Austurglugginn - 05.12.2019, Síða 17
AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 5. desember 17
Fréttatilkynning
Rauði krossinn, Þjóðkirkjan, AFL starfsgreinafélag og
Lionsklúbburinn Múli hafa síðustu ár látið fé af hendi rakna í
jólasjóð sem starfræktur er í samvinnu við félagsþjónustu
Fljótsdalshéraðs.
Markmið Jólasjóðsins er að styrkja fjölskyldur og einstaklinga á
Fljótsdalshéraði, Borgarfirði, Seyðisfirði, Vopnafirði og
Djúpavogi sem búa við þröngan kost og létta þannig undir fyrir
jólahátíðina.
Hægt er að sækja um í sjóðinn með því að hafa
samband við Guðrúnu Rögnu,
gudrunragna@fljotsdalsherad.is. Ef einhverjir vilja
koma áleiðis ábendingum varðandi þá sem gætu
þurft á aðstoðinni að halda má hafa samband á
sama netfang eða leita til þeirra sem að sjóðnum
standa.
Einnig hefur styrkjum í sjóðinn verið safnað frá fyrirtækjum,
félagasamtökum og einstaklingum. Hægt er að styrkja sjóðinn
með því að leggja inn á reikning 0175-15-380606 kt.
530505-0570 en söfnunarreikningurinn er í nafni Safnaðasamlags
Egilsstaðaprestakalls (ekki er tekið við gjöfum eða mat). Þeim
sem styrkt hafa sjóðinn síðustu ár, þökkum við kærlega fyrir
stuðninginn.
Nánari upplýsingar veita Margrét Dögg hjá Múlasýsludeild Rauða
krossins, í síma 863 3692 eða á margretd@redcross.is og
Guðrún Ragna hjá Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs, í síma 470
0725 eða gudrunragna@fljotsdalsherad.is.
Fljótsdalshérað auglýsir styrki
til menningarstarfs
á árinu 2020
Atvinnu- og menningarnefnd Fljótsdalshéraðs auglýsir
til umsóknar styrki til menningarstarfs með
umsóknarfresti til og með 16. desember 2019.
Umsækjendur verða að tengjast Fljótsdalshéraði með
búsetu, eða með því að viðburðurinn fari fram á
Fljótsdalshéraði eða feli í sér kynningu á
menningarstarfsemi á Fljótsdalshéraði. Stefnt er að því
að afgreiðsla styrkumsókna muni liggja fyrir fyrir
1. febrúar 2020.
Umsækjendur er hvattir til að kynna sér Reglur um
úthlutun menningarstyrkja Fljótsdalshéraðs á
heimasíðu sveitarfélagsins.
Sótt er um styrk með rafrænum hætti á Íbúagátt
sveitarfélagsins og fer innskráning þar fram með
rafrænum skilríkjum eða Íslykli.
Skrifstofustjóri Fljótsdalshéraðs
Aðventan
8. DESEMBER
JÓGA & JÓLABÍÓ
14. DESEMBER
MARKAÐIR - TÓNLIST - BÍÓ 15. DESEMBER
TÓNLEIKAR & BÍÓ