Austurglugginn


Austurglugginn - 05.12.2019, Blaðsíða 17

Austurglugginn - 05.12.2019, Blaðsíða 17
 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 5. desember 17 Fréttatilkynning Rauði krossinn, Þjóðkirkjan, AFL starfsgreinafélag og Lionsklúbburinn Múli hafa síðustu ár látið fé af hendi rakna í jólasjóð sem starfræktur er í samvinnu við félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs. Markmið Jólasjóðsins er að styrkja fjölskyldur og einstaklinga á Fljótsdalshéraði, Borgarfirði, Seyðisfirði, Vopnafirði og Djúpavogi sem búa við þröngan kost og létta þannig undir fyrir jólahátíðina. Hægt er að sækja um í sjóðinn með því að hafa samband við Guðrúnu Rögnu, gudrunragna@fljotsdalsherad.is. Ef einhverjir vilja koma áleiðis ábendingum varðandi þá sem gætu þurft á aðstoðinni að halda má hafa samband á sama netfang eða leita til þeirra sem að sjóðnum standa. Einnig hefur styrkjum í sjóðinn verið safnað frá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum. Hægt er að styrkja sjóðinn með því að leggja inn á reikning 0175-15-380606 kt. 530505-0570 en söfnunarreikningurinn er í nafni Safnaðasamlags Egilsstaðaprestakalls (ekki er tekið við gjöfum eða mat). Þeim sem styrkt hafa sjóðinn síðustu ár, þökkum við kærlega fyrir stuðninginn. Nánari upplýsingar veita Margrét Dögg hjá Múlasýsludeild Rauða krossins, í síma 863 3692 eða á margretd@redcross.is og Guðrún Ragna hjá Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs, í síma 470 0725 eða gudrunragna@fljotsdalsherad.is. Fljótsdalshérað auglýsir styrki til menningarstarfs á árinu 2020 Atvinnu- og menningarnefnd Fljótsdalshéraðs auglýsir til umsóknar styrki til menningarstarfs með umsóknarfresti til og með 16. desember 2019. Umsækjendur verða að tengjast Fljótsdalshéraði með búsetu, eða með því að viðburðurinn fari fram á Fljótsdalshéraði eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi á Fljótsdalshéraði. Stefnt er að því að afgreiðsla styrkumsókna muni liggja fyrir fyrir 1. febrúar 2020. Umsækjendur er hvattir til að kynna sér Reglur um úthlutun menningarstyrkja Fljótsdalshéraðs á heimasíðu sveitarfélagsins. Sótt er um styrk með rafrænum hætti á Íbúagátt sveitarfélagsins og fer innskráning þar fram með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Skrifstofustjóri Fljótsdalshéraðs Aðventan     8. DESEMBER JÓGA & JÓLABÍÓ                                 ­  €     ‚ ­ ƒ 14. DESEMBER MARKAÐIR - TÓNLIST - BÍÓ 15. DESEMBER TÓNLEIKAR & BÍÓ „   …  †‡ˆ     „ …‰  Š        ‹   Œ … … Ž   †‡Š             ‘     €     ‚ ­ Š    ’    Œ  … “…              … Œ…              ‡           ­

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.