starf okkar og gera hreyfinguna öflugri. Því hvetjum við alla sem vilja starfa í skemmtilegum félagsskap og láta um leið gott af sér leiða að slást í hópinn. Þá vil ég þakka, fyrir hönd hreyfingarinnar, allan stuðning við safnanir og starf okkar í gegnum tíðina. Með Kiwaniskveðju Sigurður Einar Sigurðsson Umdæmisritari og félagi í Kiwanisklúbbnum Ósi ÍÞRÓTTIR Amanda Lind í U-15 Amanda Lind Elmarsdóttir úr Einherja hefur verið valin til úrtaksæfinga fyrir U-15 ára landslið kvenna í knattspyrnu. Hópurinn æfir í Hafnarfirði í byrjun næstu viku. Lúðvík Gunnarsson landsliðsþjálfari stýrir æfingunum. 1. deild karla í körfuknattleik Síðasti leikur 22.11 Hamar - Höttur 82-87 Næsti leikur 8.12 Sindri - Höttur 12.12 Höttur -Álftanes Sæti Lið L U T Stig 1. Höttur 9 8 1 16 2. Hamar 9 8 1 16 3. Breiðablik 9 8 1 16 4. Vestri 9 5 4 10 5. Álftanes 9 4 5 8 6. Selfoss 9 3 6 4 7. Skallagrímur 9 2 7 4 8. Sindri 8 1 7 2 9. Snæfell 9 1 8 2 Mizunu-deild kvenna í blaki Síðasti leikur 23.11 Þróttur N. - Álftanes 3-1 Næstu leikir 14.12 Þróttur N. - Þróttur R. 15.12 Þróttur N. - Þróttur R Staðan Sæti Lið L U T Stig 1. KA 7 7 0 20 2. Afturelding 5 5 0 15 3. HK 7 3 4 8 4. Þróttur R. 4 1 3 4 5. Þróttur N. 7 1 6 4 6. Álftanes 6 1 5 3 Mizunu-deild karla í blaki Síðustu leikir 30.11 Vestri - Þróttur N. 1-3 Næstu leikir 11.1 Þróttur N. - HK Staðan Sæti Lið L U T Stig 1. Þróttur N. 9 7 2 21 2. HK 8 7 1 19 3. Álftanes 8 4 4 12 4. Afturelding 8 2 6 8 5. KA 7 3 4 8 6. Vestri 8 1 7 3 Konur á kynningarfundi um stofnun á Kiwanisklúbbi á Höfn. Tómas Sveinsson umdæmisstjóri, Haukur Sveinbjörnsson formaður fjölgunarnefndar og Svavar Svavarsson umdæmisféhirðir. Frá vinstri eru félagar í Ósi. Haukur, Stefán Brandur, Sigurður Einar og Jón Áki. Aðsend grein „Hjálpum börnum heimsins“ og gakktu til liðs við okkur í Kiwanis!

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.