Austurglugginn - 26.11.2020, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 26. nóvember AUSTUR · GLUGGINN
Måsøval Eiendom AS, hið norska
móðurfélag Laxa fiskeldis, hefur fest
kaup á 55,6% hlut í Ice Fish Farms,
móðurfélagi Fiskeldis Austfjarða.
Engin ákvörðun hefur enn verið tekin
um sameiningu félaganna. Félögin
reka bæði fiskeldi á Austfjörðum
og eru Laxar með leyfi fyrir 17.000
tonna eldi en Fiskeldi Austfjarða
20.800 tonnum. Talsvert samstarf
hefur verið milli félaganna síðustu ár
og í tilkynningu er haft eftir forstjóra
Måsøval að með kaupunum opnist
möguleikar á enn frekari samvinnu.
Þá hefur Fiskeldi Austfjarða sótt
um leyfi fyrir tæplega 17 þúsund
tonna eldi í viðbót. Af þeim eru
tíu þúsund tonn í Seyðisfirði en
Skipulagsstofnun opnaði fyrir
athugasemdir við frummatsskýrslu
vegna umhverfisáhrifanna í byrjun
síðustu viku.
Þau áform hafa hins vegar vakið
hörð viðbrögð hóps Seyðfirðinga
sem undanfarna viku hafa safnað
undirskriftum bæjarbúa til að
mótmæla eldinu. Hafa þeir bæði
áhyggjur af lífríkinu í firðinum sem
og ásýnd hans, en meðal annars er
áætlað að eitt eldissvæðanna verði
nærri bænum. Af fyrirtækisins
hálfu hefur verið bent á að það hafi
þegar gilt leyfi á þeim stað upp á
nokkur hundruð tonn. Í tilkynningu
þess segir að málið eigi sér langan
aðdraganda og á öllum stigum
þess hafi verið haft samráð við
bæjaryfirvöld. Hugur fyrirtækisins
standi ekki til annars en eiga góð
samskipti við bæði bæjarbúa og
sveitarstjórn.
GG
Aðventustundir
og styrkir í stað
jólatréstendrana
Fjarðabyggð hefur ákveðið
að styðja við aðventustundir
og foreldrafélög þar sem ekki
verður hægt að efna til samkomu
við tendrun jólaljósa á jólatrjám
í ár. Hefð hefur verið að tendra
formlega á jólatré í hverjum
byggðarkjarna sveitarfélagsins
undanfarin ár.
Í staðinn verður haldin
aðventustund í öllum grunn-
og leikskólum sveitarfélagsins
þar sem boðið verður upp
á piparkökur og ávexti.
Sveitarfélagið mun kosta og
dreifa góðgætinu en skólarnir
útfæra viðburðina sjálfir.
Þá hafa foreldrafélög
viðkomandi skóla haldið utan
um dagskrána við tendrun
jólaljósanna. Til þess hefur
hvert félag fengið 100 þúsund
krónur sem hefur verið mikilvæg
fjáröflun. Til að mæta þeim
tekjumissi mun sveitarfélagið
styrkja hvert félag sem haldið
hefur utan um viðburðina um
50 þúsund krónur.
Ósammála um
umbúðamóttöku
Til atkvæðagreiðslu kom í
heimastjórn Djúpavogshrepps á
síðasta fundi hennar þegar tekin
var fyrir umsókn um byggingar-
leyfi fyrir umbúðamóttöku
við fiskvinnslufyrirtækið
Búlandstind. Tveir fulltrúar,
heimamanna, Krist ján
Ingimarsson og Ingi Ragnarsson,
greiddu atkvæði með leyfinu
en fulltrúi sveitarstjórnar, Jódís
Skúladóttir frá Vinstri grænum,
gegn því. Í bókun segir að hún
hefði viljað að málið væri kynnt
betur með skýrari framsetningu.
Tveir fulltrúar minnihluta
greiddu einnig atkvæði gegn
útgáfu leyfisins þegar það var
tekið fyrir í umhverfis- og
framkvæmdaráði Múlaþings.
Vilja mokstur alla daga
Heimastjórn Borgarfjarðar vill
að vegurinn til Borgarfjarðar
um Vatnsskarð eystra verði
mokaður alla daga vikunnar.
Samkvæmt núgildandi plani
er hann mokaður aðra daga
en laugardaga. Í bókun frá
síðasta fundi sveitarstjórnar er
vakin athygli á að eftir tilurð
sveitarfélagsins Múlaþings sé um
samgöngur innan sveitarfélags
að ræða.
Ekki hafði tekist að rekja uppruna
Covid-19 smits sem greindist á
Austurlandi þriðjudaginn fyrir viku
þegar Austurglugginn fór í prentun.
Smit greindist hjá skólabílstjóra á
Fljótsdalshéraði og þurftu tæplega
40 manns að fara í sóttkví vegna
þess. Í tilkynningu aðgerðastjórnar
almannavarnanefndar Austurlands
á mánudag voru leiddar líkur að
því að bílstjórinn hefði smitast af
einstaklingi með lítil eða engin
einkenni sem ekki hefði leitað til
heilsugæslu.
Sýni voru tekin úr þeim sem lentu
í sóttkví í lok vikunnar og reyndust
þau nær öll neikvæð. Í kjölfarið
losnaði fólkið úr sóttkvínni og var
aðeins einn eftir í byrjun vikunnar.
Aðgerðastjórnin telur hverfandi
líkur á að smitið hafi breitt úr sér
og þakkar það meðal annars góðum
smitvörnum við skólaaksturinn. Þó
sé enn þörf fyrir Austfirðinga að fara
með gát næstu dagana.
Þórólfur Guðnason, sóttvarna-
læknir, sagði aðspurður á upplýsinga-
fundi að ekki tækist að rekja öll smit
sem upp kæmu. „Um 15% smita tekst
ekki að rekja. Fólk með lítil einkenni
getur dreift veirunni og kannski er
þetta slíkt tilfelli,“ svaraði hann.
GG
Félag ljóðaunnenda á Austurlandi
hlaut sérstaka viðurkenningu á
degi íslenskrar tungu fyrir störf í
þágu íslensks máls. „Þetta er mikill
heiður fyrir okkur og ég álít að það
sé félaginu mikilvægt að fá þessa
viðurkenningu. Fyrst og fremst
kynnir þetta félagið okkar. Hvorki
það né útgáfa þess hefur verið mjög
þekkt heldur höfum við frekar
unnið okkar verk í kyrrþey. Við
tökum þessu af hógværð en miklu
þakklæti,“ segir Magnús Stefánsson,
formaður félagsins.
Í greinargerð ráðgjafarnefndar
verðlaunanna segir að félagið
hafi með félagsstarfi sínu hlúð að
grasrótinni í íslenskum skáldskap,
aukið við flóru íslenskra góðskálda
og haldið í heiðri minningu eldri
skálda sem nú séu gengin. Félagið
hafi sýnt að á Austurlandi sé
ekki aðeins eyjaval, eins og Jónas
Hallgrímsson hafi ort um, heldur
líka skáldaval.
Félagið var stofnað á Stöðvarfirði
í júlí árið 1996. Fyrst í stað
stóð það fyrir ljóðakvöldum og
hagyrðingamótum en ætíð var stefnt
að útgáfu bókar með úrvali ljóða
eftir austfirsk skáld. Hún kom út
árið 1999 og hét Raddir að austan.
Magnús segir að aldrei hafi verið
áformað að gefa út fleiri bækur en
það breyttist og eru þær nú orðnar
39. Flestar, 20, eru í flokknum
Austfirsk ljóðskáld. Fyrsta bókin
í honum kom út árið 2001 en sú
síðasta í lok október og heitir Ég
skal segja ykkur það eftir Sólveigu
Björnsdóttur, bónda á Laufási í
Hjaltastaðaþinghá. Þá gaf félagið
út tvær aðrar bækur fyrr á árinu.
Búið er að ákveða að gefa út tvær
bækur á næsta ári. Þá vonast Magnús
til þess að Covid-19 faraldurinn
fari að hjaðna en hann hefur
komið í veg fyrir að félagar hittist
á ljóðastundum, sem félagið hefur
staðið fyrir frá árinu 2006.
GG
MOLARUm 15% smita tekst ekki að rekja
Móðurfélag Laxa kaupir meirihlutann í Fiskeldi
Austfjarða
Félag ljóðaunnenda heiðrað á degi
íslenskrar tungu
Magnús Stefánsson veitir viðurkenningunni viðtöku. Mynd: Sigurður Stefán Jónsson