Austurglugginn - 05.12.2019, Blaðsíða 12
Sjóðurinn styrkir kaup á sjónglerjum en ekki umgjörðum
Meðal annars er hægt að framvísa kvittunum fyrir æfingagjöldum hjá golfklúbbum.
Fréttabréf AFLs Starfsgreinafélags
Fimm milljónir til
gleraugnakaupa
Þokkaleg afkoma AFLs
Hjólastólaaðgengi í
orlofshús
Sex milljónir til
heilsuræktar
214 félagsmenn fengu á síðasta
ári 4,6 milljónir í gleraugnastyrki.
Það er að meðaltali 22.000 á
hverja umsókn. Því miður er það
þannig að gleraugnastyrkir eru sú
styrktegund sem einna mest er reynt
að sækja um með ófullnægjandi
eða jafnvel röngum upplýsingum.
Reglur sjóðsins eru þannig að
styrkur getur verið allt að 50% af
andvirði sjónglerjanna – en þar
sem umgjarðir eru smekksatriði og
jafnvel tískuvarningur - eru kaup á
umgjörðum ekki styrkt.
Þetta hefur valdið því að
nokkrir félagsmenn hafa komið
með ófullnægjandi kvittanir eða
kvittanir þar sem verð á glerjum
og umgjörðum eru handskrifuð og
umgjarðir „mjög ódýrar“. Í þeim
tilvikum hefur starfsfólk félagsins
venjulega samband beint við
verslunina og með því að fá að tala
við bókhald verslunar er unnt að
staðreyna hvert rétt verð glerja var
og rétt verð umgjarða.
Framvísi félagsmenn röngum
upplýsingum vegna umsóknar - er
umsókn synjað.
Vinna er hafin við ársreikninga
félagsins fyrir yfirstandandi ár.
Bráðabirgðauppgjör fyrstu 9 mánaða
ársins gefur vísbendingu um að
afkoma félagsins verði viðunandi
og í takt við væntingar.
Félagssjóður stefnir í hóflegan
afgang en félagið hefur verið rekið
með afgangi öll ár frá stofnun að
undanskildu hrunárinu 2008.
Afgangurinn hefur þó verið
hóflegur frá því að framkvæmdum
við Kárahnjúka og á Reyðarfirði lauk
enda kappkostar stjórn félagsins að
veita þjónustu og efla starf félagsins
frekar en að safna í sjóði.
Orlofssjóður hefur staðið í
miklum framkvæmdum og á orðið
lítið í sjóðum en engu að síður hefur
tekist að reka sjóðinn réttum megin
við núllið og stefnir í að svo verði
einnig þetta árið.
Niðurgreiðsla sjóðsins með rekstri
orlofsíbúða er um 10 milljónir króna
á ári – en mun meiri kostnaður er
af rekstri orlofshúsa – eða um 40
milljónir króna árlega. Niðurgreiðsla
annarra orlofskosta er um 10
milljónir króna árlega. Iðgjaldatekjur
orlofssjóðs á fyrstu 9 mánuðum
ársins eru um 70 milljónir króna.
Sjúkrasjóður var rekinn nánast á
núlli árið 2018 en stefnir í að vera
réttum megin við núllið í ár. Fyrir
rösku ári var nýjum styrkjaflokk
bætt við er farið var að styðja fólk
til sálfræðimeðferðar og þá hafa
ýmsir styrkir verið hækkaðir talsvert
á liðnum árum.
Þá hóf félagið líka að skila
l í feyr iss jóðsgreiðs lum af
sjúkradagpeningum – en það er
11,5% hækkun sjúkradagpeninga.
AFL greiðir 85% af meðaltekjum
síðustu mánaða í sjúkradagpeninga
(að teknu tilliti til sjúkradagpeninga
Sjúkratrygginga Íslands) en þó
að hámarki 933 þúsund krónur á
mánuði.
Vinna er hafin við endurnýjun
þriggja orlofshúsa félagsins á
Einarsstöðum á Völlum og er
stuðst við sömu teikningu og við
endurnýjun húsa í fyrra. Húsin
verða lengd fram á pallinn, skipt
um innréttingar og skipulagi breytt.
Að þessu sinni verður einu húsanna
breytt aðeins meira og meðal annars
verður baðherbergi þar stærra, flutt í
norðvesturenda hússins og miðað við
reglugerð um aðgengi hjólastóla að
baðherberginu. Þá verður skipulagi
svefnherbergja breytt þannig að unnt
verði að athafna sig í hjólastól þar og
byggð skábraut af bílastæði og upp á
pall hússins þannig að félagsmenn í
hjólastólum verði alfarið sjálfbjarga
við komu í húsið.
Þá verða gerðar ráðstafanir í
kringum heita pottinn þannig að
auðveldara verði fyrir fatlaða að
komast í pottinn.
Reiknað er með að endurbyggingu
húsanna þriggja (nr. 10, 11 og 12)
verði lokið fyrir vorið. Þegar þeim
er lokið hafa alls 9 hús félagsins
verið endurnýjuð. Félagið átti 19
hús á Einarsstöðum en seldi nýverið
þrjú þeirra til Einingar-Iðju á
Akureyri þannig að eftir að þessum
framkvæmdum lýkur verða aðeins 5
hús eftir í upprunalegri mynd.
Öll önnur félög sem eiga hús á
Einarsstöðum hafa einnig verið að
endurnýja þau. Þá hafa öll hús verið
tekin í gegn að utan og gaflar klæddir
með stáli sem og hliðar þar sem þörf
hefur verið á. Næst á dagskrá verður
að skipta um þak á öllum húsum
í byggðinni og þegar því verkefni
verður lokið má segja að byggðin öll
sé endurnýjuð.
Síðustu 12 mánuði fengu 760
félagsmenn AFLs alls 6 milljónir
til heilsueflingar. Félagsmenn
AFLs nýta heilsueflingarstyrk til
margvíslegra hluta. Flestir greiða
fyrir árskort í ræktina, aðrir í
sundlaugar eða hvort tveggja. Þá er
hægt að framvísa kvittunum fyrir
æfingagjöldum, t.d. í golfklúbba eða
önnur íþróttafélög.
Rétt til styrks hafa þeir félagsmenn
sem hafa skilað iðgjaldi síðustu
12 mánuði og full réttindi fást ef
iðgjaldið nemur lágmarksiðgjaldi
félagsins eins og það er ákvarðað af
aðalfundi ár hvert (10.000 nú). Ef
félagsmaður er greiðandi félagsgjalds
en iðgjald nær ekki lágmarksiðgjaldi
er styrkur greiddur hlutfallslega.
Framvísa þarf reikningi frá
líkamsræktarstöð eða rekstraraðila
að þeirri heilsurækt sem viðkomandi
stundar og það þarf að vera löglegur
reikningur og viðkomandi útgefandi
þarf að vera skráður hjá RSK með
rekstur.
Frá framkvæmdum á Einarsstöðum síðasta vetur.